Viðskipti innlent

Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum

Árni Sæberg skrifar
Kjartan Smári Höskuldsson hefur verið framkvæmdastjóri Íslandssjóða frá árinu 2016.
Kjartan Smári Höskuldsson hefur verið framkvæmdastjóri Íslandssjóða frá árinu 2016. Íslandsbanki

Kjartan Smári Höskuldsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Íslandssjóða.

Í tilkynningu þess efnis á vef Íslandsbanka, eiganda Íslandssjóða, segir að hann hafi tekið við starfinu árið 2016 og síðan þá leitt félagið í gegnum mikilvægan vöxt og uppbyggingu. Íslandssjóðir séu í dag eitt stærsta og öflugasta sjóðastýringarfyrirtæki landsins, með 387 milljarða króna í stýringu í lok síðasta árs.

Kjartan Smári verði félaginu og starfsfólki þess áfram innan handar næstu mánuði til að tryggja farsæla yfirfærslu verkefna.

Halldóra Skúladóttir, forstöðumaður eignastýringar hjá Íslandssjóðum frá árinu 2017, taki við stöðu framkvæmdastjóra tímabundið þar til stjórn félagsins hefur ráðið nýjan framkvæmdastjóra. Hún búi yfir víðtækri reynslu af fjármálamarkaði og þekkingu á starfsemi félagsins. Áður hafi hún starfað sem forstöðumaður hjá Íslandsbanka og hafi alls 26 ára reynslu í greininni.

Halldóra tekur tímabundið við starfi framkvæmdastjóra Íslandssjóða.Íslandsbanki





Fleiri fréttir

Sjá meira


×