Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 7. júní 2026 14:32 „Það breytir samt ekki þeirri stöðu að þrátt fyrir að félagið sé gríðarlega mikilvægt þá er sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa. Mikilvægi bjargar ekki félögum, það er bara sjálfbær rekstur.“ Vísir/vilhelm Sú staðreynd að Icelandair sé líklega mikilvægasta fyrirtæki landsins mun ekki bjarga félaginu að sögn fyrrverandi forstjóra Kviku. Sjálfbær rekstur sé það sem máli skiptir. Fyrrverandi flugrekstrarstjóri félagsins segir reksturinn erfiðan en ekki kominn á vonarvöl.
Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku sendi flugmönnum Icelandair tóninn í vikunni með pistli þar sem hann skrifaði svo eftirminnilega að maður mjólki ekki dauða kú. Mikilvægi bjargi ekki félögum Hann mætti í Sprengisand á Bylgjunni í morgun þar sem hann sagði ljóst að Icelandair væri líklega mikilvægasta fyrirtæki landsins. Félagið fljúgi mun fleiri ferðir til Norður Ameríku frá Íslandi heldur en önnur félög geri frá öllum Norðurlöndunum til samans og gegnir mikilvægum þætti í útflutningi sjávarafurða. „Það breytir samt ekki þeirri stöðu að þrátt fyrir að félagið sé gríðarlega mikilvægt þá er sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa. Mikilvægi bjargar ekki félögum, það er bara sjálfbær rekstur.“ Það þurfi að vera kaka á borðinu svo hægt sé að skipta henni Allir sem komi að félaginu hafi sameiginlega hagsmuni af því að félagið geti lifað. Aðspurður hvort flugmenn eigi að taka skellinn og vinna meira í erfiðu rekstrarumhverfi segir Marinó: „Þetta snýst kannski ekki endilega um þetta, hver eigi að gera hvað eða hvernig eigi að skipta kökunni. Punkturinn er bara að það þarf að vera kaka svo hægt sé að skipta henni. Það er númer eitt, tvö og þrjú. Mér finnst eins og oft er sagt og er alveg rétt að það er mjög auðvelt að benda á önnur flugfélög sem borga hærri kjör, allar stéttir á Íslandi geta gert það. Það eru örugglega hærri kjör hjá fjölmiðlamönnum úti í heimi heldur en hér. Ég var í banka, það voru miklu hærri kjör hjá bankamönnum úti í heimi heldur en hér. En við búum á Íslandi, með þeim kostum og göllum sem því fylgja.“ Hlusta má á umræðuna í heild sinni í spilaranum. Reksturinn óþarflega flókinn Jens Þórðarson, fyrrverandi flugrekstrarstjóri Icelandair segir stöðu félagsins alvarlega, hún sé þó ekki kominn á vonarvöl. „Spurningin sem er á allra vörum er: Hvernig ætlar félagið samt að fara að því að skila arðsemi á ný?“ Reksturinn sé óþarflega flókinn. Fimm flugvélategundir séu í rekstri sem sé vissulega millibilsástand. Aðkoma ríkisins? Aðspurður hvort það sé sjálfgefið að ríkið hlaupi undir bagga með félaginu segir Marinó um lykilspurningu að ræða. „Það er ekkert sjálfgefið að það komi annað í staðinn. Auðvitað verður flogið frá Íslandi en samgöngurnar hérna á Íslandi fyrir 400 þúsund manna eyju eru í engu samhengi við fjöldan sem býr hérna. Auðvitað munu erlend flugfélög fljúga hingað en það er langsótt að þau búi til viðskiptalíkan sem byggi á Keflavík sem tengipunkti. Það verður kannski á sumrin, og nú er ég svolítið að giska, þegar ég segi að það megi búast við fáum tugum fluga á dag á sumrin og mun minna á veturna.“ „Þannig Íslendingar, ef við ætlum að ferðast, þá værum við oft að fljúga til einhverra af þessu stóru borgum vestanhafs eða í Evrópu og fljúga þaðan áfram ef við ætlum eitthvert annað.“
Icelandair Sprengisandur Kjaramál Vinnumarkaður Ferðaþjónusta Samgöngumál Mest lesið „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Viðskipti innlent Daníel Þór frá Kviku til Reita Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Sjá meira