Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Lovísa Arnardóttir og Birgir Olgeirsson skrifa 3. júní 2026 21:47 Hörður Ægisson er ritstjóri Innherja. Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, segir engan fjárfesti eða hluthafa leggja meira fé til Icelandair fyrr en búið sé að skapa samkeppnishæft módel um rekstur félagsins. Hann segir stöðu félagsins tvísýna og erfiða.
Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar annað kvöld. Fundurinn á að snúast um vinnufyrirkomulag flugmanna, vaktir, frídaga og svigrúm Icelandair til að skipuleggja flug. Fleiri mál hanga þó yfir viðræðunum, meðal annars fyrirhuguð kaup Icelandair á hlut í PLAY Europe á Möltu og þungur rekstur. Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna koma saman hjá ríkissáttasemjara klukkan sjö annað kvöld. Þetta verður fyrsti fundur aðilanna síðan á föstudag. Viðræðurnar hafa gengið hægt og lítið virðist hafa þokast í átt að samkomulagi. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir kvöldfundinn skýrast af því að ekki hafi tekist að koma fólki saman á öðrum tíma. Fundurinn snýst um vinnufyrirkomulag flugmanna, vaktir, frí og skipulag og það svigrúm sem Icelandair telur sig þurfa á flugáætlun. Þá blandast í deiluna einnig málefni er varða framtíðarrekstur Icelandair. Vinnuframlag flugmanna jókst um 22 prósent eftir síðustu kjarasamninga, sem var liður í endurreisn Icelandair. Nú vill Icelandair fá meira svigrúm til að nýta mannaflann betur. Flugmenn vilja á móti verja réttindi sín gagnvart þeirri kröfu. Um tuttugu ferðir Icelandair hafa fallið niður vegna mönnunarvanda að undanförnu. Icelandair segir flugmenn ekki selja frídaga en flugmenn segja félagið ekki geta byggt áætlunina á slíku. Inn í deiluna blandast einnig fyrirhuguð kaup Icelandair á hlut í PLAY europe á Möltu og auknar heimildir til að leigja flugvélar með áhöfnum frá öðrum félögum. Þar er meðal annars horft til áhrifa á störf flugmanna og rekstur Icelandair. Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, var til viðtals í kvöldfréttum Sýnar um erfiða stöðu Icelandair. Hörður segir forstjóra Kviku í síðustu viku hafa hitt naglann á höfuðið þegar hann sagði að ekki væri hægt að mjólka dauða kú. Eins og hafi komið fram í fréttum sé ekki langt síðan farið var í víðtæka fjárhagslega endurskipulagningu á Icelandair og samhliða efnt til 23 milljarða útboðs, sumarið 2020. Það hafi verið byggt á þeim forsendum að hægt væri að bæta reksturinn og byggja félagið upp aftur. „Sex árum síðar er staðan mjög tvísýn, félagið hefur ekki skilað arði nú í níu ár, samfellt rekstrartap meira og minna á því tímabili,“ segir Hörður og að rekstrartapið bara í fyrra hafi verið nálægt þrír milljarðar. Væntingar sem stjórnendur hafi gefið út í byrjun árs um rekstrarhagnað séu foknar um veður og vind. Hann segir suma greinendur ætla að rekstrartapið getu nærri fimmfaldast og verði yfir tíu milljarðar. Það sé margt í umhverfinu mótdrægt rekstrinum um þessar mundir eins og hærra eldsneytisverð og minni eftirspurn frá Bandaríkjunum. Glíma við hátt raungengi „Síðan og kannski ekki síst er Icelandair, eins og mörg útflutningsfyrirtæki á Íslandi, að glíma við feikilega hátt raungengi krónunnar, ekki hvað síst gagnvart Bandaríkjadal,“ segir Hörður og að það skipti félagið miklu máli. „Þegar þetta er staðan sem ég lýsi, gríðarlega erfitt samkeppnisumhverfi og félagið er að tapa, þá er eðlilegt, myndi maður halda, að það sé spurt, eins og Marinó nefnir í þessari líkingu við mjólkurkúna: Hvað er til skiptanna í svona samningum?“ Hörður segir stöðu félagsins þannig afar erfiða og flókna og þó svo að gengi félagsins sé 67 aurar á hlut vilji enginn fjárfestir líta við því. Gengið hafi aldrei verið lægra. Hann telur ólíklegt að fjárfestar leggi félaginu meira fé haldi því áfram að blæða eins og því hefur gert síðustu mánuði. Verði að sjá uppstokkun á kjarasamningum við flugstéttina Ekki nema þeir sjái uppstokkun á kjarasamningum við flugstéttina sem miðar að því að bæta samkeppnishæfni félagsins, ekki til skamms tíma, heldur til langs tíma. „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki og það kann að vera að við á Íslandi höfum okkar hugmyndir um hver eigi að vera launin en þegar um ræðir félag eins og Icelandair sem er einvörðungu að keppa á erlendum samkeppnismarkaði, við erlend flugfélög, þá hefur það ekkert sérstaklega mikið gildi þegar allar aðrar breytur í rekstri Icelandair eru liðir sem félagið getur illa ráðið við,“ segir Hörður og nefnir gengi gjaldmiðilsins, hækkun á eldsneytisverði og fjármagnskostnað. Þá skipti miklu máli að vera samkeppnishæfur, sérstaklega þegar kemur að launakostnaði, en hann sé yfir fjórðungur í hlutfalli við tekjur Icelandair. Ekki sjálfbært til lengdar Spurður hvort það séu líkur á að Icelandair fari sömu leið og WOW og Play segir Hörður að hann vilji ekkert fullyrða um það. Félagið standi fjárhagslega sterkt og ólíkt til dæmis Play hvað það varðar. „Eins og flestir ættu að vita, sérstaklega hérna á Íslandi, geta hlutirnir á flugmarkaði breyst á svipstundu og það er ljóst að félag sem er að blæða eins miklum fjármunum í hverjum ársfjórðungi eins og við höfum séð undanfarin misseri hjá Icelandair, það getur ekki lifað mjög lengi. Þetta er ekki sjálfbært til lengdar,“ segir hann og að þá þurfi að koma til fjármagn frá núverandi hluthöfum eða öðrum fjárfestum en peningarnir muni ekki koma nema það sé tryggt að til staðar sé samkeppnishæft módel í kringum rekstur félagsins. „Þar skipta ekki hvað síst máli kjarasamningar við þessar flugstéttir.“
Icelandair Flug Kjaramál Tengdar fréttir „Íslenskar hugmyndir“ um laun hafa lítið gildi á erlendum samkeppnismarkaði Seðlabankastjóri segist hafa „áhyggjur“ af kjaradeilum flugmanna og Icelandair, sérstaklega ef þær leiða til verkfallsaðgerða með tilheyrandi tjóni fyrir allt atvinnulífið, og bendir á að „íslenskar hugmyndir“ um hver launin eigi að vera stangist oft á við raunveruleikann á alþjóðlegum samkeppnismarkaði. 28. maí 2026 11:06 Varar við „alvarlegri stöðu“ sem geti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir félagið Forstjóri Icelandair fer hörðum orðum um „ólögmætar […] samstilltar aðgerðir“ flugmanna félagsins síðustu vikur, sem hafa orðið þess valdandi að aflýsa hefur þurft fjölda flugferða, og segir alvarlega stöðu vera að teiknast upp sem geti haft „ófyrirsjáanlegar afleiðingar“ með tjóni sem hluthafar hafi engan áhuga á að taka á sig. Þá fullyrðir hann að þrátt fyrir bætta nýtingu undanfarin ár þá sé flugmannakostnaður Icelandair orðinn ósamkeppnishæfur. 17. maí 2026 13:07 Mest lesið Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Viðskipti innlent Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Viðskipti innlent Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Neytendur Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Vekja athygli á innköllun leikfangs Neytendur Out of Office póstarnir: Þeir bestu og þeir glötuðustu Atvinnulíf Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Viðskipti innlent Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Neytendur Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Sjá meira
„Íslenskar hugmyndir“ um laun hafa lítið gildi á erlendum samkeppnismarkaði Seðlabankastjóri segist hafa „áhyggjur“ af kjaradeilum flugmanna og Icelandair, sérstaklega ef þær leiða til verkfallsaðgerða með tilheyrandi tjóni fyrir allt atvinnulífið, og bendir á að „íslenskar hugmyndir“ um hver launin eigi að vera stangist oft á við raunveruleikann á alþjóðlegum samkeppnismarkaði. 28. maí 2026 11:06
Varar við „alvarlegri stöðu“ sem geti haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir félagið Forstjóri Icelandair fer hörðum orðum um „ólögmætar […] samstilltar aðgerðir“ flugmanna félagsins síðustu vikur, sem hafa orðið þess valdandi að aflýsa hefur þurft fjölda flugferða, og segir alvarlega stöðu vera að teiknast upp sem geti haft „ófyrirsjáanlegar afleiðingar“ með tjóni sem hluthafar hafi engan áhuga á að taka á sig. Þá fullyrðir hann að þrátt fyrir bætta nýtingu undanfarin ár þá sé flugmannakostnaður Icelandair orðinn ósamkeppnishæfur. 17. maí 2026 13:07