Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Aron Guðmundsson skrifar 27. maí 2026 08:53 Sveindís Jane Jónsdóttir hefur verið sjóðheit í upphafi tímabils með liði sínu Angel City. Getty/Molly Darlington Sveindís Jane Jónsdóttir hefur þurft að draga sig úr landsliðshópi Íslands fyrir komandi leiki gegn Úkraínu og heimsmeisturum Spánar í undankeppni HM 2027 vegna meiðsla.
Ljóst er að um mikið áfall er að ræða fyrir íslenska landsliðið en Sveindís er einn af betri leikmönnum liðsins og hefur verið það undanfarin ár. Hennar verður sárt saknað í leikjunum tveimur en leiknum gegn Úkraínu á útivelli er stillt upp sem algjörum úrslitaleik upp á þriðja sætið í riðlinum að gera sem myndi þýða hagstæðari leið í gegnum umspil fyrir HM næsta árs. Inn í landsliðshópinn í stað Sveindísar kemur Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir leikmaður Breiðabliks. Hrafnhildur hefur farið afar vel af stað í Bestu deildinni á tímabilinu og er markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Alison Grace Lowrey og Sigríði Theódóru Guðmundsdóttur með fjögur mörk í sex leikjum. Þegar að landsliðshópur Íslands var opinberaður í síðustu viku var ljóst að tvísýnt yrði með þátttöku Sveindísar í verkefninu en hún hafði þá ekki spilað undanfarna leiki með Angel City í Bandaríkjunum. Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands ræddi þá mögulega fjarveru hennar í viðtali við íþróttadeild Sýnar: „Hún er lykilleikmaður. Við förum ekki í grafgötur með það. Hún skiptir okkur miklu máli. En við þurfum þá bara að leysa það. Við höfum gert það áður og náðum í ágætis úrslit þá. Við þurfum bara að takast á við það með opnum hug og með jákvæðni. Við þurfum ekkert að óttast það en auðvitað er hún lykilleikmaður og skiptir okkur alltaf máli.“ Fyrir komandi verkefni er Ísland í 3.sæti síns riðils með þrjú stig, þremur stigum meira en Úkraína sem vermir botnsæti riðilsins. Með sigri gegn Úkraínu í Póllandi þann 5.júní næstkomandi tryggir Ísland sér þriðja sæti riðilsins og þar með hagstæðari leið í umspili fyrir HM næsta árs. Nokkrum dögum eftir leik Íslands og Úkraínu taka Stelpurnar okkar á móti heimsmeisturum Spánar hér heima á Laugardalsvelli.
Landslið kvenna í fótbolta Þjóðadeild kvenna í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Sjá meira