Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. júní 2026 12:24 Andrew prins var handtekinn í febrúar vegna samskipta sinna við Jeffrey Epstein. EPA/ADAM VAUGHAN Andrew Mountbatten-Windsor hafði þrjá bústaði í eigu bresku krúnunnar í útleigu þar til í apríl síðastliðnum og hafði af þeim leigutekjur sem runnu til hans en ekki krúnunnar. Þetta leiðir skýrsla bresku ríkisendurskoðunarinnar í ljós, sem ráðist var í vegna hneykslismálsins sem tengist vináttu Andrew við milljarðamæringinn og barnaníðinginn Jeffrey Epstein.
Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins um málið kemur fram að um sé að ræða fyrstu skýrslu sem gerð er um eignir í eigu krúnunnar í tuttugu ár. Skýrslan leiði þó ekki beinlínis í ljós að prinsinn hafi sýnt af sér saknæma háttsemi. Þar komi ekki fram hversu mikið hann fékk í leigutekjur, en heimildarmenn breska ríkisútvarpsins innan hallarinnar gefa í skyn að hann hafi leigt eignina til starfsfólks eða starfsfólks á eftirlaunum og að upphæðin hafi aðeins dugað til að standa straum af rekstrarkostnaði. Hver sem upphæðin var, rann hún til Andrew frekar en til krúnunnar, sem hefði greitt hagnað sinn aftur til ríkissjóðs. BBC hefur eftir talsmanni krúnunnar að hún fagni skýrslunni, sem mun liggja til grundvallar rannsókn fjárlaganefndar neðri deildar breska þingsins á eignum konungsfjölskyldunnar. Rannsóknin er tilkomin vegna þess að upp komst í október að Andrew hafi einungis greitt táknræna leigu fyrir Royal Lodge, setrið í Windsor sem Karl rak hann að lokum úr.
Bretland Kóngafólk Mál Andrésar prins Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira