Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Kjartan Kjartansson skrifar 7. maí 2026 12:10 Sár í brattri fjallshíðinni ofan við sporð Suður-Sawyer-jökuls í Tracy Arm-firði í suðaustur Alaska 10. ágúst árið 2025. Talið er að berghlaupið úr hlíðinni hafi valdið um fimm hundruð metra hárri flóðbylgju. Cyrus Read/Jaðfræðistofnun Bandaríkjanna Risaflóðbylgja sem skolaði yfir afskekktan fjörð í Alaska í fyrra er talin hafa verið tæplega fimm hundruð metra há og sú næststærsta sem sögur fara af. Fjörðurinn er á leið skemmtiferðaskipa. Slíkar flóðbylgjur eru taldar verða tíðari með hlýnandi loftslagi.
Mölbrotin tré lágu eins og hráviði í fjallshlíðum og í sjónum og jarðvegi og gróðri hafði skolað burt á stórum svæðum þegar vísindamenn könnuðu aðstæður í Tracy Arm-firði í suðaustanverðu Alaska nokkrum vikum eftir að flóðbylgjan gekk yfir hann í ágúst í fyrra. Gríðarlegt berghlaup úr fjallshlíð nærri Suður-Sawyer-jöklinum úti í fjörðinn olli flóðbylgjunni. Áætlað er að um 64 milljónir rúmmetra bergs hafi fallið út í sjóinn. Breska ríkisútvarpið BBC segir að það sé 24 sinnum þyngd Pýramídans mikla í Gísa. Flóðbylgjan hafi náð tæplega fimm hundruð metra hæð. Tölvulíkön sem vísindamenn notuðu til þess að herma atburðinn bendir til þess að þegar holskeflann náði að gagnstæðri strönd fjarðarins hafi hún verið um hundrað metra há og ferðast á rúmlega 240 kílómetra hraða á klukkustund. Bretwood Higman, jarðfræðingur frá Alaska, segir við BBC að skemmtiferðaskip hefðu hæglega getað orðið fyrir flóðbylgjunni. Svo heppilega hafi viljað til að berghlaupið varð eldsnemma morguns. „Við vitum að það var fólk sem var næstum því á röngum stað. Ég er dauðhræddur um að við verðum ekki svo heppin í framtíðinni,“ segir jarðvísindamaðurinn. Nokkrar skemmtiferðaútgerðir hafa þegar sagst ætla að hætta ferðum í Tracy Arm-fjörð vegna hættunnar. Telur flóðbylgjur af þessu tagi tífalt tíðari en áður Vaxandi hætta á berghlaupi af þessu tagi í hlýnandi heimi er vel þekkt. Þegar jöklar hopa skilja þeir eftir sig óstöðugar fjallshlíðar sem þeir hjálpuðu áður við að halda uppi. Slíkar hlíðar geta hæglega skriðið fram. Ef þær hafna í sjó eða lóni geta þær valdið miklum flóðbylgjum eins og gerðist í Tracy Arm-firði í fyrra. Þessi hætta er sögð umtalsverð í Alaska þar sem há fjöll umlykja þrönga firði og jarðskjálftavirkni er umtalsverð. Spurður Suður-Sawyer-jökulsins sem hopar vegna hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. Sárið í fjallshlíðinni það sem berghlaupið kom sést í forgrunni.John Lyons/Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna Vísindamennirnir sem rannsökuðu afleiðingar flóðbylgjunnar í fyrra rekja hana þannig beint til hop nærliggjandi jökulsins. Higman telur að flóðbylgjur af þessu tagi kunni að vera allt að tífalt tíðari nú en fyrir áratug. Flóðbylgja á Grænlandi mældist um alla jörð Sambærileg flóðbylgja sem varð vegna berghlaups í firði á Austur-Grænlandi árið 2023 mældist á jarðskjálftamælum um alla jörð. Bylgjan velktist um í firðinum í níu daga. Áætlað er að hún hafi verið um tvö hundruð metra há. Fjórir fórust í þopi á vesturströnd Grænlands vegna flóðbylgju af völdum berghlaups í nálægum firði árið 2017. Stærsta flóðbylgjan sem heimildir eru um varð í Lituya-flóa í Alaska árið 1958. Hún er talin hafa verið um 527 metra há. Sambærileg hætta er ekki til staðar á Íslandi þar sem jöklar ganga ekki fram í þrönga firði. Hins vegar hafa jarðvísindamenn varað við mögulegri hættu af berghlaup felllur í lón sem hafa myndast við sporða fjölda jökla á sunnanverðu landinu.
Bandaríkin Loftslagsmál Hafið Náttúruhamfarir Vísindi Tengdar fréttir Berghlaup á Grænlandi gæti hafa valdið 280 metra hárri flóðbylgju Berghlaup sem varð við vesturströnd Grænlands við lok síðustu ísaldar er það stærsta sinnar tegundar sem vitað er um á jörðinni. Vísindamönnum reiknast til að það gæti hafa valdið 280 metra hárri flóðbylgju í 25 kílómetra fjarlægð. 17. desember 2023 07:57 Öflugt jökulhlaup skolaði burt heilu húsunum Engan sakaði þegar jökulhlaup hreif með sér íbúðarhús við bakka Mendenhall-árinnar í Juneau í Alaska í Bandaríkjunum um helgina. Hlaupið var mun kröftugra en fyrri flóð sem hafa orðið á undanförnum árum. 8. ágúst 2023 11:21 Fjallsárlón á meðal dýpstu stöðuvatna landsins Mælingar jarðvísindamanna á Fjallsárlóni á Breiðamerkursandi benda til þess að það sé um 130 metra djúpt þar sem það er dýpst. Þorsteinn Sæmundsson, jarðfræðingur við Háskóla Íslands, segir líkur á því að jökullón sem stækka nú ört vegna hops jökla eigi eftir að verða enn dýpri þegar fram líða stundir. 9. maí 2021 09:01 Vara við meiriháttar flóðbylgju í Alaska vegna bráðnandi jökuls Hópur vísindamanna sem fylgist með landhræringum á norðurskautinu óttast að berghlaup úr fjallshlíð geti valdið gríðarlega stórri flóðbylgju á einu þéttbýlasta svæði Alaska á allra næstu áratugum. Aukin hætta er sögð á hamfaraskriðum og flóðbylgjum vegna hnattrænnar hlýnunar á norðurslóðum. 21. maí 2020 09:00 Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira
Berghlaup á Grænlandi gæti hafa valdið 280 metra hárri flóðbylgju Berghlaup sem varð við vesturströnd Grænlands við lok síðustu ísaldar er það stærsta sinnar tegundar sem vitað er um á jörðinni. Vísindamönnum reiknast til að það gæti hafa valdið 280 metra hárri flóðbylgju í 25 kílómetra fjarlægð. 17. desember 2023 07:57
Öflugt jökulhlaup skolaði burt heilu húsunum Engan sakaði þegar jökulhlaup hreif með sér íbúðarhús við bakka Mendenhall-árinnar í Juneau í Alaska í Bandaríkjunum um helgina. Hlaupið var mun kröftugra en fyrri flóð sem hafa orðið á undanförnum árum. 8. ágúst 2023 11:21
Fjallsárlón á meðal dýpstu stöðuvatna landsins Mælingar jarðvísindamanna á Fjallsárlóni á Breiðamerkursandi benda til þess að það sé um 130 metra djúpt þar sem það er dýpst. Þorsteinn Sæmundsson, jarðfræðingur við Háskóla Íslands, segir líkur á því að jökullón sem stækka nú ört vegna hops jökla eigi eftir að verða enn dýpri þegar fram líða stundir. 9. maí 2021 09:01
Vara við meiriháttar flóðbylgju í Alaska vegna bráðnandi jökuls Hópur vísindamanna sem fylgist með landhræringum á norðurskautinu óttast að berghlaup úr fjallshlíð geti valdið gríðarlega stórri flóðbylgju á einu þéttbýlasta svæði Alaska á allra næstu áratugum. Aukin hætta er sögð á hamfaraskriðum og flóðbylgjum vegna hnattrænnar hlýnunar á norðurslóðum. 21. maí 2020 09:00