Körfubolti

Collin Pryor í Álfta­nes

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pryor lék vel í 1.deildinni í vetur. Hér má sjá hann með Huginn formanni körfuknattleiksdeildar Álftnesinga. 
Pryor lék vel í 1.deildinni í vetur. Hér má sjá hann með Huginn formanni körfuknattleiksdeildar Álftnesinga. 

Stjórn körfuknattleiksdeildar Álftaness hefur komist að samkomulagi við Collin Pryor um að leika með liðinu á komandi leiktíð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Collin er íslenskur ríkisborgari sem þekkir íslenskan körfubolta vel enda leikið hér á landi síðan 2014.

Pyor kemur til liðsins frá Selfossi sem var í næstefstu deild í vetur en hann hefur leikið í efstu deild áður og er með töluverða reynslu þar, til að mynda með ÍR. 

Með Selfyssingum í vetur var Collin með 15,8 stig, 9,9 stig og 4 stoðsendingar að meðaltali í leik.

„Það eru frábær tíðindi fyrir klúbbinn að fá leikmann eins og Collin til okkar. Collin kemur með mikil gæði og dýrmæta reynslu sem mun nýtast liðinu vel,“ segir Huginn Freyr Þorsteinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Álftaness, í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×