„Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 5. júní 2026 13:04 Ásrún Helga segir Grindvíkinga komna með nóg. Vísir/Samsett „Beinskeytt var yfirlýsingin en við erum bara komin þangað. Það er bara auga fyrir auga, tönn fyrir tönn,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar Grindavíkur.
Ný bæjarstjórn sendi í morgun frá sér harðorða yfirlýsingu þar sem hún sakaði stjórnvöld um að tefja vísvitandi fyrir endurreisn byggðar í Grindavík. Fundur með stjórn Fasteignafélagsins Þórkötlu hafi staðfest þann rökstudda grun bæjaryfirvalda að það sé ekki Þórkatla heldur stjórnvöld sem eru Þrándur í Götu Grindvíkinga. „Það er mat bæjarstjórnar að stjórnvöld séu vísvitandi að beita Þórkötlu fyrir sig til að tefja endurreisn Grindavíkur og koma í veg fyrir að fjölskyldur geti snúið heim,“ segir meðal annars í tilkynnignu bæjarstjórnar. Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar upplifir að stjórnvöld vilji kæfa eindreginn vilja bæjarbúa til að flytja aftur heim í fæðingu. Grindvíkingar vilji fá að greiða leigu af heimilum sínum en það sé ekki leyft, þá vilji Grindvíkingar fá að kaupa húsin aftur en ekkert bóli á útfærslu á endurkaupasamningum þrátt fyrir að Þórkatla hafi tilkynnt bæjarstjórn það á fundi í gær að þær liggi fyrir og hafi gert það um tíma. „Losið okkur úr þessri læstu hliðarlegu sem þið eruð búin að vera að með okkur í,“ segir Ásrún. Ungir Grindvíkingar hafi komið að máli við hana og sagst vilja koma heim og setjast þar að en eru uppiskroppa með þolinmæði. Þau séu að bugast undan töfum stjórnvalda sem beiti Þórkötlu vísvitandi fyrir sig til að koma í veg fyrir að Grindvíkingar komist heim.
Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Sjá meira