„Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ Sigurgeir Þorkelsson skrifar 10. júní 2026 21:22 Ný kosnir Alþingismenn mæta á Alþingi í kennslu, Pawel Bartoszek Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir að aðild að Evrópusambandinu myndi bæta kjör almennings verulega með lægra matvælaverði og lægri vöxtum. Atkvæðagreiðslan í ágúst snúist ekki um aðild heldur hvort hefja eigi aðildarviðræður. „
Vextir húsnæðislána á Íslandi eru níu til tíu prósent á meðan þeir eru þrjú til fjögur prósent á evrusvæðinu,“ sagði Pawel í eldhúsdagsumræðum sem fram fóru á Alþingi í kvöld. Pawel segir að heimilin skuldi um 3000 milljarða í fasteignalánum. Varlega áætlað væru þetta því hundrað milljarðar króna á ári sem íslensk heimili væru nú að ofgreiða. „Það er líka staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði. Verð á matvælum lækkaði um fjórðung í Svíþjóð og Finnlandi þegar þau gengu í ESB. Niðurfelling tolla og aukin samkeppni skilaði sér beint til neytenda. Á Íslandi, sem valdi EES-leiðina, gerðist þetta ekki.“ Þetta hafi komið fram í skýrslu Hagfræðistofnunar. Nýr heimur vopnvæddra viðskipta Pawel segir að nú þegar viðskipti hafi verið vopnvædd og ríki beiti tollum í pólitískum tilgangi sé vernd að sækja í viðskipta- og tollabandalag líkt og ESB. „Við erum í NATO til að tryggja hernaðarlegar varnir okkar og við eigum að vera í Evrópusamstarfi til að tryggja þær efnahagslegu.“ Samningurinn svari spurningum Pawel segir eðlilegar spurningar uppi um stærstu atvinnugreinar landsins í sambandi við aðild. „Þeim spurningum verður ekki svarað nema með samningaviðræðum. Önnur lönd hafa samið um sérlausnir… Samningsstaðan er sterk og skilningur á aðstæðum okkar er sannarlega til staðar.“ „Við eigum því að láta á þetta reyna. Fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu. Við skulum því ganga til þessa verkefnis hnarreist og stolt. Og þess vegna eigum við að segja já þann 29. ágúst.“
Alþingi Viðreisn Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar Innlent Sjö ára dómur Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira