Það á að vera einfalt að búa í Reykjavík Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar 14. maí 2026 08:51 Undanfarnar vikur höfum við í Viðreisn hitt fullt af fólki sem elskar Reykjavík en er orðið þreytt á því hvað allt virðist oft flókið. Foreldra sem þurfa að eyða hálfum deginum í skutl. Ungt fólk sem veit hreinlega ekki hvort það hafi efni á að búa hér í framtíðinni. Börn sem fá ekki nauðsynlega hjálp fyrr en það er orðið of seint. Starfsfólk sem vill gera vel en vinnur í kerfi sem er orðið of þungt. Ég skil þessa tilfinningu mjög vel enda á það ekki að vera svona erfitt að lifa venjulegu lífi í Reykjavík. Borg sem virkar í raunveruleikanum Reykjavík á ekki bara að líta vel út í glansandi kynningum eða skipulagsgögnum. Hún þarf að virka í raunveruleikanum. Í morgunstressi barnafjölskyldunnar á leiðinni í skólann. Í því hvort barn komist í frístundir í sínu hverfi. Í því hvort hjálpin komi áður en vandinn verður stærri. Í því hvort fólk hafi efni á að búa hér áfram í borginni sem það kallar heimaborg sína. Góð borg er sundlaugin í hverfinu. Leikvöllurinn í nágrenninu. Félagsmiðstöðin sem grípur krakkana áður en þau detta úr virkni. Íþróttafélagið sem heldur utan um samfélagið. Tónlistin, menningin, kaffihúsin, litlu fyrirtækin og staðirnir þar sem fólk hittist og upplifir að það tilheyri samfélaginu sínu. Snúum þessu við Þess vegna skiptir máli hvernig borgin er rekin. Þegar kerfið verður of flókið finnur fólk fyrir því. Þegar ákvarðanir taka óþarfalega langan tíma finnur fólk fyrir því. Þegar þjónustan er langt í burtu, biðlistarnir of langir og hverfin ekki nógu sterk þá verður borgin erfiðari en hún þarf að vera. Ég býð mig fram vegna þess að ég vil taka þátt í að gera Reykjavík að borg sem virkar betur fyrir venjulegt fólk. Borg sem er skemmtilegri, einfaldari, mannlegri og hlýrri. Borg þar sem við treystum fólki meira. Þar sem við auðveldum fólki að byggja, að skapa, að stofna og reka fyrirtæki. Þar sem við auðveldum fólki að lifa sínu lífi. Borg þar sem börn fá að blómstra, fjölskyldur fá að anda og fólk finnur að borgin sé með því í liði. Það á ekki að vera svona flókið að búa í Reykjavík. Snúum þessu við og gerum það einfalt að búa í borginni okkar. Höfundur skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar