Af hverju skiptir máli að kjósa í Garðabæ? Bryndís Matthíasdóttir skrifar 14. maí 2026 19:51 Sveitarstjórnarkosningar eru áhrifaríkasta leið íbúa til að móta eigið nærumhverfi. Ákvarðanir sem teknar eru í bæjarstjórn snerta okkur daglega, hvort sem um er að ræða skólamál, þjónustu við eldri borgara og fatlað fólk, samgöngur, skipulag eða menningu. Þess vegna skiptir kjörsókn öllu máli. Hún ræður því hvaða stefna verður ráðandi og hverjir fá umboð til að móta framtíð bæjarins. Fjölgun íbúa, en stöðnuð þátttaka Íbúum Garðabæjar hefur fjölgað hratt síðustu ár og byggðin orðið fjölbreyttari. Hagsmunir eru fleiri og raddirnar fjölskrúðugri. Þó hefur þessi þróun ekki endilega skilað sér inn í stjórnsýsluna, einfaldlega vegna þess að margir nýta ekki kosningarétt sinn. Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 voru 13.622 Garðbæingar á kjörskrá. Af þeim kusu 8.733, eða um 64%, og 2,1% atkvæða voru ógild. Stærsti listinn hlaut um 49% gildra atkvæða, sem samsvarar aðeins um þriðjungi allra sem eru á kjörskrá. Það þýðir að meirihluti íbúa hefur í raun ekki áhrif á niðurstöðuna. Þetta snýst ekki bara um tölur Þegar svo stór hópur kýs ekki verða þúsundir radda áhrifalausar. Niðurstöður endurspegla þá ekki fjölbreytileika bæjarins og hagsmunir margra hópa verða ekki hluti af ákvarðanatöku. Lýðræðið þrengist og völdin færist í hendur færri. Hversu mikið skiptir eitt atkvæði? Meira en flestir gera sér grein fyrir.Í sveitarstjórnarkosningum standa oft færri en þúsund atkvæði að baki hverju sæti. Nokkur hundruð atkvæði geta ráðið því hvaða flokkur fær fulltrúa og enn færri geta ákvarðað hverjir mynda meirihluta. Í bæ eins og Garðabæ, þar sem kjörsókn er um 60–70%, verður hvert atkvæði hlutfallslega mun verðmætara en í kosningum á landsvísu. Af hverju ættir þú að kjósa? Því atkvæðið þitt mótar samfélagið sem þú lifir í.Það hefur áhrif á: hvernig byggðin þróast, hvernig fjármunum bæjarins er ráðstafað, hvaða þjónusta er í boði og hvernig hún er veitt, hvaða gildi og áherslur ráða för í bæjarstjórn. Og það mikilvægasta:Ef þú kýst ekki, þá tekur einhver annar ákvörðun um hvernig þitt nærumhverfi mun líta út. Höfundur er hagfræðingur, stjórnmálafræðingur og íbúi í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Garðabær Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Sveitarstjórnarkosningar eru áhrifaríkasta leið íbúa til að móta eigið nærumhverfi. Ákvarðanir sem teknar eru í bæjarstjórn snerta okkur daglega, hvort sem um er að ræða skólamál, þjónustu við eldri borgara og fatlað fólk, samgöngur, skipulag eða menningu. Þess vegna skiptir kjörsókn öllu máli. Hún ræður því hvaða stefna verður ráðandi og hverjir fá umboð til að móta framtíð bæjarins. Fjölgun íbúa, en stöðnuð þátttaka Íbúum Garðabæjar hefur fjölgað hratt síðustu ár og byggðin orðið fjölbreyttari. Hagsmunir eru fleiri og raddirnar fjölskrúðugri. Þó hefur þessi þróun ekki endilega skilað sér inn í stjórnsýsluna, einfaldlega vegna þess að margir nýta ekki kosningarétt sinn. Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 voru 13.622 Garðbæingar á kjörskrá. Af þeim kusu 8.733, eða um 64%, og 2,1% atkvæða voru ógild. Stærsti listinn hlaut um 49% gildra atkvæða, sem samsvarar aðeins um þriðjungi allra sem eru á kjörskrá. Það þýðir að meirihluti íbúa hefur í raun ekki áhrif á niðurstöðuna. Þetta snýst ekki bara um tölur Þegar svo stór hópur kýs ekki verða þúsundir radda áhrifalausar. Niðurstöður endurspegla þá ekki fjölbreytileika bæjarins og hagsmunir margra hópa verða ekki hluti af ákvarðanatöku. Lýðræðið þrengist og völdin færist í hendur færri. Hversu mikið skiptir eitt atkvæði? Meira en flestir gera sér grein fyrir.Í sveitarstjórnarkosningum standa oft færri en þúsund atkvæði að baki hverju sæti. Nokkur hundruð atkvæði geta ráðið því hvaða flokkur fær fulltrúa og enn færri geta ákvarðað hverjir mynda meirihluta. Í bæ eins og Garðabæ, þar sem kjörsókn er um 60–70%, verður hvert atkvæði hlutfallslega mun verðmætara en í kosningum á landsvísu. Af hverju ættir þú að kjósa? Því atkvæðið þitt mótar samfélagið sem þú lifir í.Það hefur áhrif á: hvernig byggðin þróast, hvernig fjármunum bæjarins er ráðstafað, hvaða þjónusta er í boði og hvernig hún er veitt, hvaða gildi og áherslur ráða för í bæjarstjórn. Og það mikilvægasta:Ef þú kýst ekki, þá tekur einhver annar ákvörðun um hvernig þitt nærumhverfi mun líta út. Höfundur er hagfræðingur, stjórnmálafræðingur og íbúi í Garðabæ.
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar