Með 40 blöðrur á fótunum og sefur ekki fyrir verkjum: „Brýtur mann á allan hátt“ Sindri Sverrisson skrifar 8. maí 2026 12:03 Karlotta Ósk Óskarsdóttir heldur áfram að skrá nýja kafla í ofurhlaupasögu Íslendinga. vísir/Lýður Ofurhlauparinn Karlotta Ósk Óskarsdóttir er komin á áttunda dag í tíu daga hlaupi í Sofiu í Búlgaríu. Hún hljóp rúma 550 kílómetra fyrstu sjö dagana en gat ekkert sofið í nótt fyrir verkjum. „
Það er einhver sjálfsagi og þrautseigja sem fær mann til að halda áfram. Það væri rosalega auðvelt að sleppa þessu bara og hætta en það er bara ekki til í mér held ég. Ég held alltaf áfram, sama hvað,“ segir Karlotta en hún var í beinni útsendingu frá Sofiu í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hlaupið sem Karlotta keppir nú í er í almenningsgarði í Sofiu, þar sem hlaupinn er 785 metra hringur aftur og aftur. Hún hefur að meðaltali hlaupið 79 kílómetra á dag en mest hljóp hún fyrsta daginn eða tæpa 115 kílómetra. En hversu erfitt er það andlega að hlaupa alltaf sama hringinn, svona lengi? „Þetta brýtur mann á allan hátt. En þetta styrkir mann líka einhvern veginn sem er líklega ástæðan fyrir því að hér eru fjörutíuogeitthvað manns að hlaupa þetta, og margir að gera þetta í fjórða, fimmta eða sjötta sinn,“ segir Karlotta. View this post on Instagram A post shared by Karlotta Ósk Óskarsdóttir (@karlottaoo) „Ég er að gera þetta í fyrsta sinn og er búin að læra ótrúlega mikið af þessum meisturum sem eru hérna. Hér eru nánast allir heimsmeistarar í þessum hlaupum og ég hef lært ótrúlega mikið. Mér fannst líka áhugavert að verða fyrsti Íslendingurinn til að keppa í tíu daga hlaupi og setja þannig Íslandsmet í tíu daga hlaupi,“ bætir hún við. Karlotta hefur ítrekað sett Íslandsmet í ofurhlaupum síðustu misseri, þar af tvö í yfirstandandi keppni, en hennar lengsta hlaup þar til nú var sex daga hlaup í ágúst í fyrra, þegar hún fór 534 kílómetra og setti þá met. Hún ræddi einmitt við Vísi í október síðastliðnum og fór yfir árangurinn. Spurningin er hve langt Karlotta nær í Sofiu en ljóst er að síðustu dagarnir verða hrikalega erfiðir: „Ég veit ekki hvort ég næ 800 kílómetrum, ég átti frekar slæman dag í gær. Ég er komin með svo rosalega illt í hnén, er örugglega með svona 40 blöðrur og er núna bara í inniskóm. Ég fékk smánudd og sjúkraþjálfari skoðaði mig í morgun, en ég gat bara ekkert sofið í alla nótt fyrir verkjum í hnjánum. Þannig að ég er alveg svefnvana,“ segir Karlotta en nánar er rætt við hana í spilaranum hér að ofan.
Hlaup Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Sport „Hann sagði já takk“ Fótbolti Fleiri fréttir Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Sjá meira