Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. júní 2026 11:44 James Franco og Seth Rogen voru einu sinni bestu vinir og nánir samstarfsfélagar en frá því Franco var sakaður um kynferðislega áreitni árið 2018 hefur Rogen skorið á tengslin milli þeirra. Getty Leikarinn Seth Rogen segist ekki hafa talað við sinn gamla vin, James Franco, í áraraðir og hann hafi ekki í hyggju að vinna með honum frekar. Þeir hófu ferilinn saman í sjónvarpsþáttunum Freaks and Geeks og unnu náið saman við fjölda mynda. Í MeToo-bylgjunni stigu fram fimm konur og sökuðu Franco um kynferðislega áreitni sem gerði út af við feril hans í Hollywood og greinilega einhver vinasambönd.
Rogen og Franco byrjuðu báðir feril sinn í skammlífu unglingaþáttunum Freaks and Geeks (1999) undir handleiðslu gamanleikstjórans Judd Apatow. Þar urðu þeir hluti af grínhópi sem kallaðist the Frat Pack (með mönnum á borð við Will Ferrell, Steve Carell, Jack Black, Seth Rogen, Paul Rudd og Vince Vaughn). Eftir að hafa leikið báðir í þónokkrum myndum Apatow gerðu þeir Franco og Rogen nokkrar vinsælar grínmyndir saman, má þar nefna Pineapple Express (2008), This Is the End (2013), The Interview (2014) og The Disaster Artist (2017). Árið 2018 stigu fram fimm konur og sögðu hann hafa áreitt þær kynferðislega meðan hann kenndi við Tisch-listaháskólann í New York. Franco neitaði ásökununum og útkljáði málið með tveggja milljón dala greiðslu utan dómstóla árið 2021. Ekki talað við Franco lengi Eftir þetta má segja að bransinn hafi hafnað Franco sem hefur aðallega leikið í evrópskum myndum síðustu ár. Þá fjarlægðist Seth Rogen leikarann og ítrekaði afstöðu sína í viðtali við New York Times um helgina. Þar var hann spurður út í samband þeirra tveggja eftir að ásakanirnar komu fram. „Ég held í hreinskilni sagt að blæbrigði þess séu of persónuleg til að ég geti farið út í það núna. Þetta er mjög persónulegt. Það er opinberi hluti þess, sem ég hef talað um, og afstaða mín er sú sama og hún hefur verið,“ sagði Rogen um málið. James Franco og Seth Rogen gerðu fjölmargar myndir saman.Vísir/AFP „Ég hef ekki unnið með honum í mörg ár. En persónulega hliðin er svo flókin og snýr að fólki sem ég veit ekki hvort ég ætti að vera að draga inn í þetta. Ég veit ekki hvað ég myndi græða á að kafa ofan í þetta. Ekkert hefur breyst síðan ég talaði um þetta allt saman, ég hef ekki unnið með honum lengi og ætla ekkert að gera það,“ sagði hann jafnframt. Franco ræddi um samband sitt og Rogen við Variety á kvikmyndahátíðinni í Róm haustið 2024. „Ég hef ekki talað við Seth. Ég elska Seth, við áttum tuttugu frábær ár saman en það er greinilega búið,“ sagði Franco sem sagðist hafa reynt að halda sambandi við Seth. „Ég hef sagt honum hvað hann er mér mikilvægur.“
Bíó og sjónvarp Hollywood MeToo Mest lesið Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Lífið Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Lífið Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Bíó og sjónvarp 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Bíó og sjónvarp Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Fleiri fréttir Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira