80% íbúða til fjárfesta — en kosningarnar snúast um bílastæði Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar 11. maí 2026 10:11 Eftir að hafa setið í stjórn Leigjendasamtakanna í meira en sex ár geri ég mér vel grein fyrir því hversu alvarleg staðan er á húsnæðismarkaði hér í Reykjavík. Sú staða var mjög sýnileg meðal frambjóðenda á pallborði Leigjendasamtakanna þann 2. mars síðastliðinn, en nálgast má útsendingu frá því pallborði á YouTube. Samt á greinilega ekki að bæta úr þessari stöðu. Það á ekki að kjósa um húsnæðismál og hvað þá ræða þau að einhverju viti fyrir þessar kosningar. Af hverju? Þrátt fyrir að húsnæðisverð í borginni hafi hækkað tvöfalt á við laun síðustu 15 ár.Þrátt fyrir að það kosti um 70% af lágmarkslaunum að leigja meðalíbúð í Reykjavík í dag, á meðan sambærilegt hlutfall í höfuðborgum hinna Norðurlandanna er um 44%. Hér var hlutfallið einnig um 44% um aldamótin, áður en markaðnum var „treyst“ fyrir því að uppfylla húsnæðisþörf almennings.Þrátt fyrir að um helmingur fólks undir þrítugu hérlendis komist ekki að heiman, hvorki í eigið húsnæði né leiguhúsnæði.Þrátt fyrir að einungis 3,7% þeirra sem hafa keypt sér íbúð á síðustu árum hafi getað gert það án hjálpar frá ættingjum.Þrátt fyrir að þúsundir nýbygginga standi hér tómar og íbúðir séu hættar að seljast sökum þess hversu dýrar þær eru. Þetta er vægast sagt furðuleg staða, er það ekki? Er það bara í lagi að 80% íbúða fari til fjárfesta og leigjendum þessa lands fjölgi í sífellu, úr 6–7% um aldamót í 28–30% í dag og líklegast nálægt 40% um 2030? Ef við reynum að geta okkur til um hvaða ástæður liggja að baki þessu sinnuleysi væntanlegra borgarfulltrúa okkar, þá eru í raun bara tvær augljósar skýringar: Þeim er sama. Þau hafa það fínt. Og flokkar þeirra, flestir hverjir, bera ábyrgð á ástandinu — hvort sem það er í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði eða Mosfellsbæ. Sjálfstæðisflokkurinn, sem vill komast til valda í Reykjavík og hefur verið við stjórn í landsmálunum stóran hluta þess tíma sem húsnæðiskerfinu okkar var rústað, telur enn að markaðurinn bjargi þessu. Þrátt fyrir að hann hafi augljóslega ekki gert það — og haft til þess 25 ár. Og þrátt fyrir að það sé almennt viðurkennt í Evrópu að húsnæðismál séu ekki eitthvað sem hægt er að treysta fjármálaöflunum einum fyrir. Framsókn hefur ekki einu sinni gott slagorð fyrir þessar kosningar, hvað þá eitthvað innihald. Miðflokkurinn ber í raun enga ábyrgð á neinu, neins staðar — nema þá helst vaxandi andúð í garð útlendinga. Oddviti þeirra er þó einn fárra sem reynt hefur að ræða húsnæðismál, en þegar málflutningurinn byggir alfarið á greinum annarra og engin eigin stefna fylgir, verður trúverðugleikinn lítill. Samfylkingin ber ábyrgð á ástandinu í höfuðborginni og hefur rekið hér ónýta húsnæðisstefnu í bráðum tvo áratugi. Auk þess sem henni er undarlega hlýtt til ríks fólks sem á bensínstöðvar. Flokkur fólksins, þrátt fyrir að vera með ráðherra málaflokksins sem ætlar sér að breyta hér um kúrs, virðist ekki hafa erindi og er litaður af því að starfa í núverandi meirihluta. Vinstrið er einnig litað af núverandi samstarfi, en þau eru samt á flugi. Þau sjá klárlega að gróðapungum og markaðsöflunum er ekki treystandi til að leysa húsnæðisvandann. Sósíalistar hafa komið ferskir inn, með öfluga unga konu í stafni, og virðast ætla að ná manni inn. Þau eiga það sameiginlegt með Vinstrinu að treysta ekki markaðinum fyrir húsnæðismálunum. Og þau, ásamt Vinstrinu og Flokki fólksins, virðast vera þau einu sem vilja ræða húsnæðismál í aðdraganda kosninga. En kannski er þetta spurning um kjósendurna sjálfa? Merkilega virðist það skipta íbúa úthverfanna mestu máli að það skorti bílastæði í miðborginni, þrátt fyrir fjölda bílastæðahúsa. Það sama sést í umræðunni um þéttingu byggðar. Allir segjast vilja leysa húsnæðisvandann, en um leið og á að byggja íbúðir nálægt fólki verður umræðan allt í einu um yfirbragð hverfa, bílastæði og það hvort breytingarnar komi of nálægt eigin lóð. Enginn vill búa í blokkum, en samt vill enginn kjósa um það. Flestir vilja bæta hér samgöngur, en helst finna upp nýja leið til þess — leið sem engum öðrum í heiminum hefur dottið í hug áður. Þannig verður húsnæðiskreppan alltaf vandamál einhvers annars. Allir sjá að fasteignaverð er orðið allt of hátt. Allir vilja að ungt fólk komist að heiman, allir vilja lægra leiguverð og allir vilja fleiri íbúðir — bara ekki í mínu hverfi og ekki á minni götu. Skrítið, er það ekki? Úps, ég gleymdi Pírötum. Kannski gerðuð þið það líka? Höfundur er formaður Leigjendasamtakanna Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun