Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Kristján Már Unnarsson skrifar 31. maí 2026 20:30 Matthías Sveinbjörnsson, forseti Flugmálafélags Íslands. Egill Aðalsteinsson Flugáhugamenn sem lögðu leið sína á hina árlegu flugsýningu Flugmálafélags Íslands á Reykjavíkurflugvelli í gær undruðust margir að sjá enga af þotum Icelandair birtast, hvorki á flugvellinum sjálfum né í yfirflugi yfir hann. Sumir spurðu sig jafnvel hvort samskipti félagsins og flugmanna þess væru í slíku frosti að ekki væri einu sinni hægt að taka þátt í flughátíð.
Sérstaklega söknuðu menn þess að sjá ekki Boeing 757-þotuna í ljósi þess að Icelandair hefur lýst því yfir að þetta verði síðasta sumar hennar í rekstri félagsins. Þarna hafi því hugsanlega verið síðasta tækifærið til að kveðja þessa einstöku flugvél íslenskrar flugsögu á flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli. Boeing 757-fraktþota Icelandair á flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli árið 2019. Áhorfendur fylgjast með þotunni aka af stæði og í flugtaksstöðu.KMU 757-þotan hefur í gegnum árin stundum verið einn af hápunktum sýningarinnar. Hún hefur verið höfð til sýnis almenningi á jörðu niðri og gestum jafnvel boðið að ganga um borð. Hún hefur lent og tekið á loft eða flogið lágflug yfir vellinum. Ekkert af þessu gerðist núna og raunar var ekki minnst á þátttöku Icelandair í fréttatilkynningu Flugmálafélagsins til fjölmiðla um helstu dagskráratriði flugsýningarinnar. Horft úr Boeing 757-þotu Icelandair í útsýnisflugi sumarið 2018. Reykjavíkurflugvöllur sést undir vængnum.Vilhelm Fréttastofa spurði Matthías Sveinbjörnsson, forseta Flugmálafélagsins, um þátttöku Icelandair á flugsýningunni í ár: „Þeir vildu ekki vera með yfirflug á meðan Vestmannaeyjaflugið er óklárað. Þess vegna var ekkert atriði hjá þeim,“ sagði Matthías. Hann sagði Icelandair þó ekki hafa verið fjarverandi né flugmenn þess. Dash 8 Q400-vél hefði verið til sýnis og flugmenn verið til viðtals fyrir gesti og gangandi. Boeing 757-þota Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjabæ í byrjun aprílmánaðar. Þetta atvik er sögð ástæða þess að gestir flugsýningar á Reykjavíkurflugvelli í gær fengu ekki að sjá þotu frá Icelandair fljúga yfir.Vísir Fréttamaður velti þeim möguleika upp við Matthías hvort fjarvera þotuflota Icelandair á flugsýningunni gæti tengst spennu vegna flugmannasamninga: „Ég held ekki. Það hefur legið lengi fyrir að það væri ekki vél tiltæk í þetta verkefni. Það að fljúga úr flugáætlun með fullborgandi farþega yfir sýningar er líklega liðin tíð eftir Vestmannaeyjaflugið fræga,“ sagði forseti Flugmálafélagsins en bætti við: „Þetta lagast vonandi fyrir næstu sýningu en þá verður félagið 90 ára.“ Hér má rifja upp viðtal við Matthías og sjá myndir frá flugsýningu fyrir þremur árum. Þar sést Icelandair-þota fljúga yfir:
Icelandair Flug Reykjavíkurflugvöllur Lágflug Icelandair yfir Vestmannaeyjum Boeing Tengdar fréttir Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Flugveislu er lofað á árlegri flugsýningu Flugmálafélags Íslands sem fram fer á Reykjavíkurflugvelli eftir hádegi í dag, laugardag. Fjölbreytt úrval loftfara af öllum stærðum og gerðum verður til sýnis, bæði á flugi og á jörðu niðri á sýningarsvæðinu. 30. maí 2026 07:28 Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Fleiri myndskeið sem birst hafa af lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag virðast sýna með óyggjandi hætti að flugvélinni var flogið langt undir lögbundinni lágmarksflughæð. Forstjóri Icelandair segir félagið líta málið mjög alvarlegum augum en það er núna komið til rannsóknar Samgöngustofu. 13. apríl 2026 22:00 Flugsýning einn af stærstu menningarviðburðum borgarinnar Þúsundir manna sóttu flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli í dag þar sem sjá mátti þverskurð íslenska fluggeirans, allt frá litlum drónum upp í stórar farþegaþotur. Margir tóku andköf þegar djarfir listflugmenn veltu sér um háloftin. 3. júní 2023 22:18 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Fleiri fréttir Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Sjá meira
Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Flugveislu er lofað á árlegri flugsýningu Flugmálafélags Íslands sem fram fer á Reykjavíkurflugvelli eftir hádegi í dag, laugardag. Fjölbreytt úrval loftfara af öllum stærðum og gerðum verður til sýnis, bæði á flugi og á jörðu niðri á sýningarsvæðinu. 30. maí 2026 07:28
Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Fleiri myndskeið sem birst hafa af lágflugi farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ á laugardag virðast sýna með óyggjandi hætti að flugvélinni var flogið langt undir lögbundinni lágmarksflughæð. Forstjóri Icelandair segir félagið líta málið mjög alvarlegum augum en það er núna komið til rannsóknar Samgöngustofu. 13. apríl 2026 22:00
Flugsýning einn af stærstu menningarviðburðum borgarinnar Þúsundir manna sóttu flugsýningu á Reykjavíkurflugvelli í dag þar sem sjá mátti þverskurð íslenska fluggeirans, allt frá litlum drónum upp í stórar farþegaþotur. Margir tóku andköf þegar djarfir listflugmenn veltu sér um háloftin. 3. júní 2023 22:18