Nokkrir hlutfallslega á pari við Heiðu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 20. maí 2026 22:25 Heiða Björg Hilmisdóttir var oftast strikuð út. Vísir/Vilhelm Töluvert var strikað yfir nafn Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, fráfarandi borgarstjóra, í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum. Fréttastofa kannaði útstrikanir í nokkrum sveitarfélögum og ef litið er hlutfallslega á niðurstöðurnar eru nokkrir á pari við Heiðu.
1161 strikuðu yfir nafn Heiðu Bjargar í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum en í Reykjavík voru rúmlega 108 þúsund manns á kjörskrá. Ef útstrikanir eru skoðaðar hlutfallslega miðað við fjölda á kjörskrá var oftar strikað yfir nafn Ingibjargar Sveinsdóttur, í öðru sæti á lista Framsóknar og stuðningsmanna í Sveitarfélaginu Hornafirði. 23 strikuðu yfir nafn hennar en 1922 voru á kjörskrá. 623 kusu Framsóknarflokkinn og því um 3,7 prósent kjósenda flokksins sem strikuðu yfir nafn hennar. Strikað var sautján sinnum yfir nafn Hjördísar Eddu Olgeirsdóttur, annars manns á lista Sjálfstæðisflokksins. Trausti Hjaltason, annar maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, er á pari við Ingibjörgu en alls var strikað 43 sinnum yfir nafn hans. Þar á eftir var Hildur Sólveig Sigurðardóttir, fimmta á lista Sjálfstæðisflokksins, en strikað var yfir nafn hennar 25 sinnum. Miðað við upplýsingar frá sveitarfélögum sem greint er frá hér hafa útstrikanir ekki haft áhrif á röðun fulltrúa. Oddvitar Sjálfstæðisflokksins áberandi Á Akureyri var oftast strikað yfir nafn Berglindar Óskar Guðmundsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, eða 41 sinnum. Sjálfstæðisflokkurinn hefur þegar myndað meirihluta með Framsóknarflokknum og L-listanum og virðist Berglind verða næsti bæjarstjóri Akureyrar. Í Norðurþingi var oftast strikað yfir flokkssystur Berglindar, Helenu Eydísi Ingólfsdóttur, sem var einnig oddviti. Átta strikuðu yfir hana en þrír yfir Ágúst Sigurð Óskarsson, hann var annar maður á lista M-lista Samfélagsinsins. Miðað við þær tölur sem fréttastofa hefur undir höndum virðist fólk oftast hafa strikað yfir oddvita Sjálfstæðisflokksins en þó er ekki hægt að fullyrða það. Vert er að taka fram að Sjálfstæðisflokkurinn hlaut ákveðinn sigur í kosningunum og fékk því oft, en ekki alltaf, fleiri atkvæði og því eru fleiri tækifæri til útstrikana. Oddviti flokksins í Múlaþingi, Berglind Harpa Svavarsdóttir, var strikuð út 23 sinnum, oftast af öllum frambjóðendum í sveitarfélaginu. Þar á eftir var Ívar Kári Hafliðason, þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokksins, sem hlaut átta útstrikanir. Ákvarðanir kjósenda í Fjarðabyggð styðja ekki ályktunina þar sem Gestur Sigmundsson, sautjándi maður á lista Miðflokksins, var oftast strikaður út eða sex sinnum. Þar saman á eftir voru Kristinn Þór Jónsson, annar maður á lista Sjálfstæðisflokksins, og Þórdís Mjöll Benediktsdóttir, þriðja á sama lista, sem fengu bæði fimm útstrikanir. Önnur og þriðja með sautján og átján Á-listinn hlaut hreinan meirihluta í Rangárþingi ytra en fékk einnig flestar útstrikanirnar. Það var Erla Sigurðardóttir, þriðji maður á listanum, sem var oftast strikuð út eða átján sinnum. Þar á eftir með sautján útstrikanir var Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, önnur á Á-listanum. Í Rangárþingi eystra var Bjarki Oddsson, annar maður á lista Framsóknar og annarra framfarasinna, strikaður út tíu sinnum og Anton Kári Halldórsson, oddviti D-listans og annarra lýðræðissinna, þrisvar. Gunnsteinn R. Ómarsson, oddviti Samfylkingarinnar og félaga í Sveitarfélaginu Ölfusi, hlaut flestar útstrikanir eða alls fjórtán. Á eftir honum er Grétar Ingi Erlendsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, með tíu útstrikanir. Ekki hefur verið greint frá fjölda útstrikana í Borgarbyggð, Mosfellsbæ og Suðurnesjabæ en þær útstrikanir voru fáar og höfðu engin áhrif á röðun fulltrúa.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Sjá meira