Einkabíllinn er mest niðurgreiddi ferðamátinn Guðni Freyr Öfjörð skrifar 8. maí 2026 08:20 Ég er með pælingu fyrir þá sem kalla endalaust eftir því að samgöngusáttmálinn sé alltaf endurskoðaður; Eigum við ekki að endurskoða allar stórframkvæmdir, beinan og óbeinan kostnað, sem eru gerðar fyrir einkabílinn líka? Það er gríðarlegur kostnaður sem fylgir því að halda úti kerfi fyrir einkabílinn sem skattgreiðendur borga, óháð því hvort þeir keyri eða ekki. Einkabíllinn er bæði mest niðurgreiddi og langdýrasti samgöngumátinn. Kostnaður einkabílsins Vegakerfið á Íslandi er dýrt í rekstri. Malbikun, snjómokstur, götulýsing og ný mislæg gatnamót kosta tugi milljarða á ári sem skattgreiðendur borga hvort sem þeir eiga bíl eða ekki. Ofan á þetta bætist svo hve frek bílaumferð er á landsvæði, það er stærsti „ósýnilegi" kostnaðurinn. Bílastæði og breiðar götur taka gríðarlegt pláss í borginni. Ef þetta malbikaða landsvæði væri notað undir íbúðir eða atvinnustarfsemi, myndi það skila ríkinu og borginni tekjum (fasteignagjöldum o.fl.) í stað þess að vera kostnaðarliður. Við gætum byggt heilu hverfin innan borgarinnar sem nú eru lögð undir endalaus bílastæði. Alvarlegasti kostnaðurinn er þó sá mannlegi harmleikur sem hlýst af umferðarslysum. Samkvæmt tölum frá Samgöngustofu er áætlaður samfélagslegur kostnaður vegna þeirra rúmir 80 milljarðar króna á ári. Þetta er kostnaður sem fellur beint á skattgreiðendur í gegnum heilbrigðiskerfið, örorkubætur og vinnutap. Til samanburðar er þessi árlegi kostnaður álíka hár og áætlaður heildarkostnaður við fyrsta fasa Borgarlínunnar og þá er ónefndur mannlegi kostnaðurinn sem verður ekki mældur í krónum, heldur í beinbrotum, sársauka, sálrænum skaða og mannslífum. Þótt ökumenn greiði sértaka skatta, svo sem kílómetragjöld og eldsneytisskatta, sýna rannsóknir að þessi gjöld standa mjög sjaldnast undir öllum þeim kostnaði sem hlýst af viðhaldi, uppbygging vega, slysum og umhverfisáhrifum. Þannig taka allir skattgreiðendur, óháð ferðamáta, mikinn þátt í að fjármagna rýmið og innviðina sem einkabíllinn krefst. Hvert bílastæði hækkar íbúðaverð Eitt bílastæði í bílageymslu getur kostað 8–12 milljónir króna í byggingu og bílastæði á yfirborði um 1–3 milljónir. Þessi kostnaður leggst beint ofan á íbúðarverð og eigandi eða leigjandi þarf að greiða hann, óháð því hvort hann á bíl eða ekki. Þeir sem eiga ekki bíl eru í raun að niðurgreiða dýr bílastæði fyrir þá sem eiga þá. Það er ekkert til sem heitir “ókeypis“ í raunveruleikanum Þegar verslanir eða vinnustaðir bjóða upp á "ókeypis“ stæði, er sá kostnaður lagður ofan á vöruverð eða dregur úr svigrúmi til launahækkana. Skattgreiðandinn borgar þetta á endanum. Með öðrum orðum, við borgum fyrir bílastæði með vöruverðinu. Einhver þarf alltaf að borga fyrir landið, malbikið, viðhaldið og snjómoksturinn. Í raun eru þeir sem ganga, hjóla eða nota strætó að niðurgreiða innviði fyrir þá sem keyra, því hluti af þeirra almennu sköttum fer í vegakerfið án þess að þeir nýti það jafn mikið og bíleigendur. Sá sem kemur gangandi og kaupir sömu mjólk og þú, er í raun að borga nokkrar krónur fyrir malbikið sem bíllinn þinn hvílir á meðan þú verslar. Heimild Um Borgarlínu og einkabíla Borgarlínan flytur mun fleira fólk á hvern fermetra af malbiki en einkabíllinn. Ef við byggjum ekki upp hágæða almenningssamgöngur á borð við Borgarlínuna, neyðumst við til að eyða margfalt hærri fjárhæðum í að breikka götur og leggja nýtt malbik. Slíkt kallar á fórnir: við glötum grænum svæðum, gríðarlegu landsvæði undir malbik og á endanum gætum við þurft að rífa niður íbúðarhúsnæði og heilu hverfishlutana til að rýma fyrir bílaumferð. Þá þarf að ráðast í dýrar framkvæmdir, svo sem gerð mislægra gatnamóta, sem bitna óhjákvæmilega á skipulagi byggðarinnar. Slíkar lausnir eru þó skammvinnar vegna þess sem kallað er framkölluð eftirspurn (e. induced demand), fleiri akreinar kalla einfaldlega fram aukinn akstur. Niðurstaðan er sú að eftir örfá ár sitjum við aftur í sömu biðröðunum sem oft eru jafnvel lengri en áður en nú á stærri og dýrari mannvirkjum. Þessa þróun höfum við séð endurtekið í gegnum áratugina. Lokaorð Við niðurgreiðum einkabílinn nú þegar um milljarða á ári með “ókeypis” landsvæði undir stæði og vegi. Afhverju má ríkið ekki niðurgreiða valkost sem minnkar mengun og eykur öryggi? Af hverju mega ríkið og sveitarfélög ekki niðurgreiða annan valkost en einkabílinn til að létta undir álagi á vegakerfið, heilbrigðiskerfið, umferðina, auka valfrelsi í samgöngum o.s.frv.? Borgarlínan er líka fjárfesting í þéttari byggð, sem eykur tekjur borgarinnar til lengri tíma. Innviðir fyrir bíla í dreifðri byggð eru hrein útgjöld sem skila sér aldrei beint til baka í ríkiskassann. Það er mjög kostnaðarsamt fyrir borg að byggja dreift. Já, það er mikill „dulinn“ kostnaður við umgjörð við einkabílinn á Íslandi. Með því að draga hann fram í dagsljósið breytist umræðan um það að Borgarlínan sé „dýrt gæluverkefni“ yfir í að hún sé skynsöm hagræðing á samgöngukerfi sem er nú þegar rándýrt í rekstri. Höfundur skipar 9. sæti á lista Pírata í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðni Freyr Öfjörð Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar