82 ár frá stofnun lýðveldisins: Gleymum ekki sögu okkar Anton Guðmundsson skrifar 17. júní 2026 08:02 Í dag, 17. júní 2026, eru 82 ár liðin frá því að Ísland varð sjálfstætt lýðveldi. Það var staðfest á Þingvöllum við Lögberg þann 17. júní 1944. Á þessum degi minnumst við þeirra kynslóða sem börðust af þrautseigju, fórnfýsi og trú á eigin þjóð og lögðu sitt af mörkum til að tryggja Íslandi fullt sjálfstæði. Oft er sagt að einn mannsaldur nægi til að gleyma. Það á jafnt við um listir, menningu, sögur og gildi. Að mínu mati virðist slíkt hafa gerst hjá mörgum þeirra sem sitja nú á Alþingi og fara með stjórn landsins. Þar virðist sjálfsagt að ræða framsal mikilvægra valdheimilda til yfirþjóðlegra stofnana Evrópusambandsins. Evrópusambandið er yfirþjóðlegt samstarf ríkja. Það felur í sér að ákveðnar ákvarðanir eru teknar af sameiginlegum stofnunum sambandsins í stað þess að hvert aðildarríki taki þær sjálfstætt. Íslensk stjórnskipan byggir á þrískiptingu ríkisvaldsins. Alþingi fer með löggjafarvaldið, ríkisstjórnin með framkvæmdarvaldið og dómstólar með dómsvaldið. Alþingi hefur lengi verið talið ein elsta stofnun sinnar tegundar í heiminum og á rætur að rekja til stofnunar þess á Þingvöllum árið 930. Þar var Lögberg miðpunktur þinghalds og kom fólk saman ár hvert til að fjalla um lög, leysa úr ágreiningi og kveða upp dóma. Þótt höfðingjar sætu þingið var almenningi heimilt að fylgjast með störfum þess, sem undirstrikar mikilvægi opinberrar þátttöku í stjórnskipun landsins allt frá upphafi. Æðsti embættismaður þingsins var lögsögumaðurinn, sem bar ábyrgð á að kunna lög landsins utanbókar og flytja þau fyrir þingheimi. Hann fór með einn þriðja hluta laganna ár hvert. Þinghaldi lauk að jafnaði eftir tvær vikur fram til ársins 1271, þegar breytingar voru gerðar á skipulagi þess. Með samþykkt Gamla sáttmála á árunum 1262–1264 gengu Íslendingar Noregskonungi á hönd. Það hafði í för með sér róttækar breytingar á stjórnskipun landsins. Til þess að lög Alþingis öðluðust gildi þurfti samþykki konungs, sem jafnframt fór með framkvæmdarvaldið. Embætti lögsögumanns var lagt niður og í stað þess komu tveir lögmenn. Smám saman færðist meginhlutverk Alþingis frá löggjöf yfir í dómsstörf og á síðari hluta 17. aldar var löggjafarvaldið orðið alfarið í höndum Danakonungs. Þann 6. júní 1800 ákvað konungur að leggja Alþingi niður og Landsyfirréttur í Reykjavík tók við hlutverki Lögréttu sem æðsti dómstóll landsins. Sá dómstóll starfaði til ársins 1920 þegar Hæstiréttur Íslands var stofnaður. Ákveðið var þó að endurreisa Alþingi. Þann 8. mars 1843 kvað konungur upp úrskurð þess efnis og 1. júlí 1845 kom þingið saman á ný, þó aðeins sem ráðgjafarþing. Kosningaréttur var þá afar takmarkaður og bundinn við efnamikla karlmenn, sem námu aðeins um fimm prósentum þjóðarinnar. Með stjórnarskránni árið 1874 fékk Alþingi aftur formlegt löggjafarvald. Konungur hélt þó neitunarvaldi sem hann beitti ítrekað. Þessi þróun markaði upphaf þess að Alþingi hóf að endurheimta stöðu sína sem miðlæg valdastofnun Íslendinga, þótt full sjálfstjórn kæmi ekki til sögunnar fyrr en síðar. Uppruna íslenskrar stjórnskipunar í nútímaskilningi má rekja til stjórnarskrárinnar frá 1874. Hún var sett í kjölfar langrar togstreitu milli Íslendinga og danskra stjórnvalda um stjórnskipulega stöðu landsins. Þrátt fyrir að Ísland væri í ríkjasambandi við Danmörku átti landið sér sérstaka löggjafarhefð sem dönsk stjórnvöld urðu að taka tillit til. Stór þáttaskil urðu með þjóðfundinum árið 1851 þegar Íslendingar höfnuðu tilraunum Dana til að styrkja ríkislega einingu. Eftir margra ára deilur setti danska þingið hins vegar einhliða svokölluð stöðulög árið 1871 sem skilgreindu Ísland sem óaðskiljanlegan hluta danska ríkisins, þó með sérstök landsréttindi. Þessi lög urðu grundvöllur stjórnarskrárinnar sem Kristján IX. Danakonungur veitti Íslendingum árið 1874. Stjórnarskráin tók aðeins til svokallaðra sérmála Íslands, en danska stjórnin hélt eftir forræði yfir utanríkismálum, hermálum og öðrum ríkismálum. Þrátt fyrir gagnrýni á tilurð hennar varð hún mikilvægur áfangi á leið þjóðarinnar til aukins sjálfstæðis. Árið 1904 fengu Íslendingar heimastjórn í sérmálum sínum. Þá var skipaður íslenskur ráðherra með aðsetur í Reykjavík sem bar ábyrgð gagnvart Alþingi. Með þeirri breytingu hófst í reynd þingræði á Íslandi. Árið 1915 voru samþykktar umfangsmiklar breytingar á stjórnarskránni. Kosningaréttur var rýmkaður og konur fengu kosningarétt. Jafnframt var konungkjöri þingmanna hætt og heimilað að fjölga ráðherrum. Þannig styrktist staða Alþingis enn frekar. Næsti stóri áfangi í stjórnskipun Íslands kom með sambandslögunum árið 1918. Með þeim var Ísland viðurkennt sem fullvalda ríki í konungssambandi við Danmörku. Danakonungur var áfram þjóðhöfðingi beggja ríkja en Ísland hafði sjálfstæði í nær öllum innri málum sínum. Á stríðsárunum urðu aðstæður þannig að endurskoðun sambandslaganna varð óhjákvæmileg. Alþingi samþykkti árið 1941 að ekki yrði unnið að endurnýjun þeirra. Þess í stað lýsti þingið yfir vilja sínum til að stofna íslenskt lýðveldi þegar aðstæður leyfðu. Þegar Þjóðverjar hernámu Danmörku árið 1940 rofnuðu í reynd tengsl ríkjanna. Íslendingar tóku þá sjálfir yfir konungsvaldið og fólu ríkisstjóra, kjörnum af Alþingi, að fara með það tímabundið. Árið 1944 var síðan ákveðið að slíta sambandinu formlega og stofna lýðveldi. Í þjóðaratkvæðagreiðslu studdi yfirgnæfandi meirihluti kjósenda bæði sambandsslitin og nýja stjórnarskrá. Meginbreytingin var sú að embætti forseta Íslands kom í stað konungs. Á endanum var ákveðið að forsetinn skyldi kjörinn af þjóðinni. Með því var forseta veitt sjálfstæðara umboð gagnvart Alþingi en áður hafði þekkst. Sú breyting sem hafði hvað mest áhrif á valdaskipan landsins var þó 26. grein stjórnarskrárinnar. Hún veitti forseta málskotsrétt og tryggði að ef forseti synjaði lögum staðfestingar skyldu þau fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Með þessu var komið á mikilvægu aðhaldi milli Alþingis og þjóðkjörins forseta. Nú hefur meirihluti Alþingis samþykkt að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu þann 29. ágúst 2026. Að mínu mati snýst þessi umræða ekki aðeins um efnahagsmál eða alþjóðlegt samstarf. Hún snýst um það hvort við séum tilbúin að færa vald sem íslenska þjóðin hefur byggt upp í meira en þúsund ár frá lýðræðislega kjörnum stofnunum landsins til yfirþjóðlegra stofnana. Þess vegna er þessi umræða ekki aðeins spurning um Evrópusambandið heldur einnig um fullveldi Íslands, sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar og þá stjórnskipan sem forfeður okkar lögðu grunn að. Kæru Íslendingar. Gleymum ekki sögu okkar og uppruna. Gleymum ekki því að við erum Íslendingar og að við erum frjáls og fullvalda þjóð vegna þess að forfeður okkar höfðu trú á fólkinu og landinu okkar fagra. Verjum fullveldi og sjálfstæði lands og þjóðar og segjum nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst með hagsmuni komandi kynslóða að leiðarljósi og af virðingu fyrir þeim forfeðrum sem börðust fyrir sjálfstæði Íslands. Ég óska öllum Íslendingum til hamingju með daginn, Þjóðhátíðardag okkar Íslendinga Höfundur er stjórnsýslufræðingur og oddviti Framsóknarflokksins í Suðurnesjabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Anton Guðmundsson Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Skoðun Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun