Woke – rétttrúnaður og refsivöndur Sigfús Aðalsteinsson skrifar 9. maí 2026 18:01 Fyrirbærið „woke“, sem grasserað hefur hér á landi undanfarin ár, er rétttrúnaður sem þolir ekki ólíkar skoðanir. „Wokið“ gat af sér hugsanalöggu sem hóf samstarf við dómstól götunnar og saman fóru þessi fyrirbæri að verðlauna „réttar“ skoðanir og refsa þeim „röngu“ með opinberri skömm, lítilsvirðingu, útilokun og þöggun. Hrokinn sem birtist í „wokinu“ er óþol gagnvart ólíkum skoðunum sem í kjölfarið er fylgt eftir með útskúfun og mannorðsmeiðingum. Fagnaðarerindi „woke“ boðar umburðarlyndi og fjölbreytileika. Reyndin er hið gagnstæða: óþol, tortryggni, lítilsvirðing og útskúfun. „Réttlæti“ sem þolir ekki gagnrýni Hroki „woke“-stefnunnar snýr að því að staðsetja sig fyrir ofan umræðuna. Ákveðnar niðurstöður eru kynntar sem siðferðilega óumdeilanlegar og gagnrýni er ekki meðtekin sem eðlilegur þáttur í lýðræðislegri umræðu heldur sem merki um skort á innsæi, skilningi, mennsku, samkennd eða siðferði. Sem sagt, ef þú gleypir ekki „wokið“ hrátt er í lagi að stimpla þig sem vonda eða illa upplýsta manneskju. Afleiðingin er þöggun. Fólk hættir að tjá sig, ekki af virðingu heldur af ótta við heiftarleg viðbrögð. Lýðræðisleg þátttaka minnkar, fólk veigrar sér við að tjá skoðanir sínar og velur þögn fram yfir tilraun til heiðarlegrar umræðu. „Wokið“, hugsanalöggan og dómstóll götunnar mynda síðan saman ritskoðunardeild sem fylgist með því sem þú segir og dregur þig fyrir sinn haturs-orðræðu-götu-dómstól ef þú segir eitthvað sem þeim mislíkar. Þetta eru ekki lýðræðislegar framfarir heldur hið gagnstæða, afturför. Þetta er afl óttans sem ýtir undir sjálfsritskoðun og takmarkar málfrelsi með aðferðum alræðisríkja. Valdbeiting í nafni góðra gilda „Woke“ í sinni nöktu mynd gengur út á þvingað samræmi, sem kalla má hugrænt eða andlegt ofbeldi. Fræðsla verður skylda, orðalag verður krafa, vottun verður mælikvarði og inngilding verður innræting. Þessi stefna er réttlædd í nafni þess að einhvers betra sé að vænta og að hún boði bjartari tíma með blóm í haga. En til að lokatakmarkinu verði náð þarf „wokið“ að smeygja sér inn í fyrirtæki, stjórnmál og stofnanir til að „endurmennta“ þá sem eru ekki á sömu línu. Í reynd er verið að skilgreina hvað sé „rétt“ að hugsa og hvað ekki. Ef ólíkar skoðanir eru viðraðar er skotið á þær með gífuryrðum eins og „hatursorðræða“ eða hjákátlegum ásökunum um tengsl við evrópskar öfgahyggjur sem börðust á banaspjótum á síðustu öld. Við slíkar aðstæður er frelsi einstaklingsins ekki lengur varið, það er vísvitandi þrengt. Táknhyggja í stað samtals „Woke“ stormar, líkt og önnur öfgahyggja, áfram í fararbroddi táknhyggju og markaðssetur sig með sömu aðferðum og hefðbundnar öfgahreyfingar eða sértrúarhópar. Fánum er flaggað, tungumálinu breytt, fjölmiðlar nýttir, óttastjórnun virkjuð, bókum fargað og fólki sagt upp eða það hreinlega bannað. Mannréttindi eru brotin, réttlát málsmeðferð borin fyrir borð og andmælaréttur ekki virtur. Hópar verða mikilvægari en einstaklingar „Woke“-nálgunin skilgreinir fólk út frá hópaðild. Réttur einstaklingsins hverfur og réttur hópsins vex. Óæskilegum einstaklingum skal fórnað á meðan hópnum er hampað. „Wokið“ segist berjast fyrir jaðarsetta hópa, en vill nú jaðarsetja þá sem eru því ekki þóknanlegir. Umburðarlyndið sem „wokið“ boðar er í orði en ekki á borði! Afleiðingin er samfélag þar sem fólk er ekki metið eftir verðleikum eða sjálfstæðum skoðunum heldur eftir því hvaða hópi það tilheyrir. Þetta er skautun sem fer með himinskautum. Vantraust sem stefna „Woke“ gengur út frá tortryggni, þeirri forsendu að fordómar séu alls staðar, almenningur sé á villigötum og stöðug leiðrétting því nauðsynleg. Þetta er forræðishyggja dulbúin sem umhyggja. Hún sendir þau skilaboð að fólki sé ekki treystandi nema það öðlist vottun í rétthugsun. Slíkt vantraust grefur undan því sem sterkt samfélag þarf helst á að halda sem er traust, heiðarleiki og ábyrgð. Woke er samfélagslegt bakslag Það er ekki samfélagslegt bakslag að gagnrýna „woke“. Það er eðlileg lýðræðisleg gagnrýni og stjórnarskrárvarinn réttur einstaklingsins. Ekkert er svo gott að það sé hafið yfir gagnrýni. Allar hugmyndir eiga rétt á umræðu án ofsafenginna viðbragða. Slæmar hugmyndir grafa sig sjálfar. „Réttlæti“ sem þolir ekki gagnrýni er ranglæti. Inngilding sem byggir á þvingun er innræting. Mannréttindi sem notuð eru til að skerða frelsi verða að sérréttindum. Samfélag þar sem fólk þarf að hugsa „rétt“ til að falla inn og tilheyra er ekki opið samfélag. Það er alræðissamfélag knúið áfram af ótta. Samfélag batnar ekki með því að stýra fólki í hvaða átt það má hugsa og segja. Þroskað samfélag treystir fólki til að ræða, efast og móta lausnir saman. Framfarir krefjast opinnar umræðu, ekki rétttrúnaðar. „Woke“ er fyrirbæri sem keyrir áfram á tortryggni, andlegu ofbeldi og óttastjórnun. Slík fyrirbæri, samfélög og þjóðríki eru ávallt skammlíf. „Woke“ er sjálfskaðandi fyrirbæri sem skapar sitt eigið bakslag og er dæmt til að falla um sjálft sig. Stefna Okkar Borgar er skýr: Virðum mannréttindi, einstaklingsfrelsi og málfrelsi Virðum réttláta málsmeðferð Allir eru jafnir gagnvart lögum Fólki skal ekki mismunað á grundvelli trúar, skoðana eða lífsgilda Veljum gleði og von – veljum Okkar Borg – XR. Höfundur er frambjóðandi Okkar Borgar – XR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Eftirlit Alþingismanna með ráðuneytunum Pétur Halldórsson Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun PISA: Eru forsendurnar þær sömu í öllum löndum? Björn Þórisson skrifar Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar Skoðun Eftirlit Alþingismanna með ráðuneytunum Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Kári beislaður við Vaðöldu Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Það vantar ekki enn eitt átakið – það vantar aðgerðir Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Að leita langt yfir skammt Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Framkvæmd skólastefnu fær falleinkunn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Slönguspilið og svikamyllan Teitur Atlason skrifar Skoðun Þetta er algjört möst í fríið Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Við erum að selja loftslagsmálin vitlaust Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Hin meinta lýðræðisveisla Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Excel-heilafúinn í Ráðhúsinu: Þegar tónlistarnám varð munaðarvara Jónas Sen skrifar Skoðun Andleg heilsa ungs fólks Héðinn Unnsteinsson skrifar Skoðun Sá maður sem ég sá á skjánum var ekki ég Gísli Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um fáránleika þess að raska grafarró þjóðskáldsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Leggjum niður framtíðina Kristinn Jón Ólafsson skrifar Skoðun Þegar umræðan og staðreyndirnar fara ekki saman Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Hverjir unnu þorskastríðin? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Dánaraðstoð snýst ekki aðeins um lækna heldur líka um sjúklinga Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Fyrirtæki sem læra hægt munu deyja hægt Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Þjóðargrafreitur sem ekki varð Sigurður Helgi Pálmason skrifar Skoðun Skutlið að sliga margar fjölskyldur Kolbrún Baldursdóttir skrifar Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar Skoðun Háskólar falla á prófi í samkeppnisrétti Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Jarðhiti sem samkeppnisforskot Helga Kristín Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar
Skoðun Myasthenia Gravis – Sjaldgæfur sjúkdómur sem þarf meiri sýnileika Júliana Magnúsdóttir,Marianne Elisabeth Klinke skrifar
Skoðun Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Orðið í strætinu: Hræðsla og yfirlæti orðin helstu vopn já-liða – hroki bætist við þegar rökin vantar Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Gervigreindin lýgur að þér – og það er nákvæmlega það sem þú baðst um Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Bætt aðgengi að nýjum lyfjum skilar víðtækum ávinningi fyrir samfélagið Ragnhildur Reynisdóttir, Pétur Magnússon skrifar
Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun