Nokkur orð um kosningar Ástríður Jóhannesdóttir skrifar 9. maí 2026 15:16 Það styttist óðum í sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk. Á Íslandi eru 61 sveitarfélög af ýmsum stærðum og gerðum, það fámennasta telur 55 íbúa en í því fjölmennasta, Reykjavík, eru næstum 148.000 íbúar skráðir. Á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor eru 302.688 kjósendur, þar af eru erlendir ríkisborgarar 48.466 eða um 16% kjósenda. Allir kjósendur sem eru á kjörskrá við sveitarstjórnarkosningarnar fá um það tilkynningu í stafræna pósthólfið sitt á Ísland.is en það er liður í því að auka upplýsingagjöf við kjósendur. Listakosningar (bundnar hlutfallskosningar) fara fram í 50 sveitarfélögum. Í sjö sveitarfélögum komu engir framboðslistar fram fyrir lok framboðsfrest svo þar verða óbundnar kosningar og í fjórum sveitarfélögum verður sjálfkjörið þar sem í hverju þeirra kom einungis fram einn framboðslisti og fara engar kosningar fram í þeim sveitarfélögum. Það gleymist stundum í hinu daglega amstri að hlutirnir gerast ekki að sjálfu sér og við undirbúning og framkvæmd kosninga er í mörg horn að líta og fjölmargir leggja hönd á plóginn. Í hverju sveitarfélagi er starfandi yfirkjörstjórn sem hefur umsjón með framkvæmd sveitarstjórnarkosninga í sveitarfélagi sínu, en það er borgaraleg skylda að taka sæti í kjörstjórn. Mikil ábyrgð hvílir á yfirkjörstjórnum við framkvæmd kosninga. Það þarf að tryggja að allt sem til þarf sé fyrir hendi, að aðbúnaður sé góður og aðgengi gott. Það þarf að velja og undirbúa húsnæðið þar sem kosningin fer fram og tryggja að á hverjum stað sé tekið á móti kjósendum, merkt við þá í kjörskrá og atkvæði talin eftir að kjörfundi lýkur. Í hverri kjördeild starfar þriggja manna kjörstjórn. Þar sem kosið verður í 57 sveitarfélögum, verða kjörstaðir 129 talsins og samtals verður kosið í 293 kjördeildum á landinu. Það er ekki fjarri lagi að gera ráð fyrir að á kjördag séu að meðaltali fimm manns starfandi í hverri kjördeild og má því ætla að það verði að lágmarki 1400 til 1500 manns að störfum í kjördeildum á kjördag. Víst er að fjöldi þeirra sem koma með einum eða öðrum hætti að undirbúningi og framkvæmd kosninga hverju sinni hleypur á þúsundum og handtökin eru nánast óteljandi. Kjósandi sem getur ekki sótt kjörfund á kjördag getur greitt atkvæði utan kjörfundar. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst 17. apríl sl. og fer fram hér á landi hjá sýslumönnum og kjörstjórum á þeirra vegum en erlendis hjá sendiráðum og ræðismönnum. Það er hægt að kjósa utan kjörfundar á a.m.k. 48 stöðum innanlands og á um 240 stöðum erlendis. Landskjörstjórn hefur yfirumsjón með framkvæmd kosninga og við sveitarstjórnarkosningar felst það hlutverk einkum í fræðslu og upplýsingagjöf til kjósenda, framboða og kjörstjórna og að leggja til ýmis aðföng fyrir kosningarnar t.d. innsigli, atkvæðakassa, veggspjöld og annað fræðsluefni. Landskjörstjórn rekur kosningavefinn, kosning.is þar sem er að finna upplýsingar um framkvæmd kosninganna. Þegar kemur að því að kjósa er gott að hafa eftirtalin atriði í huga: Að kjósandi getur fengið aðstoð við að kjósa og þarf ekki að gefa neinar ástæður fyrir því. Kjósandi getur komið með eigin aðstoðarmann eða fengið aðstoð frá starfsfólki á kjörstað. Allir sem veita kjósanda aðstoð eru bundnir þagnarskyldu um það hvernig kjósandi kaus. Ef kjósandi gerir mistök í kjörklefanum þá má hann fá nýjan kjörseðil hjá kjörstjórninni. Við listakosningar á að setja X í ferninginn fyrir framan framboðið sem á að kjósa - ekki skrifa á kjörseðilinn eða nota nein önnur tákn. Kosningar eru leynilegar. Það þýðir að ekki má ekki sýna neinum hvernig maður kaus vegna þess að þá er leyndin rofin og það getur valdið ógildi atkvæðisins. Þess vegna er bannað að taka myndir í kjörklefanum. Kosningar fara fram á grundvelli kosningalaga, reglugerða og reglna sem á þeim byggja. Markmið kosningalaga er að styrkja lýðræðið með öruggri framkvæmd kosninga og tryggja að beinar, frjálsar og leynilegar kosningar séu haldnar. Það er mikilvægt að samfélagið treysti bæði framkvæmd kosninga og niðurstöðum þeirra. Fjöldi fólks sinnir því verkefni af samviskusemi, alúð og kostgæfni og það gerir kjósendum kleift að nota kosningaréttinn sinn. Þetta gerist ekki að sjálfu sér. Höfundur er framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar