„Ætlið þið í pottinn?“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 18. maí 2026 13:27 Björg brosti út að eyrum eftir að hafa grínast með pottaferð Einars og Ara í oddvitaumræðunum í gærkvöldi. Rúv Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, spurði glettin hvort Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, og Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar, ætluðu saman í pottinn þegar verið var að ræða um opnunartíma sundlauga í Silfrinu í gær. Grínið vakti hugrenningatengsl við Vítalíu-málið sem skók þjóðina fyrir fjórum árum.
Oddvitar þeirra sjö framboða sem komust á blað í Reykjavík í kosningunum á laugardaginn mættu í umræðuþáttinn Silfrið í gærkvöldi til að fara yfir niðurstöðurnar. Undir lok þáttarins voru oddvitarnir spurðir hvað væri það fyrsta sem þeir vildu gera ef þeir kæmust til valda. Björg nefndi tvö atriði sem hún vildi leggja áherslu á, aðallega voru það skólamálin en einnig minntist hún á opnunartíma sundlauga. Björg og Ari takast á meðan Einar fylgist með.vísir/vilhelm „Mig langar ofsalega að lengja aftur opnunartíma sundlauga af því að sundlaugar eru svo mikill griðastaður í flóknum heimi þar sem við erum öll hlekkjuð við snjallsímana. Þetta er svo mikið lýðheilsumál og dásamlega samvera þar sem þú horfir í augun á fólki, kemur saman og ræktar eitthvað samfélag,“ sagði hún. Einar Þorsteinsson sagði margar góðar hugmyndir hafa komið fram og tók undir með Pétri Marteinssyni, oddvita Samfylkingar, um að styrkja þyrfti skólana í Breiðholtinu. Hann minntist síðan á sundlaugarnar. Einar telur margt hægt að gera strax í sumar.Vísir/Vilhelm „Ég veit ekki hvort það er búið að loka sundlaugunum núna en það væri dásamlegt að fara. Vaxtamörkin eru...“ sagði Einar áður en Ari skaut inn í: „Eigum við að skjótast í sund á eftir?“ „Já, er það ekki,“ svaraði Einar áður en Björg sagði glottandi út að eyrum: „Ætlið þið í pottinn?“ Grínið vakti lukku hjá oddvitunum en náði þó ekki að slá Einar út af laginu sem taldi ljóst að borgarbúar vildu strax sjá breytingar í sumar. Hvort sem það var markmið Bjargar eða ekki skapaði grínið hugrenningatengsl við Vítalíu-málið sem kom upp í ársbyrjun 2022 þar sem Vítalía Lazareva sakaði meðal annars Ara um að hafa brotið á sér kynferðislega í heitum potti í sumarbústaðarferð þangað sem hún mætti með kærasta sínum Arnari Grant. Ari neyddist til að láta af störfum sem forstjóri Íseyjar vegna ásakana sem aldrei voru sannaðar. Kærðu mennirnir Vítalíu fyrir fjárkúgun í samvinnu við Arnar kærasta sinn en málið leiddi ekki til saksóknar. Ari ræddi málið fyrir kosningar í skemmtiþættinum Af vængjum fram á Sýn og sagði það ekkert hafa verið rifjað upp í kosningabaráttunni utan eins viðtals í febrúar. „Og ég gaf hreinskilin svör um það og hvernig því er lokið. Ég leitaði sjálfur til yfirvalda á sínum tíma með það mál, það fékk sinn farveg og lokaniðurstöðu. Síðan eru liðin þrjú ár, hvað að verða sex ár frá þessum atvikum sem þú vísar til. Ég gæti alveg rætt þau í þaula og það kæmi vel út fyrir mig að gera endanlega hreint og í smáatriðum um það allt saman. Ástæðan fyrir því að ég geri það ekki er bara að ég vil ekki dvelja við það því þá er ég enn að verja huganum og tímanum þar í staðinn fyrir að horfa fram fyrir mig. En þetta hefur ekki heldur verið neitt að þvælast fyrir,“ sagði Ari um málið í þættinum.
Reykjavík Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Viðreisn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mál Vítalíu Lazarevu Tengdar fréttir Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp Oddviti Sjálfstæðisflokksins mun í dag funda með oddvitum allra framboða sem náðu fulltrúa inn í borgarstjórn. Prófessor í stjórnmálafræði segir Hildi Björnsdóttur með öll tromp á hendi og standa frammi fyrir pólitísku vali um meirihluta í íhalds- eða frjálslyndisátt. 18. maí 2026 12:02 Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Í hádegisfréttum verður rætt við prófessor í stjórnmálafræði um stöðuna í Reykjavík eftir borgarstjórnarkosningarnar um helgina. 18. maí 2026 11:39 Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir að oddvitar annarra flokka séu farnir að hvísla ástarorðum eftir að Sjálfstæðisflokkurinn bar sigur úr býtum í sveitarstjórnarkosningum í nótt, samkvæmt nýjustu tölum. 17. maí 2026 03:48 Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Góðir straumar á Straumi Menning Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Fleiri fréttir Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Sjá meira
Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp Oddviti Sjálfstæðisflokksins mun í dag funda með oddvitum allra framboða sem náðu fulltrúa inn í borgarstjórn. Prófessor í stjórnmálafræði segir Hildi Björnsdóttur með öll tromp á hendi og standa frammi fyrir pólitísku vali um meirihluta í íhalds- eða frjálslyndisátt. 18. maí 2026 12:02
Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Í hádegisfréttum verður rætt við prófessor í stjórnmálafræði um stöðuna í Reykjavík eftir borgarstjórnarkosningarnar um helgina. 18. maí 2026 11:39
Mótframbjóðendur „hvísla ástarorðum“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir að oddvitar annarra flokka séu farnir að hvísla ástarorðum eftir að Sjálfstæðisflokkurinn bar sigur úr býtum í sveitarstjórnarkosningum í nótt, samkvæmt nýjustu tölum. 17. maí 2026 03:48
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“