Kalla eftir skýrari stefnu um ETS Birgir Olgeirsson skrifar 4. júní 2026 12:46 Þeir sem skrifa undir þessa ályktun eru: Árni Sigurðsson – JBT Marel Ásta Sigríður Fjeldsted – Festi Benedikt Gíslason – Arion Bjarni Benediktsson – SA Bogi Nils Bogason – Icelandair Erla Ósk Ásgeirsdóttir - Festa Fernando Costa – Alcoa Finnur Oddsson – Hagar Guðni Aðalsteinsson – Reitir Halldór Benjamín Þorbergsson – Heimar Hildur Einarsdóttir – Advania Hreiðar Már Hermannsson – Eik Hörður Arnarson – Landsvirkjun Jón Guðni Ómarsson – Íslandsbanki Jón Þorsteinn Oddleifsson - Bera Lilja Björk Einarsdóttir – Landsbankinn Sunna Björg Helgadóttir – Rio Tinto Sævar Freyr Þráinsson – OR Tómas Már Sigurðsson – HS orka Vilhelm Már Þorsteinsson – Eimskip Tuttugu stjórnendur úr íslensku atvinnulífi kalla eftir því að stjórnvöld beiti sér af meiri krafti fyrir íslenskum hagsmunum gagnvart viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir, ETS-kerfinu. Þeir segja mikilvægt að kerfið taki betur mið af sérstöðu Íslands, samkeppnishæfni fyrirtækja og að aukið gagnsæi verði um tekjur ríkisins af kerfinu.
Ályktun þess efnis var send umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, fjármálaráðuneytinu, utanríkisráðuneytinu, atvinnuvegaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu í morgun. Undir ályktunina skrifa átján forstjórar og stjórnendur úr hópi Loftslagsleiðtoga Festu, miðstöðvar um sjálfbærni, auk framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins og stjórnarformanns Festu. Þar á meðal eru forsvarsmenn Icelandair, Eimskips, Landsvirkjunar, Marel, Festi, Arion banka, Íslandsbanka, Landsbankans, Orkuveitunnar, HS Orku, Haga og fleiri stórra fyrirtækja. Í ályktuninni segir að árangursrík innleiðing og framkvæmd ETS-kerfisins á Íslandi snúist ekki aðeins um að draga úr losun, heldur einnig um að tryggja að umbreytingin styrki samkeppnishæfni, nýsköpun og verðmætasköpun til framtíðar. ETS-kerfið hefur verið mikið til umræðu hér á landi síðustu mánuði. Kerfið er eitt helsta stjórntæki Evrópusambandsins til að draga úr losun frá þeim geirum sem undir það heyra, meðal annars flugi, skipaflutningum og iðnaði. Þessar greinar skipta íslenskt samfélag miklu máli og undirritendur segja því brýnt að umsýsla, hagsmunagæsla, upplýsingagjöf og ráðstöfun opinberra tekna sem tengjast kerfinu sé skýrari en nú er. Í ályktuninni eru þrjú atriði sögð þurfa að móta næstu skref. Í fyrsta lagi kalla undirritendur eftir aukinni hagsmunagæslu Íslands á evrópskum vettvangi. Íslensk stjórnvöld og atvinnulíf þurfi að vinna betur saman að því að tryggja að íslensk sjónarmið, aðstæður og styrkleikar hafi áhrif á þróun ETS-kerfisins. Í öðru lagi leggja þau áherslu á að leitað verði varanlegra úrbóta á reglum kerfisins í stað skammtíma sérlausna eða tímabundinna undanþága. Þar er sérstaklega vísað til sérstöðu Íslands, svo sem landfræðilegrar legu, fjarlægðar frá mörkuðum og takmarkaðra valkosta í orkuskiptum í ákveðnum atvinnugreinum. Í ályktuninni segir að íslenskt atvinnulíf leggi áfram áherslu á metnaðarfullar loftslagsaðgerðir en að fyrirtæki hér á landi verði á sama tíma að geta keppt á alþjóðamörkuðum við raunhæf og sjálfbær samkeppnisskilyrði. Í þriðja lagi kalla undirritendur eftir auknu gagnsæi um tekjur ríkisins af ETS-losunarheimildum og hvernig þeim fjármunum er ráðstafað. Þau segja mikilvægt að almenningur og atvinnulífið hafi skýrari upplýsingar um hvernig tekjurnar nýtast í loftslagsverkefni. Þá vilja þau að aukin áhersla verði lögð á markvissar fjárfestingar í verkefnum sem styðji fyrirtæki innan ETS-kerfisins við að ná losunarmarkmiðum sínum og stuðli um leið að því að Ísland standi við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum. Einnig sé mikilvægt að kynna betur fyrir íslensku atvinnulífi þau tækifæri sem felast í Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins. Loftslagsleiðtogar Festu eru hópur forstjóra og stjórnenda stórra fyrirtækja sem vilja, samkvæmt Festu, sýna fordæmi í loftslagsmálum og kalla eftir auknu samtali við stjórnvöld um leiðina að settum markmiðum. Í tilkynningu Festu segir að hópurinn hafi sammælst um ályktunina í kjölfar fundar þar sem fjallað var um ETS-kerfið og áhrif þess á íslenskt atvinnulíf. „Við erum tilbúin í samtalið,“ segir í lok ályktunarinnar. Undir ályktunina skrifa meðal annars Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, Árni Sigurðsson hjá JBT Marel, Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi, Finnur Oddsson, forstjóri Haga, Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, og stjórnendur bankanna þriggja, Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans.
Loftslagsmál Mest lesið Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Neytendur Taka ekki upp gjaldskyldu við Kringluna Neytendur Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Viðskipti innlent Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Viðskipti innlent Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Viðskipti erlent Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Viðskipti innlent Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Samstarf Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Viðskipti innlent Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Viðskipti innlent Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Taka upp gjaldskyldu við Smáralind Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Uppsagnir fram undan og óttinn vex „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Munu opnu vinnurýmin hverfa eins og hornskrifstofurnar? Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Sjá meira