Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Lovísa Arnardóttir skrifar 18. maí 2026 13:01 Kristrún segir að þrátt fyrir að Samfylking hafi haldið fimm fulltrúum í Reykjavík þurfi að byggja upp traust á ný. Vísir/Ívar Fannar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ljóst að Samfylkingin þarf að byggja upp traust á ný í Reykjavík. Samfylkingin hafi hlotið næstmest fylgi á landsvísu og flokkurinn hafi fjölgað fulltrúum í sveitarstjórnum. Það sé samt sem áður alvarlegt að fjöldi jafnaðarmanna hafi kosið aðra flokka.
Kristrún segir fulltrúum hafa fjölgað um helming og þeir séu alls 38. Það sé næstmesta fjölgun fulltrúa flokksins frá stofnun hans. „Hvert einasta atkvæði er mikils virði og við erum þakklát fyrir atkvæði greidd Samfylkingu og frambjóðendum okkar um land allt,“ segir Kristrún í færslu sem hún birti á Facebook fyrir stuttu. Hún segir árangur flokksins ekki síst ánægjulegan á landsbyggðinni og að Samfylkingin hafi fest sig í sessi á ný sem jafnaðarflokkur um land allt. „Um leið er ljóst að heilt yfir settum við í Samfylkingu markið hærra enda höfum við mikinn metnað fyrir jafnaðarfólk í landinu. Svo virðist sem víða hafi fólk með jafnaðartaug ekki greitt okkar flokki atkvæði sitt í þetta sinn. Það tökum við alvarlega. Kjósendur hafa alltaf rétt fyrir sér,“ segir Kristrún og að það sé á hennar ábyrgð að leiða og efla Samfylkinguna. Munu leita leiða til að standa betur undir væntingum „Og við munum nú í sameiningu – með fjölda nýrra fulltrúa – vinna úr umboði okkar, hlusta eftir vilja fólksins og leita leiða til að standa betur undir væntingum í næstu sveitarstjórnarkosningum. Í hverju sveitarfélagi fyrir sig og á landsvísu.“ Hún segir ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn verði í forystu í fjölda sveitarfélaga, þar á meðal Reykjavík. „Ég óska þeim góðs gengis og við munum leggja okkur fram við að eiga áfram gott samstarf á milli ríkis og sveitarfélaga. En Samfylkingin mun alltaf veita kröftuga andstöðu við harða hægripólitík sem kemur niður á vinnandi fólki og veikir það sem við eigum hérna saman á Íslandi. Það er skylda okkar sem jafnaðarfólks og þar gefum við ekkert eftir,“ segir hún. Uppbygging hefjist hjá nýrri forystu í dag Kristrún segir nauðsynlegt fyrir Samfylkinguna að byggja aftur upp traust í Reykjavík. „Þó að flokkurinn hafi haldið sínum fimm fulltrúum í borgarstjórn þá er þetta ljóst. Við tökum það til okkar. Þessi uppbygging hefst hjá nýrri forystu okkar í borginni strax í dag, enda tekur tíma að vinna traust og það getum við aðeins gert með verkum okkar.“ Hún segir mikla endurnýjun hafa orðið í flokknum og nefnir, sem dæmi, að átján af 19 oddvitum þeirra vítt og breitt um land séu nýir. Leiða breytingar Ríkisstjórnin segir hún heldur svo áfram að hrista upp í kerfinu og leiða breytingar. „Þetta gerum við áfram af fullum krafti – í þágu þjóðar og með gildi jafnaðarmennsku að leiðarljósi. Lögum ríkisfjármálin, bætum samgöngur, höggvum á hnúta í orkumálum, eflum heilbrigðiskerfið, byggjum verknámsskóla, innleiðum réttlát auðlindagjöld, fjölgum íbúðum, tryggjum trausta stjórn á útlendingamálum, hlúum að eldra fólki og öryrkjum – svo nokkur dæmi séu nefnd,“ segir Kristrún og að hún sé á leið til fundar í Noregi.
Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar segist á Facebook-síðu sinni hafa beðið Guðmund Árna Stefánsson, varaformann Samfylkingarinnar og oddvita flokksins í Hafnarfirði afsökunar á orðum sínum í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins þess efnis að hann hefði kannski mátt íhuga stöðu sína fyrr. 17. maí 2026 14:04 Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Egill Helgason sjónvarpsmaður segir ljóst, nú að loknum sveitarstjórnarkosningum, að hveitibrauðsdögum ríkisstjórnarinnar sé endanlega lokið. 17. maí 2026 09:44 Pétur hræddur um framtíð Borgarlínunnar Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar segir að flokkurinn muni veita nýjum meirihluta í Reykjavíkurborg gott aðhald. Hann óttast að nýr meirihluti setji stopp á Borgarlínu. Flokkurinn mælist með fimm menn í borginni í fyrstu tölum í borginni. 17. maí 2026 02:05 „Það er ekki eftirspurn eftir Guðmundi Árna lengur“ Oddvitar Framsóknar og Samfylkingar voru í gjörólíku skapi eftir að fyrstu tölur bárust úr Hafnarfirði. Oddviti Samfylkingarinnar segist taka fulla ábyrgð á tapinu, hann muni stíga til hliðar fljótlega þó hann vilji ekki gefa upp hvenær. 16. maí 2026 23:44 Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira
Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar segist á Facebook-síðu sinni hafa beðið Guðmund Árna Stefánsson, varaformann Samfylkingarinnar og oddvita flokksins í Hafnarfirði afsökunar á orðum sínum í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins þess efnis að hann hefði kannski mátt íhuga stöðu sína fyrr. 17. maí 2026 14:04
Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Egill Helgason sjónvarpsmaður segir ljóst, nú að loknum sveitarstjórnarkosningum, að hveitibrauðsdögum ríkisstjórnarinnar sé endanlega lokið. 17. maí 2026 09:44
Pétur hræddur um framtíð Borgarlínunnar Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar segir að flokkurinn muni veita nýjum meirihluta í Reykjavíkurborg gott aðhald. Hann óttast að nýr meirihluti setji stopp á Borgarlínu. Flokkurinn mælist með fimm menn í borginni í fyrstu tölum í borginni. 17. maí 2026 02:05
„Það er ekki eftirspurn eftir Guðmundi Árna lengur“ Oddvitar Framsóknar og Samfylkingar voru í gjörólíku skapi eftir að fyrstu tölur bárust úr Hafnarfirði. Oddviti Samfylkingarinnar segist taka fulla ábyrgð á tapinu, hann muni stíga til hliðar fljótlega þó hann vilji ekki gefa upp hvenær. 16. maí 2026 23:44