Babb í bátinn enn eina ferðina Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. maí 2026 20:59 Til allrar hamingju er enn á ný siglt á milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja. Vísir/Vilhelm Eldur sem kviknaði í gagnaveri í Amsterdam setur enn eitt strik í reikninginn hjá forsvarsmönnum Herjólfs. Vegna eldsvoðans liggur bókunarkerfið niðri.
Forsvarsmenn Herjólfs hafa ekki átt sjö dagana sæla vegna bilana og langra sjóferða en nú hefur enn og aftur komið babb í bátinn. Vísað er í frétt hollenska miðilsins NL Times á Facebook-síðu Herjólfs en í fréttinni segir að í morgun hafi kviknað mikill eldur í Almere-gagnaverinu. Ekki liggur fyrir af hverju eldurinn kviknaði en varað er við að fjöldi stofnana reiði sig á gagnaverið og gætu vefsíður þeirra því orðið fyrir truflunum. Bókunarkerfi Herjólfs er þar með talið. „Teymið mun vinna að því að koma kerfinu aftur upp um leið og samband næst til höfuðstöðvanna,“ segir í færslu Herjólfs. Samt sem áður verður siglt frá Vestmannaeyjum til Landeyjahafnar á morgun, fyrsta ferð fer klukkan átta. „Við viljum ítreka að starfsfólk okkar getur ekki bókað né breytt ferðum sem stendur. Við munum upplýsa viðskiptavini um leið og við fáum frekari fréttir.“ Gengið brösulega Samgöngur milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar hafa töluvert verið til umræðu undanfarnar vikur. Fyrst gekk illa að dýpka Landeyjahöfn og bilaði dýpkunarskipið svo í nokkra mánuði var siglt til Þorlákshafnar. Þá bilaði önnur vélin í Herjólfi með þeim afleiðingum að ein ferð á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja tók um sex klukkustundir. Um tíma fór ferjan Baldur leið Herjólfs en henni er alla jafna siglt um Breiðafjörð. Breytingar á ferðum Baldurs urðu til þess að þeir starfsmenn Orkubús Vestfjarða urðu strandglópar í Flatey. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hyggst halda opinn fund um stöðu samgangna til Vestmannaeyja þann 18. maí. Einnig verður nauðsyn ferjuáætlunar til umræðu.
Vestmannaeyjar Samgöngur Holland Herjólfur Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Sjá meira