Glódís Perla: Líður eins og þær séu 14 á móti 11 Gunnar Egill Daníelsson skrifar 9. júní 2026 22:34 Glódís Perla Viggósdóttir í leiknum í kvöld. Vísir/Anton Glódís Perla Viggósdóttir fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta var að vonum svekkt eftir að Ísland tapaði stórt fyrir Spáni, 1-6, í lokaumferð A3 riðils í undankeppni HM 2027 á Laugardalsvelli í kvöld. „
Þetta er svekkjandi. Auðvitað er maður hundfúll. Það er aldrei gaman að skíttapa. En svo veit maður líka hvað þær eru öflugar og við vorum ekki að gera nógu vel í að hindra þær í að spila sinn leik og þá fór sem fór,“ sagði Glódís Perla við fréttamenn eftir leik. Spurð nánar út í leikinn sagði hún það sérlega vont að hafa fengið tvö mörk á sig seint í fyrri hálfleik. „Við vissum auðvitað að þetta yrði brekka fyrir leik og svo fengum við á okkur mark eftir fimm mínútur. Þá vissum við strax að þetta yrði ennþá erfiðara. Svo náðum við ágætum tökum á leiknum í einhvern hálftíma. En svo er auðvitað hundfúlt að fá á sig tvö mörk rétt fyrir hálfleik og það er eitthvað sem á ekki að gerast hjá okkur. Þetta var drullusvekkjandi. Svo ætluðum við að núllstilla okkur í hálfleik og koma betur inn í þetta, sýna meira fyrir hvað við stöndum. Við náðum því kannski á einhverjum köflum, einhverjar nokkrar mínútur hér og þar, en heilt yfir var þetta ekki nógu gott hjá okkur.“ Besta landslið sem Glódís Perla hefur mætt Glódís Perla fer ekki ofan af því að Spánn sé með besta landslið sem hún hefur mætt á löngum landsliðsferli. „Já, ég myndi segja það. Þær eru heimsklassa í því sem þær gera. Manni líður eins og þær séu 14 inn á, ekki 11, þannig að þetta er snúið. Þegar maður er ekki að ná að telja út og klukka þær og fara í þennan líkamlega leik sem við viljum spila þá spila þær bara í kringum hann og maður nær aldrei að klukka þær. Það var svolítið það sem gerðist í dag fannst mér,“ sagði Glódís Perla. Ísland hafði ekki að neinu að keppa í leiknum en landsliðsfyrirliðinn taldi það ekki hafa spilað inn í að tapið hafi orðið þetta stórt. „Nei, ég held ekki fyrir okkur. Það var náttúrlega mikið undir fyrir þær. Með sigri voru þær komnar beint á HM. Við förum kannski aldrei að spila á móti Spáni og búumst við að vinna en auðvitað förum við í leiki og viljum fá góða frammistöðu. Okkur langar að sýna hvað við getum, að við getum staðið í þessum liðum og gert vel en við náðum því alls ekki í dag. Það er gríðarlega svekkjandi,“ sagði hún. Veit ekki alveg hvernig umspilið virkar Ísland hafnar í þriðja sæti riðilsins og fer í umspil í október þar sem liðið mætir Ungverjalandi, Grikklandi, Rúmeníu, Hvíta-Rússlandi, Kósovó, Litáen, Króatíu eða Kasakstan. Spurð hvort hún væri bjartsýn á möguleika Íslands í umspilinu sagði Glódís Perla Viggósdóttir að endingu: „Ég ætla að vera alveg hreinskilin, ég veit ekki alveg hvernig þetta umspil virkar! Ég skil þetta ekki alveg en auðvitað vill maður vera bjartsýnn. Það er kannski erfitt akkúrat núna því maður er svolítið langt niðri eftir þennan leik. En ég veit alveg hverju þessi hópur býr yfir og hverju við getum náð út úr okkur á réttum dögum. Við náðum ekki þeim degi í dag. Við verðum að fara til baka og horfa á leikinn og læra af þessu. Oftast reynir maður að taka það sem maður gerði vel en í dag held ég að við séum að fara að taka með okkur það sem við gerðum illa og læra af því. Vonandi mætum við sem ennþá betra landslið í næsta verkefni.“
HM 2027 í Brasilíu Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Fleiri fréttir Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Sjá meira