Trump tókst að fella Massie Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. maí 2026 07:05 Massie beið ósigur gegn Ed Gallrein, sem Trump valdi til að skora Massie á hólm. Getty/Jon Cherry Thomas Massie, fulltrúadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, beið ósigur í forvali flokksins í Kentucky í gær. Massie, sem hefur setið á þingi frá 2012, tapaði fyrir Ed Gallrein, sem var valinn af Donald Trump Bandaríkjaforseta til að skora Massie á hólm. Úrslitin þykja til marks um það að Trump hafi enn tangarhald á Repúblikanaflokknum, þrátt fyrir vaxandi óvinsældir.
Óvild forsetans í garð Massie má meðal annars rekja til framgöngu þingmannsins varðandi Epstein-skjölin og andstöðu hans við stríðsreksturinn í Íran. Massie barðist ötullega fyrir birtingu Epstein-skjalanna í samstarfi við Demókratan Ro Khanna og var harður gagnrýnandi fjárausturs stjórnvalda. Trump, sem hefur kallað Massie hálfvita og lúser, tók virkan þátt í því að grafa undan þingmanninum í forvalinu og ávarpaði meðal annars fjöldafund í Kentucky, þar sem hann sakaði hann um svik við Bandaríkin. Þá var milljónum dala varið í auglýsingar gegn Massie. Forval fór víðar fram en í Kentucky í gær og um helgina og „útsendurum“ Trump virðist almennt hafa gengið vel. Brad Raffensperger, annar gagnrýnandi Trump, laut í lægra haldi í Georgíu og þá tapaði öldungadeilarþingamaðurinn Bill Cassidy fyrir Juliu Letlow, sem naut stuðnings Trump, í Louisiana. Tommy Tuberville, einarður stuðningsmaður Trump, var valinn ríkisstjóraefni Repúblikana í Alabama.
Bandaríkin Donald Trump Mál Jeffrey Epstein Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Fleiri fréttir Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Sjá meira