Síðasta verk Salah að sparka Slot? Valur Páll Eiríksson skrifar 18. maí 2026 07:01 Fjölmargir stuðningsmenn Liverpool standa með Salah og hallast að því að Liverpool skuli skipta um stjóra eftir tuttugasta tap liðsins á leiktíðinni á föstudagskvöldið var. Liverpool FC/Liverpool FC via Getty Images Ólga er í herbúðum Liverpool á Englandi eftir færslu Egyptans Mohamed Salah um helgina. Liverpool tapaði tuttugasta leik liðsins á leiktíðinni fyrir Aston Villa á föstudagskvöld.
Salah hefur verið að öðrum ólöstuðum besti leikmaður Liverpool síðasta áratuginn eða svo. Hann lenti í útistöðum við Slot í vetur þegar hlutverk hans fór minnkandi en titilvörn liðsins hefur verið meðal þeirra verri í ensku úrvalsdeildinni á þessari öld. Það er þrátt fyrir að Slot hafi ásamt stjórnendum félagsins eytt háum fjárhæðum í nýja leikmenn í sumarglugganum; Florian Wirtz, Alexander Isak, Hugo Ekitiké, Jeremie Frimpong, Milos Kerkez og fleiri til. Luis Díaz var á sama tíma sleppt til Bayern Munchen og Trent Alexander-Arnold til Real Madrid. Gagnrýnin á Liverpool-liðið hefur aukist jafnt og þétt á leiktíðinni og virðist stuðningsmenn komnir með nóg af hollenska stjóranum. Salah sagði frammistöðu Liverpool á tímabilinu óásættanlega í færslunni þar sem hann sagði alla staðla hafa slaknað. Í færslunni minnist Salah aldrei á Slot með nafni en það þarf engan Sherlock Holmes til að sjá að orðum hans er beint að hollenska stjóranum. Liverpool hafi tapað einkennum sínum, stíl og krafti. Orkan og krafturinn sem einkenndi Liverpool í stjóratíð forvera Slot, Jurgen Klopp, er á bak og burt og eru úrslitin ekki aðeins slakari en verið hefur, heldur virðist orðið leiðinlegra að horfa á leiki Liverpool-liðsins. Þeir eru hægir og tilþrifalitlir. Ef marka má viðbrögð leikmanna Liverpool við færslu Salah má af því dæma að ekki aðeins stuðningsmenn liðsins kalli eftir breytingum heldur einnig leikmannahópurinn. Stærstur hluti hópsins setti like við færslu Egyptans og þá tók Steven Gerrard, fyrrverandi fyrirliði Liverpool til margra ára, undir gagnrýni Salah. Stjórnendur Liverpool eru sagðir ætla að taka stöðufund með Slot að tímabilinu loknu og skiptar skoðanir sagðar um framtíð Hollendingsins. Þeir Richard Hughes og Michael Edwards, sem valdið hafa hjá félaginu, eiga stóra ákvörðun fyrir höndum en nú þegar hafa þeir misst af einum mögulegum eftirmanni. Xabi Alonso sem tekur við Chelsea í júlí. Hughes er sagður hallast meira að því að halda Slot en Edwards ekki eins sannfærður. Áhugavert verður að sjá hvort færsla Salah og viðbrögð leikmanna Liverpool við henni hafi áhrif. Það skyldi þó aldrei vera að síðasta verk Salah í Bítlaborginni sé að sannfæra stjórnina um að sparka Slot.
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Bestu kaupin í sögu enska boltans Enski boltinn Klopp umbreytir starfinu Fótbolti KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Fótbolti Tielemans tók vítið með Bruno Enski boltinn Hver var í flottustu treyjunni? Íslenski boltinn Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Fótbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Fleiri fréttir Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Sjá meira