Hin heillandi fortíðarþrá Ragnar Sverrisson skrifar 13. maí 2026 06:42 Stundum er bent á að kosningabarátta sé jafnan heldur leiðinleg og fátt sem framkallar bros eða hlátur. Nú hafa vinir mínir á L-listanum á Akureyri bætt úr þessu svo um munar. Ég vissi auðvitað að það góða fólk hefur húmorinn í lagi en að hann væri svona þróaður og stórfenglegur kom mér töluvert á óvart. Þetta gerðist þegar L-listinn veifar nú tillögu um að hverfa frá þeirra eigin ákvörðun fyrir fjórum árum um núverandi bílastæði og -greiðslur. Vilja fara aftur í sama kerfið með bláu klukkuna sem þau töldu með öllu ónothæft en láta nú eins og það hafi vegna óútskýranlegs kraftaverks orðið miklu betra með því að leggja það niður í nokkur ár! Sannleikurinn er auðvitað sá að kynning þeirra sjálfra á breytingunum á sínum tíma var nánast engin þannig að bæjarbúar rugluðust í ríminu og óánægja gaus upp. Nú er gert út á þessa sömu óánægju um þeirra eigin verk og horft til fortíðar til að laga ástandið í samræmi við hið fornkveðna að þangað leitar klárinn sem hann er kvaldastur. Þetta þótti mér með töluverðum ólíkindum enda tel ég miklu vænlegra til árangurs að horfa til framtíðar í þessum efnum og breyta núverandi kerfi til þess horfs sem víða er nú notað með góðum árangri. Þá fengjum við sjálfvirka rukkun fyrir bílastæði í heimabankann og gætum gengið frá greiðslu þegar heim væri komið; einfalt kerfi sem hefur reynst ágætlega. En auðvitað er fortíðarþráin merkilegt fyrirbrigði og vert að skoða ýmsa kosti í þeim efnum og brosa um leið. Hvernig væri til dæmis að leggja niður öll þessi umferðarljós og hverfa aftur til þess tíma þegar lögreglumennirnir okkar góðu, með Gísla löggu í fararbroddi, stóðu á hverju götuhorni og stjórnuðu þaðan umferðinni af myndugleik með priki sem tekið var eftir. Væri ekki upplagt að hverfa aftur til fortíðar og taka þetta forna verklag upp aftur? Eða er núverandi ljósakerfi bara ágætt þrátt fyrir allt? Það er hin stóra spurning, en þá er með öllu óvíst að nokkuð framboð geti í vandræðum sínum aflað sér aukins fylgis með slíkri tillögu enda þótt einhverjir hefðu eflaust gaman af þess háttar pólitískum loftfimleikum. Alla vega á meðan enginn slasar sig. Þannig eru örugglega til ýmsar fleiri leiðir til að færa fortíðina með öllum sínum göllum og leiðindum til okkar aftur eins og L-listafólkið reynir af miklum móð þessa daganna. En auðvitað gæti það verið beggja handa járn því þrátt fyrir allt vindur okkur fram á veginn og framfarir sjá dagsins ljós eftir því sem árin líða með því að nýta nýjungar á hinum ýmsum sviðum en ekki að hverfa aftur til eldri vinnubragða sem hafa sýnt sig og sannað að vera ónothæf. Toppurinn í gríninu núna er sú staðreynd að þau sem komu núverandi bílastæðakerfi á með miklum bækslagangi reyna nú af sama kappi að sannfæra bæjarbúa um að það hafi verið tóm vitleysa og því sé best að taka upp gamla kerfið sem þau sjálf afnámu eins og frægt er. Á meðan fólk tekur þennan poppulista málflutning ekki of alvarlega er alla vega hægt að hafa gaman að honum og brosa í kampinn. Í því felst skemmtanagildið og er þá óneitanlega til nokkurs unnið! En ef til vill yrði skynsamlegast að iðka smá íbúalýðræði í þessu sambandi og efna til samráðsfundar með bæjarbúum þar sem kostir og gallar hinna ýmsu leiða í bílastæðamálum verði til umræðu og komist að sameiginlegri niðurstöðu. Sem sagt: Meira íbúalýðræði en minna afturhvarf til fortíðar með tilheyrandi vandræðum. Þrátt fyrir það getum við haldið áfram að brosa hvert að öðru sem er auðvitað alveg nauðsynlegt. Höfundur skipar 22. sæti S-listans á Akureyri Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bílastæði Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar