Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Atli Ísleifsson skrifar 18. júní 2026 06:41 Þeir fjórir meginþættir sem mældir eru í úttekt IMD eru efnahagsleg frammistaða, skilvirkni hins opinbera, skilvirkni atvinnulífs og samfélagslegir innviðir. Vísir/Vilhelm Ísland situr nú í 22. sæti í samkeppnishæfni árið 2026 og fellur um sjö sæti á milli ára samkvæmt nýrri úttekt IMD á samkeppnishæfni sjötíu ríkja. Samkeppnishæfni hinna Norðurlandanna fellur sömuleiðis milli ára, en Singapúr skipar efsta sæti listans.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Viðskiptaráði en úttekt IMD er sögð ein sú umfangsmesta sinnar tegundar og meti getu ríkja til að skapa verðmæti og standa undir góðum lífskjörum til lengri tíma litið. Þeir fjórir meginþættir sem mældir eru eru efnahagsleg frammistaða, skilvirkni hins opinbera, skilvirkni atvinnulífs og samfélagslegir innviðir. Í skýrslunni segir að samkeppnishæfni Íslands falli um sjö sæti milli ára og fari úr 15. sæti niður í 22. sæti. „Ísland hefur ekki mælst lægra í úttektinni í níu ár, eða síðan árið 2017. Samkeppnishæfni Íslands hefur aukist frá árinu 2010 og sótt á önnur Norðurlönd, sem hafa jafnan mælst meðal samkeppnishæfustu ríkja heims. Þrátt fyrir mikla lækkun milli ára ber ekki mikið í milli Íslands og annarra Norðurlanda, þar sem samkeppnishæfni þeirra er að dragast saman sömuleiðis. Þannig lækkar Finnland um 5 sæti, Noregur um 6 sæti, Svíþjóð um 1 sæti og Danmörk lækkar um 2 sæti,“ segir í tilkynningu Viðskiptaráðs. Singapúr hreppir efsta sæti listans af Sviss Singapúr er nú samkeppnishæfasta ríki heims og tekur það sætið af Sviss, sem var efst á lista árið 2025. „Hong Kong skipar annað sæti listans og hækkar um eitt sæti milli ára. Sviss er í þriðja sæti og fellur um tvö sæti milli ára. Á eftir Sviss koma svo Taívan í fjórða sæti og Sameinuðu arabísku furstadæmin í fimmta sæti.“ Ísland lækkar í öllum fjórum meginþáttum samkeppnishæfni á milli ára, um á bilinu fjögur til níu sæti. „Mest lækkar Ísland í efnahagslegri frammistöðu, þar sem við förum úr 52. sæti í 61. sæti. Best gekk á þeim mælikvarða árið 2016 þegar Ísland var þar í 29. sæti. Ísland lækkar um fimm sæti þegar horft er til skilvirkni atvinnulífsins og samfélagslegra innviða, en um fjögur sæti í skilvirkni hins opinbera. Ísland stendur þó enn hlutfallslega vel á þessum þremur síðastnefndu mælikvörðum, þrátt fyrir lækkunina. Til lengri tíma hefur bætt samkeppnishæfni Íslands undanfarin 15 ár einkum skýrst af miklum framförum í tveimur af fjórum meginþáttum úttektarinnar. Annars vegar skilvirkni hins opinbera, sem hefur hækkað um 26 sæti yfir tímabilið. Hins vegar í skilvirkni atvinnulífs, sem hefur hækkað um 18 sæti yfir sama tímabil. Ísland stendur enn vel þegar kemur að samfélagslegum innviðum, þrátt fyrir að hafa lækkað um 8 sæti frá árinu 2010,“ segir í tilkynningunni frá Viðskiptaráði. Leggja fram tillögur Viðskiptaráð leggur fram fjórar tillögur sem miða að því að bæta samkeppnishæfni Íslands. „Í fyrsta lagi er lagt til að stjórnvöld auki aðhald í rekstri ríkisins, lækki skuldir og minnki þannig vaxtagjöld. Ríkissjóður dragi sömuleiðis úr skuldabyrði sinni með eignasölum og ráðist verði í átak í opinberum fjármálum sem myndi leiða til lægri verðbólgu og vaxta. Í öðru lagi er lagt til að gera breytingar á skattaumhverfinu. „Með því að draga úr útgjöldum má skapa svigrúm til þess að lækka skatta. Það myndi hafa jákvæð áhrif á hvata til verðmætasköpunar, sem eykur fjárfestingu og framleiðslu í hagkerfinu.“ Í þriðja lagi væri hægt að afnema viðskiptahindranir, einfalda regluverk og bæta umgjörð í samkeppnismálum og gætu stjórnvöld þannig stuðlað að auknu vöruúrvali og samkeppni hér á landi. Í fjórða lagi er svo komið inn á að stjórnvöld geti liðkað sérstaklega fyrir erlendri fjárfestingu í gegnum einfaldara regluverk og skilvirkt eftirlit. Slíkt myndi tryggja bætt aðgengi að fjármagni, aukinn þekkingarflutning til landsins og bætt lánakjör.
Efnahagsmál Mest lesið Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Viðskipti erlent Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Viðskipti innlent Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Viðskipti innlent Innkalla svefntæki fyrir ungbörn vegna brunahættu Neytendur Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Fleiri fréttir Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Sjá meira