„Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ Agnar Már Másson skrifar 14. maí 2026 00:10 Frá kappræðunum í dag. Skjáskot/Vísir Oddvitum Miðflokks og Pírata í Reykjavík hitnaði í hamsi þegar samgöngumálin og Borgarlínan bárust til tals í kappræðum Sýnar í kvöld.
Ari Edwald í Miðflokki hafði verið spurður hvað Miðflokksmenn ætluðu að boða í stað Borgarlínu, sem Miðflokksmenn hafa alfarið hafnað. Ari sagði flokk sinn hafa lagt fram áætlun um hraðvagnakerfi sem myndi hafa sama markmið, að ná sama árangri og Borgarlínu er ætlað að ná varðandi tíðni, betri strætóa, betri stoppistöðvar og slíkt. „Við teljum mikilvægt að fara hagkvæmar leiðir til að spara peninga, því að almenningur í borginni þarf að borga þetta allt saman og sérfræðingar hafa bent á það að með því að byggja á forgangsakreinum hægra megin við umferð, þá bæði kosti það bara einn fjórða eða einn þriðja af því sem Borgarlínan á að kosta og feli í sér minna rask,“ sagði Ari og benti svo á Suðurlandsbraut meðal annars. Kristinn Jón Ólafsson í Pírötum skaut þá inn í: „Það tryggir samt ekki áreiðanleika kerfisins og tíðni og öryggi og aðgengi.“ Ari svaraði: „Jú, jú, jú. Víst gerir það það; það segja sérfræðingarnir.“ Spurður til hverra sérfræðinga hann vísaði þar til svaraði Ari því að hann vísaði í skýrslu er nefndist „Valkostir við borgarlínu“. Sú skýrsla unnin fyrir samtök er nefnast Áhugafólk um samgöngur fyrir alla (SFA) og frjálshyggjuhugveitunni Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE). Ari tók fram að einn höfunda skipaði sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. „Ég er nú hissa að þú hafir ekki lesið hana, Kristinn, vegna þetta er mjög mikilvæg skýrsla sem hefur farið víða,“ sagði Ari og uppskar hlátur úr sal. Þá sagði hann að það skipti vitaskuld máli að kostnaður við Borgarlínu hefði aukist, því að allt verði það skattur á borgarbúa. En gæti Ari farið í meirihluta þar sem Borgarlína yrði keyrð áfram? „Ég var að segja að við leggjum til aðra leið til að bæta almenningssamgöngur sem nær sama markmiði en kostar minna,“ svaraði Ari. Þá greip Kristinn aftur orðið og sagði að það myndi ekki ná sama markmiði. „Það er bara þín skoðun,“ sagði Ari þá, „og ekki vera að grípa fram í fyrir mér.“ Kristinn sagði þá að með sérakreinum Borgarlínu myndi fólk komast frá A til B á þeim tíma sem það þyrfti. „Það er augljóst að þú ætlar ekki að borga þessa hundrað milljarða sem við erum að tala um. Þeir eiga bara að leggjast á einhverja aðra,“ sagði Ari. Píratinn svaraði: „Hvaða kostnaður er að fara í samgöngukerfið í dag? Í vegakerfið, í bílinn, í heilbrigðiskostnað, í kringum allt samgöngukerfið. Það er miklu meiri kostnaður. Og loksins þegar við ætlum að leggja kostnað í almenningssamgöngur í fyrsta sinn [Ari: „Fyrsta sinn?“] – fyrsta sinn almennilega — og breyta aðalskipulagi Sjálfstæðisflokksins frá 1962 og fara út í framsýna borg þar sem fólk kemst á milli staða... ég skil ekki að fólk tali gegn þess aðþessu.“ Og lét þá Ari fyrrgreind ummæli um rörsýn falla. „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn,“ sagði Ari Edwald þá. „Nei nei, þetta er framtíðarsýn,“ svaraði Kristinn þá. Einar Þorsteinsson úr Framsókn fann sig knúinn til þess að stíga inn í: „Mér finnst að við þurfum einhvern fullorðinn í herbergið hérna.“ Hann sagði að hægt væri að finna millileið í málefnum Borgarlínu sem sátt gæti ríkt um en fjárfesta þyrfti í almenningssamgöngum og öðrum þáttum vegakerfisins. Fleiri oddvitar kváðu sér hljóðs en sjá má samgönguumræðuna alla í spilaranum hér að ofan.
Samgöngumál Sveitarstjórnarkosningar 2026 Borgarstjórn Miðflokkurinn Píratar Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Sjá meira