Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið Kjartan Kjartansson skrifar 19. júní 2026 06:32 Skilti í Beirút í Líbanon með mynd af Ali Khamenei heitnum (t.v.) og syni hans Mojtaba Khamenei, nýjum æðstaklerki Írans. Bandaríkjamenn og Ísraelar felldu Ali Khamenei í árásum sínum á Íran í vetur. Vísir/EPA Gjaldtaka af skipum sem sigla um Hormússund hefst eftir að tveggja mánaða viðræðum Írana og Bandaríkjamanna lýkur, að sögn íranskra stjórnvalda. Samkomulag sem skrifað var undir í vikunni kveður á um að sundið verði opnað og án gjaldheimtu.
Mohammad Bagher Ghalibaf, aðalsamningamaður Írans, segir að gjaldið verði lagt á til þess að mæta kostnaði Írana við að hafa umsjón með umferð um Hormússund. Þá segjast Íranir frábiðja sér að Evrópuríki sendi flota til þess að fylgja flutningaskipum í gegnum sundið, að því er kemur fram í frétt breska blaðsins The Guardian. Ísraelar gætu einnig reynst þrándur í götu þess að samkomulagið haldi. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sagði í gær að „öryggissvæði“ sem Ísraelar hafa komið upp í sunnanverðu Líbanon verði viðhaldið eins lengi og öryggi Ísraels krefjist. Að minnsta kosti sextán létust í árásum Ísraela á sunnanvert Líbanon sem hófust í gærkvöldi, að sögn stjórnvalda í Beirút. Ísraelar sögðu árásirnar viðbragð við endurteknum brotum Hezbollah-samtakanna, bandamönnum Írana, á vopnahléi. Íranir telja að samkomulag þeirra við Bandaríkin feli í sér að Ísraelar þurfi að draga herlið sitt til baka frá Líbanon. Ísraelar hersetja nú um 600 ferkílómetra svæði við landamæri ríkjanna. Ekkert verður af viðhafnarundiritun samkomulags Bandaríkjanna og Írans sem átti að fara fram í Sviss í dag. Donald Trump Bandaríkjaforseti og Masoud Pezeshkian, íranski starfsbróðir hans, skrifuðu rafrænt undir samkomulagið í vikunni.
Íran Bandaríkin Ísrael Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bensín og olía Jarðefnaeldsneyti Skipaflutningar Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vučić játar ósigur Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira