Handbolti

Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron verður þjálfari FH á næsta tímabili í Olís-deildinni.
Aron verður þjálfari FH á næsta tímabili í Olís-deildinni.

„Ég er ánægður að þetta átti sér stað, og gerðist, og ég hef fengið tækifæri til að taka við FH-liðinu. Ég kom náttúrulega inn í þetta núna eftir áramót og fann að maður á eitthvað í þetta og hafði mjög gaman af þessu. Þannig að ég er bara mjög stoltur og glaður,“ segir Aron Pálmarsson eftir blaðamannafund FH þegar hann var kynntur sem nýr þjálfari liðsins.

Sigursteinn Arndal breytir um hlutverk og verður aðstoðarþjálfari Arons. En kom Aroni á óvart að hann hefði gaman af þjálfun?

„Algjörlega. Ég bjóst alls ekki við þessu og í rauninni ætlaði alls ekkert út í þjálfun. Alveg þangað til að þeir báðu mig um að koma aðeins inn og hjálpa til. Þá gaf ég mér tvo til þrjá daga í að hugsa það og ákvað bara að láta slag standa. Þegar það voru kannski tvær, þrjár vikur liðnar, þá var eiginlega bakterían komin og það var bara ekki aftur snúið,“ segir Aron sem kom inn í þjálfarateymi FH um síðustu áramót.

En hvenær fann hann að hann vildi verða aðal?

„Nánast frá fyrstu æfingu,“ segir Aron léttur og heldur áfram.

„Ég skal gefa Steina það, hann þekkir mig líka ágætlega og mér líður vel í þessu fyrirliðahlutverki og tek svolítið stjórnina. Ég fann það alveg fljótt að ég vildi verða aðalþjálfari og þess vegna ákvað ég að taka það spjall með honum eftir nokkrar vikur og FH.“

Hér að neðan má sjá viðtalið í heild sinni en Aron talar þá sérstaklega um tvo þjálfara sem hann mun taka mest frá í sinni eigin þjálfaraaðferð.

Klippa: Aron ætlar sér stóra hluti með FH-liðið



Fleiri fréttir

Sjá meira


×