Fyrirmyndir Sigrún Steinarsdóttir skrifar 14. maí 2026 08:41 Ég held að ég geti fullyrt að nær öll okkar eigum eða höfum átt fyrirmyndir. Í upphafi lífsins eru það forráðamenn sem gegna því hlutverki. Þar mótast fyrstu viðhorfin, hegðunin og skilningur á heiminum. Eftir því sem börn eldast breytast fyrirmyndirnar. Þau tengjast starfsmönnum í leikskóla og skóla, þjálfurum í íþróttum og vinum. Forráðamenn hætta jafnvel á tímabili að vera „kúl“, en áhrif þeirra hverfa þó aldrei alveg. Rannsóknir sýna að jákvæðar fyrirmyndir tengjast betri sjálfsmynd barna, meiri félagsfærni og minni líkum á áhættuhegðun. Á sama tíma getur skortur á slíkum fyrirmyndum, eða neikvæðar fyrirmyndir, haft alvarleg áhrif – sérstaklega hjá börnum sem búa við fátækt eða óstöðugleika. Gögn frá OECD sýna að um helmingur barna endar á svipuðu hæfnistigi og foreldrar þeirra. Það þýðir ekki að börnin velji endilega nákvæmlega sama starf og foreldri, en tengslin eru sterk milli kynslóða. Félagsleg staða, menntun og aðstæður í æsku hafa áfram mikil áhrif á lífsleið einstaklinga. Ástæðurnar eru nokkrar. Börn hámenntaðra foreldra fara líklegar í nám, á meðan önnur hafa færri tækifæri – foreldrar varða að vissu leyti leiðina. Tengsl skipta líka máli, þar sem mörg störf opnast í gegnum tengslanet. Og svo eru það fyrirmyndirnar sjálfar: börn herma eftir því sem þau sjá. Ef þau sjá foreldra sína eða aðra í kringum sig í ákveðnum störfum eða sjá eða heyra viðhorf foreldra getur það mótað val þeirra síðar meir. Sterkar fyrirmyndir utan heimilisins skipta miklu máli fyrir framtíð barna, sér í lagi þar sem aðstæður heima fyrir kunna að vera bágar. Börn sem alast upp við fátækt hafa oft minni aðgang að jákvæðum fyrirmyndum, sérstaklega í skipulögðu starfi eins og íþróttum. Þau upplifa meiri streitu, eru líklegri til að dragast úr félagsstarfi og hafa minni möguleika á að breyta stöðu sinni. Það skiptir miklu máli að við áttum okkur á að íþróttir og tómstundir eru ekki bara afþreying – þær eru vettvangur þar sem börn hitta fyrirmyndir utan heimilis. Samfélag sem leyfir að efnahagur foreldra ráði því hvaða fyrirmyndir börn hafa, er samfélag sem velur að skapa ójöfnuð. Það viljum við í Samfylkingunni á Akureyri ekki. Við trúum því að jöfn samfélög séu sterk samfélög og að öll börn eigi að fá sömu tækifæri. Höfundur skipar þriðja sæti lista Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar