Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Rakel Sveinsdóttir skrifar 17. júní 2026 08:02 Jákvæðu áhrif sumarfrís mælast hratt fyrstu dagana og ná hámarki á áttunda degi miðað við hollenska rannsókn sem gerð var hér um árið. En kannski að spurningin snúist ekki um dagafjöldann, heldur það hvernig við erum að upplifa fríið okkar? Vísir/Vilhelm Púsluspilið fyrir sumarið er hafið. Sumir miða við að taka sér nokkur stutt frí, lengja helgar eða taka dag og dag. Sumir taka út frí í nokkrar vikur. Sumir skipta á milli sín skólafrístíma barna og fleira mætti telja til.
Allir hlakka til og öll vitum við að gott sumarfrí er gulls ígildi. Það hvernig best er að skipuleggja sumarfríið sitt er alls ekkert meitlað í stein. Því þessu tengt er bæði hægt að finna niðurstöður rannsókna sem rökstyðja að stutt frí geti gert sama gagn og lengri frí og eins má gera ráð fyrir að fólk upplifi á mismunandi hátt hvers konar útfærsla er „besta“ fríið. Niðurstöður hollenskrar rannsóknar sýna að sumarfríin okkar ná hápunkti eins og gengur og gerist í öðru. Og að samkvæmt þessari rannsókn mælast jákvæðu áhrif sumarfrís mest á áttunda degi frísins. Þetta þýðir ekki að áttundi dagurinn sé endilega skemmtilegasti dagurinn. Heldur einfaldlega sá dagur þar sem jákvæðu áhrif frísins mælast mest. Tekið skal fram að hér var eingöngu verið að rannsaka áhrif sumarfría á heilsu og vellíðan fólks, miðað við að sumarfrí væri tekið í það minnsta í tvær vikur samfleytt. Jákvæðu áhrifin mældust hratt fyrstu dagana, náðu hámarki á áttunda degi en minnkuðu fljótt þegar fólk sneri aftur til vinnu. Innan fyrstu vinnuvikunnar var vellíðan flestra aftur orðin svipuð og hún var fyrir fríið. Að ná sem mestu út úr fríinu snýst þó reyndar ekki um dagafjöldann. Heldur það hvernig fólk upplifir fríið sitt. Til dæmis sýna niðurstöður rannsóknarinnar að þátttakendur sem upplifðu meiri slökun, ánægju, frelsi til að stjórna tíma sínum sjálfir og gátu notið augnabliksins upplifðu mestan ávinning af fríinu. Góður svefn tengdist einnig bættri líðan. Kannski er því mikilvægasta spurningin ekki hversu langt sumarfríið er, heldur hvort okkur tekst í raun að vera í fríi á meðan það stendur yfir?
Geðheilbrigði Heilsa Tengdar fréttir Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni Við erum oft svolítið upptekin af því að klára allt sem þarf að klára fyrir sumarfrí. Og fáum síðan jafnvel samviskubit yfir því ef okkur tekst ekki að klára allt á verkefnalistanum áður en við förum. 3. júlí 2025 07:03 Hugmyndir til að hrista af okkur sumarletina í vinnunni Yfir hásumarið þekkja það margir að finnast hálf tómlegt í vinnunni. Margir vinnufélagar í sumarfríi og við ýmist nýkomin úr fríi eða að bíða eftir langþráðu sumarfríi. 11. júlí 2022 07:01 Gott að muna fyrir sumarfríið Það eru margir að hefja sumarfríið sitt núna. Og stór ferðahelgi framundan. Nú er bara að semja við veðurguðina um gott veður en eins er ágætt síðasta daginn í vinnunni að klára það helsta fyrir fríið. 1. júlí 2022 07:01 Það sem gerir sumarfríið þitt svo gott fyrir vinnuveitandann Eitt það besta sem þú getur gert fyrir vinnuveitandann þinn er að njóta sumarfrísins. 8. júní 2020 10:00 Vont veður ömurlegt nema fyrir vinnuveitendur Veður hefur áhrif á okkur. Við erum í sólskinsskapi á sumrin þegar veðrið er gott og sólin skín. En finnst kannski erfiðara að bretta upp ermar og gera hlutina þegar veðrið er vont, myrkur, snjór og kuldi eins og einkennt hefur veðrið síðustu daga. 10. febrúar 2023 07:00 Mest lesið Að fólk skilji garðhúsgagnabúslóðirnar eftir heima Neytendur Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Atvinnulíf Milla ætlar í formanninn Viðskipti innlent Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Viðskipti innlent ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Viðskipti innlent Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Viðskipti innlent Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Viðskipti innlent Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Viðskipti innlent Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Viðskipti innlent LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sumarfrísdagur númer átta mesta sælan Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Sjá meira
Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni Við erum oft svolítið upptekin af því að klára allt sem þarf að klára fyrir sumarfrí. Og fáum síðan jafnvel samviskubit yfir því ef okkur tekst ekki að klára allt á verkefnalistanum áður en við förum. 3. júlí 2025 07:03
Hugmyndir til að hrista af okkur sumarletina í vinnunni Yfir hásumarið þekkja það margir að finnast hálf tómlegt í vinnunni. Margir vinnufélagar í sumarfríi og við ýmist nýkomin úr fríi eða að bíða eftir langþráðu sumarfríi. 11. júlí 2022 07:01
Gott að muna fyrir sumarfríið Það eru margir að hefja sumarfríið sitt núna. Og stór ferðahelgi framundan. Nú er bara að semja við veðurguðina um gott veður en eins er ágætt síðasta daginn í vinnunni að klára það helsta fyrir fríið. 1. júlí 2022 07:01
Það sem gerir sumarfríið þitt svo gott fyrir vinnuveitandann Eitt það besta sem þú getur gert fyrir vinnuveitandann þinn er að njóta sumarfrísins. 8. júní 2020 10:00
Vont veður ömurlegt nema fyrir vinnuveitendur Veður hefur áhrif á okkur. Við erum í sólskinsskapi á sumrin þegar veðrið er gott og sólin skín. En finnst kannski erfiðara að bretta upp ermar og gera hlutina þegar veðrið er vont, myrkur, snjór og kuldi eins og einkennt hefur veðrið síðustu daga. 10. febrúar 2023 07:00
Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Viðskipti innlent
Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Viðskipti innlent