Innlent

Sendi­ráðs­starfs­maður fluttur heim öryggisins vegna

Árni Sæberg skrifar
Starfsfólk sendiráðs Íslands í Freetown. Önnnur frá vinstri í neðri röð er Ásdís Bjarnadóttir forstöðumaður sendiráðsins.
Starfsfólk sendiráðs Íslands í Freetown. Önnnur frá vinstri í neðri röð er Ásdís Bjarnadóttir forstöðumaður sendiráðsins. Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðuneytið ákvað í vikunni að flytja einn starfsmann sendiskrifstofu Íslands í Freetown í Síerra Leóne heim vegna öryggissjónarmiða.

Ægir Þór Eysteinsson, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, staðfestir þetta í svari við fyrirspurn Vísis en segir ekki hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

Íslensk stjórnvöld hafa átt í samstarfi um þróunarsamvinnu í Síerra Leóne síðan 2018. Fyrstu verkefni íslenskra stjórnvalda voru unnin í samstarfi með þarlendum stjórnvöldum og Alþjóðabankanum. Árið 2023 hélt útsent starfsfólk til starfa og var sendiráðið opnað formlega í maí 2024.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×