Bætum þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ Ragnheiður Hergeirsdóttir skrifar 9. maí 2026 08:03 Garðabær hefur alla burði til að veita fötluðu fólki fyrirmyndar þjónustu. Hér er gott samfélag, öflugt starfsfólk með faglega þekkingu og reynslu og bæjarsjóður sem fær dágóðar tekjur í gegnum skatta frá íbúunum. Samfylkingin vill forgangsraða í þágu velferðar og við viljum bæta þjónustu við fatlað fólk í bænum. Samkvæmt lögum þá eiga sveitarfélög að hafa frumkvæði að því að kynna fötluðu fólki réttindi sín og leiðbeina um þá þjónustu sem þau eiga rétt á. Þetta á jafnt við um allt fatlað fólk, börn og fullorðna. Samfylkingin ætlar að beita sér fyrir bættri upplýsingamiðlun og aukinni skilvirkni í þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ. Samfylkingin í Garðabæ leggur áherslu á samfellda, fjölbreytta og aðgengilega velferðar- og heilbrigðisþjónustu fyrir fatlað fólk í bænum. Einn liður í því er að samþætta heimaþjónustu sveitarfélagsins og heimahjúkrun og einfalda líf fólks með því að það geti leitað aðstoðar og upplýsinga um þjónustuna á einum stað. Búsetumöguleikar Uppbygging búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk er stöðugt verkefni sveitarfélaga. Ferlið frá hönnun til úthlutunar íbúða er langt og þó að nýlega hafi verið tekin skóflustunga að búsetukjarna í Hnoðraholti þá þarf strax að hefja vinnu við að hanna og byggja nýjan búsetukjarna í bænum. Ár hvert bætist í hóp þeirra fötluðu ungmenna sem þurfa slíka búsetuþjónustu hér í Garðabæ. Við þetta bætist að í Garðabæ hefur uppbyggingu leiguhúsnæðis fyrir tekjuminna fólk alls ekki verið nægilega vel sinnt. Sú staðreynd bitnar ekki síst á ungu fólki sem vegna fötlunar, veikinda eða annarra áfalla hefur ekki haft tækifæri til að afla launatekna og býr því við erfið kjör. Samfylkingin í Garðabæ mun á næsta kjörtímabili beita sér fyrir því að óhagnaðardrifin leigufélög fái byggingarlóðir í bænum því úr þessu þarf að bæta sem allra fyrst. Það er mikið réttlætismál fyrir fatlað fólk og fjölskyldur þeirra að þurfa ekki að vera á biðlista árum saman eftir því að geta eignast sitt eigið heimili og fá þjónustu í samræmi við þarfir, sem eru sjálfsögð mannréttindi Tækifæri og þátttaka Samfylkingin vill að komið verði á fót virkni- og hæfingarstöð fyrir fatlað fólk í Garðabæ sem taki mið af þarfagreiningu sem unnin verði í samstarfi fagfólks, hagsmunasamtaka, fatlaðs fólks og aðstandenda þeirra. Virkni og þátttaka bæta líf okkar allra en fatlað fólk mætir fjölmörgum hindrunum fyrir því að taka virkan þátt í samfélaginu. Garðabær er fimmta stærsta sveitarfélag landsins með yfir 20 þúsund íbúa og hefur alla burði til að reka virkni- og hæfingarstöð fyrir þá íbúa sem á þurfa að halda. Það er siðferðileg skylda samfélagsins að skapa umhverfi og aðstæður sem gera fötluðu fólki mögulegt að vera virkir þátttakendur í nærsamfélaginu og við getum gert miklu betur í Garðabæ. Samfylkingin ætlar að beita sér fyrir því að þjónusta við fatlað fólk í Garðabæ verði með því besta sem þekkist. Við erum tilbúin, komdu með og settu X við S á kjördag. Höfundur skipar 10.sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar