Hvað ætla ég að kjósa ef hagur barna og barnafjölskyldna stendur mér næst? Júlíus Arnarson skrifar 12. maí 2026 12:32 Sem uppalinn Garðbæingur hef ég fylgst með bænum stækka og þroskast síðustu áratugi. Lítill og fallegur bær er orðinn að rúmlega 20. þúsund íbúa samfélagi. Ég man vel þá tíma þegar við lékum okkur í fótbolta á auðum svæðum þar sem nú eru fullsköpuð íbúðahverfi, og ég á góðar minningar af skólagöngu minni sem var frjáls og áhyggjulaus. Í dag er Garðabær mikið breyttur, líkt og mínar aðstæður. Orðinn fimmtugur fjölskyldumaður og el börn mín upp sem Garðbæinga með stóru G. Yngsta barnið er í leikskóla og tvö eldri eru í Hofstaðaskóla. Málefni barna og barnafjölskyldna standa mér því mjög nærri og það skiptir mig miklu máli hvernig haldið er á spilunum gagnvart þessum mikilvæga hópi í Garðabæ. Af hverju Viðreisn Þegar ég hóf vegferð mína með Viðreisn í Garðbæ fann ég strax að málefni barna og barnafjölskyldna væri eitt helsta áherslumál flokksins. Það gladdi mig mikið, því oft hefur mér fundist að málefni barna séu í sumum tilvikum notuð sem slagorð, án þess að fullur vilji sé að baki. Það á sannarlega ekki við um efstu tvo frambjóðendur Viðreisnar. Guðlaugur er ötull talsmaður um hagsmuni barna og er hann m.a. formaður fósturforeldra á Íslandi. Í öðru sæti á lista Viðreisnar er Harpa Þorsteinsdóttir, hún er uppeldis- og menntunarfræðingur, og lýðheilsufræðingur og starfar sem slíkur. Þau tala um þessi mál af fullum þunga, reynslu og þekkingu. Fyrir komandi kosningar leggur Viðreisn því til mikilvæg málefni sem má sannarlega laga í Garðabæ með kröftugum aðgerðum. Fyrst er því að spyrja, hvað er það sem má bæta? Hvatapeningur og fjölgreinaafsláttur Flestar barnafjölskyldur hafa fundið fyrir því að æfingagjöld hafa hækkað mikið undanfarin ár, svo mikið að komið er að þolmörkum hjá mörgum fjölskyldum. Að auki bætist við kostnaður vegna búninga, mótagjalda, ferðakostnaður og ýmis annar kostnaður. Þetta bitnar sérstaklega á barnríkum og efnaminni fjölskyldum og þeim einstaklingum sem hafa minni möguleika en aðrir. Farið er að bera á því í Garðabæ að foreldrar þurfi að setja takmörk á þær íþróttir og tómstundir sem börn vilja stunda vegna kostnaðar. Garðabær greiðir hvatapeninga árlega að upphæð 67.000 kr. til hvers barns á aldrinum 5-18 ára sem stundar skipulagt íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf. Auk þess er 15.000 kr. auka framlag til tekjulægri heimila. Ekki er boðið upp á systkina- og fjölgreinaafslátt í Garðbæ líkt og gert er í flestum öðrum sveitarfélögum. Viðreisn er með skýra stefnu í þessum málum. - Allir á aldrinum 3-20 ára eiga að hafa rétt á hvatapeningi og mikilvægt er að innleiðing systkina- og fjölgreinaafslátt sem fyrst í Garðbæ. Vandamálið er núna. Öflugt frístundastarf og sumarfrístund Þegar sumarfríin nálgast hefst fjölskyldan handa við að púsla saman sumarfríi foreldra og sumarfríi barna sem er töluvert lengra. Fljótt sést að dæmið gengur ekki upp, nema með mikilli hjálp frá aðstandendum og samvinnu á milli foreldra annarra barna til að brúa bilið. Hægt er að skrá börn á ýmis stök námskeið sem eru skipulögð af hálfu íþróttafélaga og félagasamtaka, en það er takmörkuð lausn á vandanum. Bjóða þarf upp á heildstæða lausn fyrir alla. Í flestum bæjarfélögum er boðið upp á skipulagða sumarfrístund þar sem börnum er boðið upp á vandað starf þar sem farið er í leiki, útivist, ferðir og jafnvel lærdóm. Í Garðbæ er ekki boðið upp á sumarfrístund og Viðreisn mun beita sér fyrir því að sumarfrístund verði tekin upp sem fyrst í Garðabæ til að auka valkosti og mæta foreldrum þeirra sem eiga ekki kost á að taka sér lengri sumarfrí en gengur og gerist í atvinnulífinu. Öll börn eiga að geta tekið þátt í starfinu, óháð efnahag og bakgrunni. Styrkjum skóla og stuðningskerfi barna Af minni reynslu er skólakerfið í Garðabæ gott og þar starfar okkar mikilvægasta fólk að mínu mati. Enda hafa skólar Garðabæjar staðið sterkum fótum í samanburði við aðra skóla á landsvísu um langan tíma. Þó eru mörg tækifæri til að bæta stuðning við börn með ólíkar þarfir. Það þarf að mynda stefnu í Garðabæ, meðal annars til að færa þjónustuna inn í skólana, eins og sálfræðinga, talmeinafræðinga og greiningaraðila. Miklu máli skiptir að greina aðkallandi vanda strax og það væri gert með að koma með þjónustuna til barna, frekar en að ávísa þeim út í samfélagið, á langa biðlista og sem oft á tíðum skapar óvissu og óöryggi. Garðabær getur auðveldlega verið til fyrirmyndar varðandi stuðning handa börnum og verið í forystu með öfluga grunnþjónustu og snemmtækan stuðning. Hvað skal kjósa? Hægt væri að telja upp fleiri málefni sem Viðreisn leggur áherslu á en hér hafa verið talin upp. Sem dæmi má nefna bættar samgöngur fyrir krakka á skólaaldri, styrkja leikskóla bæjarins, skapa betri starfsskilyrði og faglegan stuðning fyrir kennara í skólum og leikskólum. Ég er stoltur af mínum uppruna og tala vel um bæinn minn hvert sem ég kem. En ég hef séð að hann gæti verið enn betri. Að kjósa Viðreisn í Garðabæ er atkvæði fyrir málefnum barna og barnafjölskyldna. Hæfir og reynslumiklir fulltrúar sem munu hafa sterka rödd til að bæta hag barna og umhverfi þeirra í bænum. Viðreisn vill tryggja að allir Garðbæingar beri umhyggju fyrir Garðbæ út ævina - alveg frá fyrstu skrefum. Mitt val er augljóst. Höfundur er í 7. sæti á lista Viðreisnar í Garðbæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar