Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Freyja Þórisdóttir skrifar 11. júní 2026 23:17 Þessi mynd sýnir nýfundin steingerð hvalbein djúpt neðansjávar í suðausturhluta Indlandshafs, á Diamantina-brotabeltinu. AP Í suðaustanverðu Indlandshafi á um sjö kílómetra dýpi hafa vísindamenn uppgötvað eitthvað sem lýst er sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“. Þar hafa þegar verið taldar hátt í fimm hundruð hvalaleifar á svæði sem teygir sig yfir um tólf hundruð kílómetra.
Í vísindagrein á vef Nature.is lýsa vísindamennirnir, sem eru frá Kína, Ítalíu og Nýja Sjálandi, fundi sínum. Hópurinn hefur komið búnaði og myndavélum niður á hafsbotninn til að taka myndir af steingervingunum. Danska ríkisútvarpið, hefur fjallað um fundinn en rætt var við Morten Tange Olsen, dósent við Globe Institute í Kaupmannahafnarháskóla. Hann sagði uppgötvunina bæði ánægjulega og athyglisverða. Því það sé ekki aðeins fjöldi hvalanna sem sé áberandi. Við nánari rannsókn á beinunum hafa vísindamenn getað ályktað að sumar leifarnar megi rekja allt að fimm milljónir ára aftur í tímann. „Þess vegna er það sérstakt að leifarnar séu svo vel varðveittar,“ er haft eftir Olsen. Ef hvalir reki ekki á land á strönd þegar þeir deyja, þá sökkva þeir til botns. Þar liggi þeir á hafsbotninum og séu veislumáltíð fyrir dýrin sem lifa niðri á botni hafsins. Varpað ljósi á þróun tegunda Fundirnir á hvalabeinagrindunum geta mögulega veitt nýja þekkingu og innsýn í tegundir, bæði núlifandi og útdauðar. Samkvæmt Olsen á uppgötvunin að geta sagt eitthvað til um hvernig tegundafjölbreytnin hefur verið hér áður fyrr, langt, langt aftur í tímann. Hann útskýrir einnig að vísindamenn hafi ekki áður rannsakað hafsbotninn á svo miklu dýpi. Þess vegna finnist honum áhugavert að fylgjast með því hvort haldið verði áfram að rannsaka mjög djúp svæði heimshafanna til að komast að því hvort þessi stóri „hvalakirkjugarður“ sé einstakur eða hvort fleiri slík tilfelli finnist. „Hafið er jú stórt og það er stór hluti af plánetunni okkar,“ segir Olsen að lokum.
Kína Ítalía Nýja-Sjáland Hafið Hvalir Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira