„Alþingi sameinast“ Margrét Kristín Blöndal skrifar 4. júní 2026 08:45 Alþingi vinnur nú dag hvern að því að koma fangabúðafrumvarpinu sínu í gegn. Þar á bæ eru allir þingmenn sammála um að fangelsa eigi börn og foreldra þeirra, barnshafandi konur, hinsegin fólk, mansalsþolendur og fleira saklaust fólk. Stundin rann upp, það kom að því að gríman féll (aftur) og buxurnar með hjá stjórnmálaforystu landsins. Öll eru þau, Samfylking, Viðreisn og Flokkur fólksins, Miðflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur (þótt heyrst hafi kunnuglegt framsóknartíst í Sigurði Inga um þetta mál, svo allrar sanngirni sé gætt) öll eru þau innilega sammála um að það beri að frelsissvifta saklaus börn og læsa þau inni í fangelsi. Almenningur, Öll hugsanleg og óhugsanleg mannréttindasamtök, Umboðsmaður barna, Barna- og fjölskyldustofa, Mannréttindastjóri Evrópuráðsins, Flóttamannahjálp Sameinuðu Þjóðanna, Málsvari Rauða Krossins, Unicef, Amnesty Internationalhafa risið upp gegn þessum stórhættulega mannskaðaverknaði stjórnvalda sem nú á að keyra í gegn en alþingismönnum er aldeilis nokk sama. Áfram gakk fasismi, með Þorgerði Katrínu, Kristrúnu, Snorra Má og þau öll hin í fararbroddi. Þau sem sitja nú á þingi eiga það sameiginlegt að ala á sundrungu og hatri á milli fólks í samfélaginu og sér til fulltingis hafa þau “fjölmiðlana” svokölluðu þar sem þau og þeir níða skóinn af saklausu fólki í allraviðkvæmustu mögulegu stöðu, hrakið fólk, fólksem flýr stríð, og það eru stríð sem stjórnvöld styðja. Að styðja stríð og níðast svo á fólki sem flýr þau kristallar tilgang stjórnmálanna, það, nærir stöðu stjórnmálafólks og sjálfsréttlætingu, til sífellt aukinnar og ofbeldisfyllri valdníðslu gagnvart varnarlausum. Svo er fasískur málstaðurinn skreyttur með íslenska fánanum. Það sést afar skýrt á þessu frumvarpi, þessu óhæfuverki stjórvalda nú, sem mun renna í gegnum þingið eins og lítill lækur hve “lýðræðið” svokallaða, er mikið skrum. Á alþingi vinna kjörnir fulltrúar meðvitað og gagngert gegn vilja fólksins í landinu. Á alþingi er nú unnið ötullega að því að brjóta alla grundvallarmannréttindasáttmála mélinu smærra. Og hver ætli sé tilgangurinn? Tilgangurinn er að senda skilaboð. Skilaboð út í samfélagið. Þegar alþingi gefur lagalegt leyfi til að níðast á saklausummanneskjum sem biðja í örvæntingu um hjálp þá gefur það skýr skilaboð um stigmögnun og réttlætingu kúgunar yfirvalda á almenningi yfirleitt. Þau flauta líka út aukið ofbeldi innan samfélagsins sjálfs. Skilaboðin eru skýr og þau koma að ofan. Og hér er enginn að finna upp hjólið. Þessi fasismi er eins og við vitum, í hátísku hjá valdníðingum Vesturlanda um þessar mundir. Og það færist sífellt nær... Spurningin sem við, kjósendur, venjulegt fólk í þessu samfélagi þurfum að spyrja okkur að er: hvað ætlum við að gera? Ætlum við að halda áfram að fussa ofan í hálsmálið á okkur eða ætlum við að tjá hug okkar? Svo þau heyri? Þannig, að þau skilji, að þjóðarvilji er sterkari en vilji einhverrar fráleitrar stjórnmála kaup-elítu sem selt hefur sál sína, land og þjóð fyrir slikk og dettur ekkert skemmtilegra í hug heldur en að fangelsa börn? Hvað verður það næst? Getum við ímyndað okkur eitthvað sem "toppar" þessa ákvörðun íslenskra stjórnvalda? Svarið er já, það er alltaf eitthvað sem toppar hana þótt við höfum ekki ímyndunarafl í það. Það höfum við vitnað sem áhorfendur að þjóðarmorði í beinni, undanfarin tvö og hálft ár. Við lifum tíma þar sem ákvörðun fólks um að taka þátt í stjórnmálum er eins og hver önnur viðskiptahugmynd. Þetta kann að fara öfugt ofan í einhverja en stjórnmál eru löngu hætt að hafa nokkuð með velferð eða atlæti borgaranna að gera (hafi þau nokkurn tímann haft það) heldur byggja þau á því að tryggja eigin hagsmuni stjórmálafólks og áhangenda þeirra með samtryggingunni frægu svo viðhalda megi völdunum. Nærtækt og skýrt dæmi um þetta er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. Aldrei hefur það verið skýrara hverjar raunverulegar afætur samfélagsins eru. Erindi stjórnmálafólks og hagsmunaaðila þeirra er að níðast á þeim sem minnst meiga sín, á fólki, sem getur enga björg sér veitt. Grundvallarskylda okkar er að mótmæla því. Við meigum alls ekki láta þetta fólk, sem vill lögleiða glæpi gegn börnum komast upp með það möglunarlaust. Íslendingar, sem alla jafna eru langþreyttir til vandræða og hafaí gegnum tíðina ekki fundið það fyrst af öllu hjá sér (með undantekningum þó) að mótmæla gerspilltri ólígarkaelítunni sem arðrænir þá dag hvern, þeim, er í þessu máli, algerlega nóg boðið. Staðreyndin er sú að skoðun okkar flestra er sú að fangelsun barna sé siðlaus, að fangelsun barna sé glæpur. Að láta sér detta í hug að boða lögleiðingu slíks ber hreinlega vott um illsku. Engin manneskja sem stendur undir því, að vera manneskja, myndi nokkurn tímann láta sér detta í hug að una fangelsun barna. Reglulega hafa komið upp mál hér á landi sem vekja sanninn um barnaníð hvers konar sem framið hefur verið í skjóli hins opinbera. Forsætisráðherra Kristrún Frostadóttir gerðist svo ófyrirleitin að segja frá því að hún hefði “mælt fyrir um frumvarp um rannsókn á aðbúnaði barna á fósturheimilum" í kjölfar slíks barnaníðsmáls, Hún gaukaði þessu að okkur rétt einmitt í sömu svifum og hún keyrir fangelsun barna í gegn með kjörnum kollegum sínum. Öll vitum við að fangelsun barna er einmitt ein birtingarmynd barnaníðs. Það rennur nokkuð óþægilega upp fyrir okkur hvers konar fólk við höfum kosið til valda... --- Fjölmennum á Austurvöll í dag klukkan 15. Mótmælum lögleiðingu mannréttindabrota. Margrét Kristín Blöndal/Magga Stína. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Margrét Kristín Blöndal Mest lesið Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun