Mestu verðmæti Garðabæjar! Guðlaugur Kristmundsson skrifar 11. maí 2026 07:01 Ég hef starfað að bæjarmálum í Garðabæ frá árinu 2018 og býð mig nú fram í þriðja sinn til að hafa áhrif á þróun samfélagsins sem mér þykir vænt um. Á þeim tíma hef ég ítrekað séð hversu stórt hlutverk starfsfólk bæjarins gegnir í allri þjónustu við íbúa. Rúmlega þúsund manns vinna hjá Garðabæ. Sem gefur að rúmlega helmingur reksturs bæjarins er launakostnaður og önnur tengd gjöld. Ekkert sem bærinn á eða gerir jafnast á við þau auðæfi sem mannauðurinn okkar er. Þá hlýtur sú vangavelta að vakna hvað erum við að gera til að hlúa að okkar mestu verðmætum? Staðreyndin er sú að Garðabær nýtir fá eða jafnvel engin af þeim verkfærum í mannauðsmálum sem flestir vinnustaðir telja í dag vera sjálfsögð. Góð þjónusta byggir á fólki Hvort sem við tölum um skólamál, skipulag, umhverfismál eða velferðarþjónustu þá stendur árangurinn og fellur með fólkinu sem sinnir störfunum á hverjum degi. Þess vegna eru mannauðsmál ekki aukaatriði í rekstri sveitarfélags, þau eru grunnforsenda þess að hægt sé að veita góða þjónustu, eða jafnvel nokkra þjónustu yfir höfuð. Góð mannauðsstjórnun snýst um að styðja stjórnendur betur, draga úr kulnun og starfsmannaveltu, bæta starfsánægju og skapa vinnustað þar sem fólk fær tækifæri til að þróast í starfi. Slík nálgun er ekki aðeins betri fyrir starfsfólkið heldur líka hagkvæmari fyrir Garðabæ og leiðir til betri þjónustu fyrir okkur öll. Sveitarfélagið þarf nútímalegri verkfæri Í upphafi kjörtímabilsins lagði ég til að Garðabær tæki upp reglulegar púlsmælingar meðal starfsfólks. Slíkar mælingar eru algengt stjórntæki hjá framsýnum vinnustöðum og gera stjórnendum kleift að greina áskoranir fyrr, fylgjast með líðan starfsfólks og meta árangur breytinga og umbóta. Markmiðið var einfalt: að færa starfsmannamál bæjarins nær þeim faglegu vinnubrögðum sem stærri vinnustaðir byggja nú rekstur sinn á. Þegar yfir þúsund manns starfa hjá sama vinnustað er ekki lengur nóg að treysta á tilfinningu eða gömul vinnubrögð. Þá þarf skýra stefnu, mælikvarða og sérfræðikunnáttu í mannauðsmálum. Fjórtán milljarðar í launakostnað Starfsmannakostnaður Garðabæjar nemur í dag um fjórtán milljörðum króna og er rúmlega helmingur af rekstrarkostnaði bæjarins. Það er eðlilegt því sveitarfélag er fyrst og fremst þjónustusamfélag sem byggir á fólki.Þegar starfsemin er orðin svona umfangsmikil þarf reksturinn og utanumhaldið líka að þróast og taka mið af breyttum aðstæðum. Við eigum að hafa skýra yfirsýn yfir þætti eins og starfsmannaveltu, veikindafjarvistir, starfsánægju, traust til stjórnenda, hæfniþróun og nýliðun. Þetta eru ekki óþarfa mælingar heldur grundvallarupplýsingar sem hjálpa stjórnendum bæjarins að taka betri ákvarðanir og nýta fjármuni bæjarins betur. Sömuleiðis er mikilvægt að stjórnendur bæjarins fái bestu mögulegu þjálfun og fái tækifæri til að vera bestu mögulegu stjórnendur. Garðabær getur verið í fararbroddi Viðreisn vill styrkja mannauðsmál Garðabæjar með öflugu mannauðsteymi sem styður við stjórnendur, breytingar, fræðslu og starfsþróun. Markmiðið er skýrt: að Garðabær verði eftirsóttur vinnustaður sem laðar að og heldur í hæft starfsfólk. Við eigum ekki að sætta okkur við að vera eftir á þegar kemur að mannauðsmálum. Við höfum alla burði til að vera í fararbroddi. Gerum það! Höfundur er oddviti Viðreisnar í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðlaugur Kristmundsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon Skoðun Skoðun Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar