Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. maí 2026 12:20 Meirihluti aðfluttra á Bretlandseyjum kemur þangað til að stunda nám eða vinnu. Getty/Nicolas Economou Kjósendur á Bretlandeyjum eru haldnir ranghugmyndum um stöðu útlendingamála í landinu, samkvæmt nýrri rannsókn. Margir virðast telja að innflytjendum sé að fjölga þrátt fyrir að verulega hafi dregið úr aðflutningi fólks.
Samkvæmt rannsókninni reyndust 67 prósent þeirra sem sögðust gjalda varhug við aðflutningi fólks telja að hann hefði aukist árið 2025 og 37 prósent aðspurðra sem voru jákvæðari í garð innflytjenda. Sannleikurinn er hins vegar sá að innflytjendur voru 204 þúsund á fyrstu fimm mánuðum ársins 2025, á meðan þeir voru 944 þúsund á fyrstu þremur mánuðum ársins 2023. Einn af hverju sex aðspurðum töldu að innflytjendum færi enn fjölgandi og aðeins fimmtán prósent sögðust gera ráð fyrir að innflytjendum myndi fækka á næsta ári. Það vekur einnig athygli að aðspurðir töldu um það bil þriðjung innflytjenda vera hælisleitendur, á meðal hlutfallið er níu prósent. Þá töldu þeir námsmenn um fjórðung en rétt rúmur helmingur innflytjenda kemur til Bretlandseyja til að stunda nám. Hugmyndir fólks um innflytjendur og stöðu útlendingamála má án efa rekja til umræðunnar í landinu, þar sem mikið er nú rætt um mikilvægi þess að fækka innflytjendum, sem séu mikill baggi á kerfinu. Reform, flokkur Nigel Farage, hefur verið að sækja í sig veðrið og meðal annars lofað því að ná hlutfallinu af nýjum innflytjendum niður í núll. Stjórnmálamenn innan annarra flokka hafa margir séð sér þann kost vænstan að sækja til hægri í von um að halda í við Reform og þannig sagði Shabana Mahmood, innanríkisráðherra Verkamannaflokksins, meðal annars í nóvember síðastliðnum að stjórnvöld þyrftu að gera enn betur, þrátt fyrir að aðfluttum hefði fækkað um tæp 70 prósent frá árinu 2021. Útlendingamál eru þriðja mikilvægasta málið í huga kjósenda á eftir lífskjörum og heilbrigðiskerfinu.
Bretland Innflytjendamál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira