Íþróttahúsið við Strandgötu - hjarta öflugs íþróttastarfs Erla Björg Hafsteinsdóttir skrifar 8. maí 2026 17:01 Það virðast mörg framboð til bæjarstjórnar í Hafnarfirði þessa dagana áhugasöm um að breyta Íþróttahúsinu við Strandgötu í menningarhús. Í umræðunni má stundum heyra eins og húsið standi að mestu autt og lítið mál sé að ráðast í slíkar breytingar. Við hjá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar skiljum vel mikilvægi menningarstarfs og þá sérstaklega að starfsemi Gaflaraleikhússins er í mikilli húsnæðisþörf. Hins vegar viljum við vekja athygli á því að í íþróttahúsinu fer fram umfangsmikil og mikilvæg starfsemi sem hingað til hefur lítið verið rætt hvað eigi að verða um ef af breytingunum verður. Í íþróttahúsinu fer fram skólaíþróttakennsla frá klukkan 8 á morgnana til 15 eða 16 síðdegis alla virka daga. Strax að kennslu lokinni taka við æfingar Badmintonfélags Hafnarfjarðar sem standa yfir til klukkan 22, og stundum til 23, á kvöldin. Í tveimur minni sölum hússins fara fram borðtennisæfingar á vegum Borðtennisdeildar BH annars vegar og iðjuþjálfun og dansæfingar fyrir börn og unglinga hins vegar. Um helgar er svo reglulega haldin mót, einkum í badminton og borðtennis, en einnig í öðrum íþróttagreinum. Auk þess eru skrifstofur Badmintonfélagsins og Íþróttabandalags Hafnarfjarðar í húsinu. Ef til stendur að breyta húsinu í menningarhús þarf því fyrst að liggja fyrir fullnægjandi og tilbúin lausn fyrir alla þessa starfsemi. Badmintonfélag Hafnarfjarðar var stofnað árið 1959 og styttist því óðum í 70 ára afmæli félagsins. Í dag iðka tæplega 800 manns badminton og borðtennis hjá félaginu, flest börn og unglingar. Samkvæmt starfsskýrslu ÍSÍ 2025 er félagið stærra en bæði handknattleiks- og körfuknattleiksdeild Hauka og svipað að stærð og handknattleiksdeild FH. Báðar deildir félagsins eiga íþróttafólk í fremstu röð sem hefur unnið Íslandsmeistaratitla á síðustu árum, bæði í meistaraflokkum og yngri flokkum. En starf félagsins snýst ekki aðeins um afrek. Hjá BH er öflugt barna- og unglingastarf þar sem allir eiga að geta tekið þátt á sínum forsendum, hvort sem áhugi er á keppni eða ekki. Stór hluti iðkenda eru börn og unglingar sem finna sig ekki í hópíþróttum. Félagið býður einnig upp á æfingar fyrir fólk með þroskahömlun, hreyfihömlun og aðrar sérþarfir. Mikilvægt er að ekki verði röskun á þessu starfi og ekki má skapa ótta meðal iðkenda og aðstandenda um að starfseminni verði úthýst, hún sett á hrakhóla eða komið fyrir í óviðunandi húsnæði. Árangur félagsins hefur ekki orðið til af sjálfu sér. Frá því BH hóf æfingar í Íþróttahúsinu við Strandgötu árið 1972 hafa forsvarsmenn félagsins þurft að berjast fyrir tilveru þess og aðstöðu. Árið 2020 fékk félagið loks lyklavöld að húsinu og tók við rekstri þess, líkt og önnur íþróttafélög í bænum hafa gert á sínum svæðum um árabil. Reksturinn hefur gengið vel þrátt fyrir takmarkaðan stuðning. Félagið hefur ávallt rekið starfsemi sína af ábyrgð, haldið rekstrinum í jafnvægi og aldrei þurft á fjárhagsaðstoð bæjarins að halda vegna rekstrarvanda. Það teljum við vera árangur sem vert er að halda til haga. Það hefur verið mikið gæfuspor fyrir félagið að fá rekstur hússins í sínar hendur. Starfsemin hefur vaxið hratt undanfarin ár og nú eru biðlistar í flesta hópa. Ljóst er að félagið þarf stærra og sérhæfðara húsnæði til framtíðar svo hægt sé að halda áfram að byggja upp öflugt starf og tryggja að afreksfólk og iðkendur leiti ekki annað. Samkvæmt forgangslista um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Hafnarfirði er stefnt að byggingu nýs badminton- og borðtennishúss á árunum 2027–2030. Húsnæðisnefnd félagsins var stofnuð vorið 2025 og hefur skoðað möguleg húsnæði og fýsilegar staðsetningar fyrir framtíðaraðstöðu félagsins. Meðal þeirra hugmynda sem nefndin hefur kynnt eru stækkun Íþróttahússins við Strandgötu, bygging nýs húss í Engidal og þátttaka í nýjum íþróttaklasa í Hamranesi. Allir þessir kostir hafa sína styrkleika og félagið er tilbúið til uppbyggilegs samtals um framtíðina. Við erum til í samtalið en það hefur ekki átt sér stað. Betur má ef duga skal og við erum sannfærð um að eiga árangursríka samvinnu með komandi bæjaryfirvöldum um áframhaldandi uppbyggingu og framtíðarhúsnæði Badmintonfélags Hafnarfjarðar. Höfundur er formaður Badmintonfélags Hafnarfjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar