Golf

Risa af­rek Gunn­laugs og saman­burður við þá bestu áhuga­verður

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnlaugur Árni er á leið á sitt fyrsta risamót í golfi. Aðeins tvítugur er kappinn og hefur hann komist hærra á heimslista áhugakylfinga en nafntogaðir kylfingar á borð við Scottie Scheffler, nú efsta kylfinginn á heimslistanum, og Ludvig Aberg þegar þeir voru á sama aldri og Gunnlaugur.
Gunnlaugur Árni er á leið á sitt fyrsta risamót í golfi. Aðeins tvítugur er kappinn og hefur hann komist hærra á heimslista áhugakylfinga en nafntogaðir kylfingar á borð við Scottie Scheffler, nú efsta kylfinginn á heimslistanum, og Ludvig Aberg þegar þeir voru á sama aldri og Gunnlaugur. Vísir/Samsett

Gunn­laugur Árni Sveins­son tryggði sér í fyrradag, fyrstur Ís­lendinga, sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í karla­flokki eftir bráða­bana á úrtökumóti í Ohio í Bandaríkjunum. Risastór tíðindi sem koma þó ekki einum helsta golfsér­fræðingi landsins á óvart. Þetta sé ekki endastöð hjá Gunn­laugi, bara byrjunin.

U.S. Open er eitt af fjórum risamótum ársins í golf­heiminum þar sem að 66 bestu kylfingum í heimi er boðið að taka þátt. Þá reyndu 714 kylfingar að vinna sér inn sæti í gegnum úrtökumót.

Gunn­laugur Árni var einn af þeim fjörutíu og þremur kylfingum sem tryggðu sér sæti á risamótinu í gegnum úrtökumótið. Á sínum stutta ferli til þessa er hann kominn lengra en þekktir kylfingar þegar þeir voru á sama aldri og Ís­lendingurinn.

 „Hve stórt er þetta? Ef við reynum að setja þetta í sam­hengi gagn­vart frægum nöfnum í heiminum. Gunn­laugur Árni er tvítugur. Hann er búinn að ná lengra heldur Ludvig Åberg og Viktor Hovland til dæmis þegar að þeir voru áhuga­menn. Hann hefur náð hæst áttunda sæti á heims­lista áhuga­manna,“ segir golfsérfræðingurinn Þorsteinn Hallgrímsson í samtali við íþróttadeild Sýnar en Gunnlaugur vermir nú sautjánda sæti listans.

Kemur ekki á óvart

„Ef við setjum þetta í samhengi þá var hann í apríl árið 2024 í sæti 1100. Sem segir okkur hvað þetta hefur gerst hjá honum. Scotti­e Schef­fler. Efsti maður heims­listans. Þegar að hann var tvítugur þá hafði hann ekki náð svona hátt á heims­lista áhuga­manna. Þetta er, í sam­hengi í golf­heiminum, alveg gríðar­lega stórt.“

Scheffler færir hér Rory McIlroy græna jakkann fyrir sigur á Masters. Það hefur ekki vafist fyrir köppunum tveimur að vinna risamótin. Nú verður Gunnlaugur Árni á sama móti á þeir en Scheffler var eitt sinn á þeim stað sem Íslendingurinn finnur sig nú á.Vísir/getty

Eftirtektarverður árangur en þess ber að geta að ferill Scottie Scheffler átti heldur betur eftir að fara á flug og risatitlar hrannast inn. Hann, líkt og Gunnlaugur Árni, vann sér inn þátttökurétt á sínu fyrsta U.S. Open móti tvítugur, nokkrum dögum fyrir 21 árs afmæli sitt. Ferill Åberg er ekki kominn eins langt en tvö mót hefur hann unnið á PGA mótaröðinni.

Og Gunnlaugur er bara tvítugur.

„Hann er bara tvítugur. Hann á rosa­lega bjarta framtíð fyrir sér og við sem þekkjum til og fylgjumst með. Þetta kemur okkur ekkert á óvart. Þetta hefur verið svolítið tíma­spursmál hvenær hann myndi stíga upp og spila á risamóti. Auðvitað var maður náttúru­lega spenntur í fyrrakvöld. En kom mér þetta á óvart? Nei.“

Eitt erfiðasta risamótið að komast inn á

Gunn­laugur Árni þarf fljótt að átta sig á veru­leikanum því U.S. Open hefst í næstu viku í beinni út­sendingu á Sýn Sport. Risamótið er eitt það erfiðasta sem fyrir finnst í golf­heiminum.

„Uppsetningin á US Open er yfirleitt kvikindisleg. Völlurinn er erfiður, karginn er hækkaður mikið, brautirnar þrengdar og völlurinn gerður mjög krefjandi. Þetta er eitt erfiðasta risamótið að komast inn á. Að komast inn á þetta mót er stórkostlegt afrek. En það kæmi mér ekki á óvart ef hann myndi gera vel í mótinu sjálfu.“

Hvaða þýðingu myndi það hafa?

„Ef hann spilar vel á U.S. Open, og nú erum við komnir svolítið fram úr okkur, en þá er ekkert ósennilegt að hann fái boð á mót á PGA mótaröðinni. Þetta styrkir stöðu hans sem áhugakylfings. Það eru fleiri sem fylgjast með honum. Það eru sextán áhugakylfingar af þessum 144 kylfingum sem taka þátt á U.S. Open í ár. Hann er einn af þeim. Það verða allra augu á honum.“

Gunnlaugur Árni er að ná frábærum árangriGetty/Aitor Alcalde

U.S. Open er eitt stærsta skrímslið í golfheiminum.

„Það er ekki hægt að bera þetta saman við venjulegt mót á PGA mótaröðinni. Spennustigið er margfalt hærra. Þetta eru þau mót þar sem að allra bestu kylfingar í heimi stefna á að vera á sínu besta golfi.“

Bara að byrja

Gunnlaugur Árni hefur verið að standa sig afspyrnu vel í háskólagolfinu í Bandaríkjunum með liði LSU. Kappinn er með hausinn skrúfaðan rétt á. 

„Svo má ekki gleyma því að metnaðurinn liggur alltaf fyrst og fremst hjá íþróttamanninum sjálfum. Það vantar ekki hjá Gulla hvað hann hefur verið duglegur að æfa. Það þarf ekki að segja honum að fara æfa. Þurfti ekki að segja honum þegar að hann var í framhaldsskóla að vakna klukkan fimm á morgnanna og fara æfa. Hann bara gerði það.“

„Hann er bara á vegferð. Þetta er engin endastöð hjá honum. Hann er að byrja. Hann er með stór markmið og hann á svo sannarlega að vera með stór markmið. Miðað við hve góður hann er og hvað umhverfið er gott í kringum hann. Við eigum eftir að sjá mikið frá Gunnlaugi Árna.“

U.S. Open hefst á fimmtudaginn í næstu viku og fer fram á Shinnecock Hills Golf Club vellinum í Southampton í New York fylki. Sýnt verður beint frá mótinu á Sýn Sport. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×