Markviss uppbygging í þágu íbúa Sandra Sigurðardóttir skrifar 10. maí 2026 17:15 Á yfirstandandi kjörtímabili hefur átt sér stað mikil og markviss uppbygging á velferðarþjónustu Hveragerðisbæjar. Hveragerðisbær sagði sig úr Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings, sem var byggðasamlag sem þjónustaði uppsveitir Árnessýslu, Ölfus og Hveragerðisbæ, og innleiddi nýtt svið með það að markmiði að auka gæði þjónustunnar til muna og mæta þörfum íbúa af meiri dýpt og fagmennsku en áður hafði verið gert. Úr byggðasamlagi í öflugt velferðarsvið Ef borin er saman velferðarþjónusta Hveragerðisbæjar haustið 2022 við daginn í dag sést með skýrum hætti sú vegferð sem sveitarfélagið hefur farið. Árið 2022 voru þrjú stöðugildi hjá byggðasamlaginu sem sinntu velferðarþjónustu, að auki var Hveragerðisbær með eitt og hálft stöðugildi til viðbótar. Starfsmönnum hefur fjölgað og þjónusta aukin til muna, en í dag starfa fimm félagsráðgjafar auk þess sem nú er 1,9 stöðugildi þroskaþjálfa. Ef þjónustan er sett í samhengi við íbúafjölda þá þjónusta nú 6,9 stöðugildi 3.467 íbúa Hveragerðis, áður voru 4,5 stöðugildi sem þjónustuðu 10.680 íbúa Hveragerðis, Ölfuss og uppsveita Árnessýslu. Nýsköpun í stuðningsþjónustu Eitt af stóru framfaraskrefum kjörtímabilsins er innleiðing á sértækri stuðningsþjónustu, þar sem áhersla er lögð á valdeflingu og sjálfstæði þjónustuþega. Markmiðið er að aðstoða fólk við daglegt líf, hvort sem það er stuðningur við heimilishald, þátttaka í tómstundum eða þjálfun í stafrænum lausnum. Árangurinn af þessari nýju nálgun er nú þegar farinn að segja til sín. Notendur hafa sýnt aukna virkni og sjálfstraust, og dæmi eru um að einstaklingar hafi náð að snúa aftur á vinnumarkað eða hefja nám í kjölfar stuðningsins. Þessi þjónusta hefur mikið forvarnargildi og dregur úr félagslegri einangrun. Styttri biðlistar og aukin gæði Með öflugra teymi fagaðila, sem telur nú meðal annars félagsráðgjafa, þroskaþjálfa og foreldra- og uppeldisráðgjafa hefur tekist að stytta biðlista og bæta eftirfylgni svo um munar. Barnaverndin hefur verið styrkt og starfa í dag tveir starfsmenn ásamt tilfallandi verktökum sem sinna þeim málaflokki, sem gerir það að verkum að hægt er að nýta viðeigandi úrræði fyrr. Vistgreiðslur og stuðningur við fósturfjölskyldur hafa aukist verulega, sem endurspeglar að fleiri börn fá nú þá þjónustu sem þau þurfa innan kerfisins. Framtíðarsýn Uppbyggingin á velferðarsviði Hveragerðisbæjar er til marks um skýra framtíðarsýn þar sem hagsmunir íbúa eru í fyrirrúmi. Verkefnin eru enn mörg og ákall er um fleiri úrræði innanbæjar fyrir endurhæfingu. Ljóst er að sú faglega vinna sem átt hefur sér stað á kjörtímabilinu hefur lagt traustan grunn að öflugra gæðasamfélagi í Hveragerði. Höfundur er forseti bæjarstjórnar og formaður velferðar- og fræðslunefnd Hveragerðisbæjar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sandra Sigurðardóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar