Sex úr sömu fjölskyldu skotnir til bana Hólmfríður Gísladóttir skrifar 2. júní 2026 07:04 Um það bil 23.500 manns búa í Muscatine og ef marka má Facebook-síðu lögreglu bæjarins er hún ekki síst upptekin við að koma týndum hundum aftur til eigenda sinna. Lögreglan í Muscatine Sjö einstaklingar fundust látnir í bænum Muscatine í Iowa í Bandaríkjunum í gær, allir af völdum skotsára. Meðal þeirra var grunaður árásarmaður en fórnarlömbin virðast öll hafa tengst honum fjölskylduböndum.
Lögreglu var gert viðvart um skotárás á heimili í borginni rétt eftir hádegi í gær og fann fjóra með skotsár. Allir voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. Grunaður árásarmaður, hinn 52 ára, Ryan Willis McFarland, lét sig hverfa áður en lögreglu bar að garði en hann fannst skömmu síðar á göngustíg meðfram árbakka. Hafði hann skotið sig og var úrskurðaður látinn. Við nánari eftirgrennslan fundu lögreglumenn annað fórnarlamb látið á öðru heimili og þá fannst sjötta fórnarlambið skotið til bana á verkstæði í borginni. Eins og áður segir tengdust fórnarlömbin McFarland fjölskylduböndum en lögregla hefur hvorki gefið upp nöfn þeirra né aldur. Þó er vitað að þeir sem fundust utan fyrsta heimilisins voru fullorðnir karlmenn. Á samfélagsmiðlum hefur verið greint frá því að eiginkona McFarland og tvö börn séu meðal fórnarlambanna en eins og fyrr segir hefur það ekki verið staðfest af löggæsluyfirvöldum.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira