Hvernig get ég forðast netsvik? Björn Berg skrifar 2. júní 2026 07:01 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm Sextugur karlmaður spyr: „Nú virðist mikið um að peningar séu sviknir út úr fólki á netinu og það er ekki góð tilhugsun að lenda í því. Hvað get ég gert til að forðast þessi svik?“ Það er enginn skortur á fólki sem vill ræna aðra. Því miður hafa tækninýjungar veitt þeim betri tæki og tól og tilraunum til svika virðist fjölga dag frá degi. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Því ættum við að leggja við hlustir og fylgjast með þeim tilkynningum sem berast frá lögreglunni og bönkum þar sem bæði er vísað með almennum hætti í varnir gegn svikum en einnig í einstaka tilraunir sem borið hefur á. Í áhugaverðu viðtali á Vísi á dögunum segir Guðmundur Karl Karlsson hjá Defend Iceland að þörf sé á vitundarvakningu hér á landi þar sem svik gagnvart einstaklingum verði sífellt trúverðugri og þrjótar geti jafnvel sent fólki tölvupósta frá fyrirtækjum sem brotist hefur verið inn í. Nýleg dæmi Flest höfum við væntanlega fengið skilaboð í símann, eða í tölvupósti um að ganga þurfi frá greiðslu eða staðfestingu vegna póstsendingar. Glæpamenn þykjast vera traustar stofnanir eða fyrirtæki og freista þess að veiða okkur inn á svikasíður þar sem auðvelt getur reynst að ræna okkur. Nýlega varaði Íslandsbanki við tölvupóstum sem sendir voru í nafni bankans, en ætlaðir til að stela fjármunum af viðskiptavinum og ekki er langt síðan fjölmargir töldu sig hafa fengið fyrirspurn frá Skattinum sem einnig var tilraun til ráns. Mikil og góð aðstoð í boði Sem betur fer er vel fylgst með hér á landi og auðvelt að sækja gagnlegar upplýsingar um hvernig verjast megi netsvikum. Nefna má ljómandi góðar fræðslusíður CERT-IS, Netvís, lögreglunnar og SA. Víða er auk þess boðið upp á námskeið og aðstoð í þeim efnum. Þá er mikilvægt að hafa strax samband við bankann sinn eða eftir atvikum lögregluna ef grunur leikur á að um svik sé að ræða og þá viljum við bregðast við eins fljótt og auðið er. Hvernig eigum við að hegða okkur? Við verðum fyrst og fremst að átta okkur á því að heimurinn hefur breyst. Hann er mun flóknari, hættulegri og að sama skapi auðvitað leiðinlegri þegar kemur að öryggi okkar á netinu. Þessi nýi stafræni heimur krefst töluverðrar fyrirhafnar af okkur og við erum nú þegar upptekin. Það er ekkert ánægjulegt við það að þurfa að halda utan um fjölmörg lykilorð, skrá sig ítrekað inn á síður og í kerfi og vera gagnrýnin og efins um allt og alla en við verðum að kyngja því, svona er þetta bara. Ef fyrirtæki sendir skilaboð og biður um að gengið sé frá greiðslu, staðfestingu eða öðru smellum við til dæmis ekki á hlekki í smáskilaboðum eða tölvupóstum, heldur förum sjálf beint inn á vefsíður þeirra og göngum úr skugga um að pósturinn sé sannarlega frá viðkomandi aðila. Ég er sjálfur nær alveg hættur að svara símtölum að utan og nú eru glæpamenn, með aðstoð gervigreindar, farnir að hringja í okkur á íslensku, úr íslenskum símanúmerum. Það er verið að reyna að ræna þig Vefurinn er hættulegur og það er verið að reyna að ræna okkur öll. Við þurfum að temja okkur vönduð vinnubrögð og varast fljótfærni, ekki síst í símanum. Ekki samþykkja auðkenningarbeiðni ef þú veist ekki hvaðan hún kemur. Ekki samþykkja skilmála að óþörfu og ekki bæta neinu vafasömu inn á símann þinn. Með beinu aðgengi að hverju og einu okkar, svo sem í gegnum símann, er reynt að narra okkur í viðskipti með alls kyns gylliboðum, selja okkur áskriftir sem erfitt reynist að segja upp og jafnvel spjalla við okkur undir fölsku flaggi. Þetta er sannarlega ekki þægileg tilhugsun. Ég hvet þig þó til að taka þér góðan tíma í að lesa þér vandlega til um varnir gegn netsvikum og tryggja öryggi þig eins og mögulegt er. Þannig dregur þú stórlega úr líkunum á fjárhagslegu tjóni. Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Netöryggi Tengdar fréttir Hvað á að gera við fermingarpeningana? 40 ára kona spyr: „Við erum að ferma dóttur okkar og veltum fyrir okkur hvað við eigum að gefa henni og hvað gera eigi við þá peninga sem hún mun fá að gjöf?“ 8. apríl 2026 07:04 Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? 30 ára karlmaður spyr: „Blessaður Björn, við konan erum að flytja til Íslands frá Danmörku og viljum kaupa okkur hús, helst utan höfuðborgarsvæðisins. Við þurfum því að safna okkur töluverðum pening. Spurning mín til þín er því hvað þurfum við að hafa í huga? Eru einhver tips & trick fyrir fyrstu kaupendur? Eigum við að safna pening á sparnaðarreikning (sem í dag hefur góða vexti)? Allar hugmyndir vel þegnar. Bestu kveðjur.” 24. mars 2026 07:00 Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? 30 ára karlmaður spyr: „Blessaður Björn, við konan erum að flytja til Íslands frá Danmörku og viljum kaupa okkur hús, helst utan höfuðborgarsvæðisins. Við þurfum því að safna okkur töluverðum pening. Spurning mín til þín er því hvað þurfum við að hafa í huga? Eru einhver tips & trick fyrir fyrstu kaupendur? Eigum við að safna pening á sparnaðarreikning (sem í dag hefur góða vexti)? Allar hugmyndir vel þegnar. Bestu kveðjur.” 24. mars 2026 07:00 Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira
Það er enginn skortur á fólki sem vill ræna aðra. Því miður hafa tækninýjungar veitt þeim betri tæki og tól og tilraunum til svika virðist fjölga dag frá degi. Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Því ættum við að leggja við hlustir og fylgjast með þeim tilkynningum sem berast frá lögreglunni og bönkum þar sem bæði er vísað með almennum hætti í varnir gegn svikum en einnig í einstaka tilraunir sem borið hefur á. Í áhugaverðu viðtali á Vísi á dögunum segir Guðmundur Karl Karlsson hjá Defend Iceland að þörf sé á vitundarvakningu hér á landi þar sem svik gagnvart einstaklingum verði sífellt trúverðugri og þrjótar geti jafnvel sent fólki tölvupósta frá fyrirtækjum sem brotist hefur verið inn í. Nýleg dæmi Flest höfum við væntanlega fengið skilaboð í símann, eða í tölvupósti um að ganga þurfi frá greiðslu eða staðfestingu vegna póstsendingar. Glæpamenn þykjast vera traustar stofnanir eða fyrirtæki og freista þess að veiða okkur inn á svikasíður þar sem auðvelt getur reynst að ræna okkur. Nýlega varaði Íslandsbanki við tölvupóstum sem sendir voru í nafni bankans, en ætlaðir til að stela fjármunum af viðskiptavinum og ekki er langt síðan fjölmargir töldu sig hafa fengið fyrirspurn frá Skattinum sem einnig var tilraun til ráns. Mikil og góð aðstoð í boði Sem betur fer er vel fylgst með hér á landi og auðvelt að sækja gagnlegar upplýsingar um hvernig verjast megi netsvikum. Nefna má ljómandi góðar fræðslusíður CERT-IS, Netvís, lögreglunnar og SA. Víða er auk þess boðið upp á námskeið og aðstoð í þeim efnum. Þá er mikilvægt að hafa strax samband við bankann sinn eða eftir atvikum lögregluna ef grunur leikur á að um svik sé að ræða og þá viljum við bregðast við eins fljótt og auðið er. Hvernig eigum við að hegða okkur? Við verðum fyrst og fremst að átta okkur á því að heimurinn hefur breyst. Hann er mun flóknari, hættulegri og að sama skapi auðvitað leiðinlegri þegar kemur að öryggi okkar á netinu. Þessi nýi stafræni heimur krefst töluverðrar fyrirhafnar af okkur og við erum nú þegar upptekin. Það er ekkert ánægjulegt við það að þurfa að halda utan um fjölmörg lykilorð, skrá sig ítrekað inn á síður og í kerfi og vera gagnrýnin og efins um allt og alla en við verðum að kyngja því, svona er þetta bara. Ef fyrirtæki sendir skilaboð og biður um að gengið sé frá greiðslu, staðfestingu eða öðru smellum við til dæmis ekki á hlekki í smáskilaboðum eða tölvupóstum, heldur förum sjálf beint inn á vefsíður þeirra og göngum úr skugga um að pósturinn sé sannarlega frá viðkomandi aðila. Ég er sjálfur nær alveg hættur að svara símtölum að utan og nú eru glæpamenn, með aðstoð gervigreindar, farnir að hringja í okkur á íslensku, úr íslenskum símanúmerum. Það er verið að reyna að ræna þig Vefurinn er hættulegur og það er verið að reyna að ræna okkur öll. Við þurfum að temja okkur vönduð vinnubrögð og varast fljótfærni, ekki síst í símanum. Ekki samþykkja auðkenningarbeiðni ef þú veist ekki hvaðan hún kemur. Ekki samþykkja skilmála að óþörfu og ekki bæta neinu vafasömu inn á símann þinn. Með beinu aðgengi að hverju og einu okkar, svo sem í gegnum símann, er reynt að narra okkur í viðskipti með alls kyns gylliboðum, selja okkur áskriftir sem erfitt reynist að segja upp og jafnvel spjalla við okkur undir fölsku flaggi. Þetta er sannarlega ekki þægileg tilhugsun. Ég hvet þig þó til að taka þér góðan tíma í að lesa þér vandlega til um varnir gegn netsvikum og tryggja öryggi þig eins og mögulegt er. Þannig dregur þú stórlega úr líkunum á fjárhagslegu tjóni.
Björn Berg fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru.
Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Netöryggi Tengdar fréttir Hvað á að gera við fermingarpeningana? 40 ára kona spyr: „Við erum að ferma dóttur okkar og veltum fyrir okkur hvað við eigum að gefa henni og hvað gera eigi við þá peninga sem hún mun fá að gjöf?“ 8. apríl 2026 07:04 Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? 30 ára karlmaður spyr: „Blessaður Björn, við konan erum að flytja til Íslands frá Danmörku og viljum kaupa okkur hús, helst utan höfuðborgarsvæðisins. Við þurfum því að safna okkur töluverðum pening. Spurning mín til þín er því hvað þurfum við að hafa í huga? Eru einhver tips & trick fyrir fyrstu kaupendur? Eigum við að safna pening á sparnaðarreikning (sem í dag hefur góða vexti)? Allar hugmyndir vel þegnar. Bestu kveðjur.” 24. mars 2026 07:00 Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? 30 ára karlmaður spyr: „Blessaður Björn, við konan erum að flytja til Íslands frá Danmörku og viljum kaupa okkur hús, helst utan höfuðborgarsvæðisins. Við þurfum því að safna okkur töluverðum pening. Spurning mín til þín er því hvað þurfum við að hafa í huga? Eru einhver tips & trick fyrir fyrstu kaupendur? Eigum við að safna pening á sparnaðarreikning (sem í dag hefur góða vexti)? Allar hugmyndir vel þegnar. Bestu kveðjur.” 24. mars 2026 07:00 Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira
Hvað á að gera við fermingarpeningana? 40 ára kona spyr: „Við erum að ferma dóttur okkar og veltum fyrir okkur hvað við eigum að gefa henni og hvað gera eigi við þá peninga sem hún mun fá að gjöf?“ 8. apríl 2026 07:04
Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? 30 ára karlmaður spyr: „Blessaður Björn, við konan erum að flytja til Íslands frá Danmörku og viljum kaupa okkur hús, helst utan höfuðborgarsvæðisins. Við þurfum því að safna okkur töluverðum pening. Spurning mín til þín er því hvað þurfum við að hafa í huga? Eru einhver tips & trick fyrir fyrstu kaupendur? Eigum við að safna pening á sparnaðarreikning (sem í dag hefur góða vexti)? Allar hugmyndir vel þegnar. Bestu kveðjur.” 24. mars 2026 07:00
Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? 30 ára karlmaður spyr: „Blessaður Björn, við konan erum að flytja til Íslands frá Danmörku og viljum kaupa okkur hús, helst utan höfuðborgarsvæðisins. Við þurfum því að safna okkur töluverðum pening. Spurning mín til þín er því hvað þurfum við að hafa í huga? Eru einhver tips & trick fyrir fyrstu kaupendur? Eigum við að safna pening á sparnaðarreikning (sem í dag hefur góða vexti)? Allar hugmyndir vel þegnar. Bestu kveðjur.” 24. mars 2026 07:00