Handbolti

Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta lands­leikinn fyrir sjö­tíu árum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðríður Guðjónsdóttir með þeim Gerðu Jónsdóttur, Helgu Emilsdóttur, Geirlaugu Karlsdóttur og Sigríði Kjartansdóttur.
Guðríður Guðjónsdóttir með þeim Gerðu Jónsdóttur, Helgu Emilsdóttur, Geirlaugu Karlsdóttur og Sigríði Kjartansdóttur. HSÍ

Handknattleikssamband Íslands minntist þess í dag að það eru liðin sjötíu ár frá því íslenska kvennalandsliðið í handknattleik lék sinn fyrsta landsleik þegar það mætti Noregi í Osló þann 19. júní 1956.

Leikurinn var liður í undirbúningi fyrir Norðurlandamótið í Finnlandi síðar um sumarið. Spilað var utanhúss á grasi og lauk leiknum með 10:7-sigri Noregs.

Af tímamótunum var minnst í dag þegar fjórar úr fyrsta landsliðshópnum, þær Gerða Jónsdóttir, Helga Emilsdóttir, Geirlaug Karlsdóttir og Sigríður Kjartansdóttir, komu saman.

Fyrir hönd HSÍ heimsótti Guðríður Guðjónsdóttir, formaður landsliðsnefndar kvenna, landsliðskonurnar og færði þeim blóm og minjagripi í tilefni dagsins. Einnig voru viðstaddir fulltrúar frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands.

Guðríður sjálf var lykilleikmaður í íslenska landsliðinu í mörg ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×