Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. júní 2026 06:54 Mótmælendur segja málið til marks um að það sé nú hvíta fólkið sem sæti kynþáttafordómum. AP/PA/Gareth Fuller Mörg hundruð mótmælendur söfnuðust saman við lögreglustöð í Southampton á Bretlandseyjum í gær, til að lýsa óánægju sinni með framgöngu lögreglu gagnvart Henry Nowak. Þá kom til átaka milli mótmælenda og lögreglu við heimili morðingja Nowak.
Nowak var myrtur af síkanum Vickrum Digwa, sem var dæmdur í lífstíðarfangelsi í gær. Digwa stakk Nowak, 18 ára, til bana en laug að lögreglu á vettvangi að Nowak hefði ráðist á sig með kynþáttaníð. Lögreglumenn trúðu Nowak ekki þegar hann sagðist hafa verið stunginn og handjárnuðu hann þar sem honum blæddi út á jörðinni. Fjölskylda Nowak hafði kallað eftir því að morðið yrði ekki notað til að sá sundrung í samfélaginu en öfgahægrimenn segja það til marks um að hvítt fólk sé hið raunverulegt fórnarlamb kynþáttafordóma. Hinn umdeildi Tommy Robinson, sem heitir í raun Stephen Yaxley-Lennon, var meðal þeirra sem ávörpuðu fjöldann fyrir utan lögreglustöðina, þar sem kallað var eftir því að lögreglumennirnir sem handtóku Nowak yrðu látnir sæta ábyrgð. „Ef Henry hefði ekki verið hvítur hefði hann ekki verið handtekinn,“ sagði Robinson. Hann sagði ekki nóg að einn lögreglumannanna hefði sagt af sér; hann ætti að vera í fangelsi. Þá sagði hann málið til marks um að „hvít forréttindi“ væri mýta. Fyrir utan heimili Digwa köstuðu mótmælendur flöskum og dósum að lögreglu. Til átaka kom skammt frá heimili morðingjans.AP/PA/Jamie Lashmar Forsætisráðherrann Keir Starmer segir framgöngu lögreglu í málinu vekja „alvarlegar spurningar“ en innanríkisráðherrann Shabana Mahmood sagði mótmælin í Southampton og aðför gegn lögreglu „fullkomlega óásættanlega“. Starmer útilokar ekki að málið verði rannsakað sérstaklega.
Bretland England Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira