Salah eigingjarn og skuli hent út úr hópnum Sindri Sverrisson skrifar 18. maí 2026 11:00 Mohamed Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool. Getty Mohamed Salah er búinn að vera mjög eigingjarn og á ekki skilið að spila lokaleik Liverpool á tímabilinu, að mati Wayne Rooney sem segir Salah hafa varpað sprengju með skrifum sínum um helgina.
Salah dró ekkert af sér í skrifunum á Instagram, eftir 4-2 tap gegn Aston Villa, en nefndi þó hvergi knattspyrnustjórann Arne Slot á nafn. Þó er ljóst að spjótunum var beint að Hollendingnum þegar Salah talaði um að hann vildi að Liverpool yrði aftur „heví metal sóknarliðið sem andstæðingar þess óttast og lið sem vinnur titla. Það er fótboltinn sem ég kann að spila og við þurfum að endurheimta þessi einkenni og halda þeim. Það á að vera óumdeilanlegt og allir sem ganga í raðir félagsins ættu að aðlagast því.“ Salah hefur áður þyrlað upp ryki með skrifum í vetur en að mati Rooney er Egyptinn fyrst og fremst að breiða yfir mikla vonbrigðaframmistöðu sína á leiktíðinni. Að mati Rooney ætti Salah ekki að vera nálægt Anfield á sunnudaginn þegar tímabilinu lýkur hjá Liverpool með leik við Brentford, þar sem liðið gæti þó mögulega þurft sigur til að tryggja sig inn í Meistaradeild Evrópu. Verði þetta raunin hefur Salah spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool því eins og tilkynnt var í mras er hann á förum frá félaginu í sumar. „Mér finnst þetta sorglegt í lokin, miðað við allt sem hann hefur gert og áorkað hjá Liverpool. Núna er ekki rétti tímapunkturinn fyrir hann að koma fram og skjóta aftur á Slot,“ sagði Rooney í The Wayne Rooney Show. "I'd have him nowhere near the stadium in the last game" 🚫Wayne Rooney has slammed Mo Salah for his 'selfish' behaviour and told Arne Slot to deny him an emotional farewell at Liverpool 🗣️❌https://t.co/qIeE0LdMBl pic.twitter.com/uVJ02Ys6xR— Mirror Football (@MirrorFootball) May 18, 2026 „Hann vill spila þungarokksfótbolta, þannig að í rauninni er hann að segja að hann vilji fótbolta í stíl við Jurgen Klopp. Ég held bara að Mo Salah ráði ekki lengur við slíkan fótbolta. Ég held að fæturnir hans séu ekki lengur færir um að spila á þessum hraða og af þessari ákefð. Ef ég væri Arne Slot myndi ég ekki vilja hafa hann nálægt leikvanginum í síðasta leiknum. Ég lenti í þessu með Alex Ferguson. Við áttum í ágreiningi og urðum ósáttir og í síðasta leik Alex Ferguson á Old Trafford var ég ekki í hópnum af þeirri ástæðu. Það er næstum eins og hann hafi bara kastað sprengju og sagt að hann treysti ekki og trúi ekki á Arne Slot og næstum því kastað liðsfélögum sínum, sem verða þarna á næsta tímabili, fyrir vagninn og látið þá þurfa að díla við þetta líka og komið þeim í þá stöðu,“ sagði Rooney. „Reyna að réttlæta sína frammistöðu“ Salah, sem er 33 ára, hefur skorað 257 mörk og unnið sex titla með Liverpool á níu árum. Eftir að hafa skorað 29 mörk og fengið gullskóinn í fyrra hefur hann aðeins skorað 12 mörk í 40 leikjum í vetur og er Liverpool aðeins í fimmta sæti „Ég held að Salah sé að reyna að réttlæta sína frammistöðu og láta sér líða betur því hann hefur átt mjög slakt tímabil,“ sagði Rooney. „Þannig að ég held að hann hafi verið mjög eigingjarn í því sem hann gerði í þessi tvö skipti. Þetta er synd og stuðningsmennirnir verða hans megin, en ég held að þegar maður skoðar þetta betur, og hafandi verið í búningsklefa í svipuðum aðstæðum, þá get ég sagt að Mo Salah veit nákvæmlega hvað hann er að gera. Þetta er knattspyrnustjórinn þinn. Þú getur ekki sýnt honum vanvirðingu opinberlega tvisvar sinnum eins og hann hefur gert og komist upp með það. Og þarna, ef ég væri Arne Slot, þyrfti ég að sýna hver ræður og segja bara: Heyrðu, þú kemur ekki nálægt vellinum á sunnudaginn, hvort sem þér líkar það betur eða verr. Ég efast stórlega um að hann geri það, en mér finnst hann ætti að gera það. Auðvitað á hann skilið góða kveðjustund en á hann hana skilið bara fyrir þetta? Þetta er í annað sinn sem hann gerir þetta. Það er bara synd að sjá eina af stóru goðsögnum ensku úrvalsdeildarinnar yfirgefa deildina líklega við þessar aðstæður,“ sagði Rooney.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira