Mismunum grunnskólabarna í sumarfrístundakerfi Reykjavíkurborgar Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar 7. maí 2026 10:10 Nú nálgast sumarið með björtum nóttum, hlýnandi veðri (vonandi) og fyrir fjölmarga foreldra grunnskólabarna yngstu bekkja í grunnskóla, stressi og fjárútlátum. Einnig nálgast sveitastjórnakosningar og því er tilvalið fyrir borgarfulltrúa eða tilvonandi borgarfulltrúa að sýna það í verki að þeir geti gert einfaldar og sjálfsagðar breytingar til að bæta þjónustu við borgarbúa. Grunnskólar Reykjavíkur eru ekki starfandi frá 10. júní til 24. ágúst, mun lengra tímabil en foreldrar geta tekið sér frí og því þarf að hafa einhverja starfsemi fyrir börn hluta af þessu tímabili. Yfir veturinn starfrækir Reykjavíkurborg frístundastarf fyrir grunnskólanema þar sem flest börn fyrstu bekkja grunnskóla dvelja eftir að skóla lýkur. Reynsla minnar fjölskyldu af þessu starfi er afar jákvæð. Starfið er vandað og þar vinnur metnaðarfullt starfsfólk sem heldur uppi mjög fjölbreyttu starfi sem bæði barn og foreldar eru afar ánægð með. En nú er að koma sumar. Frístundaheimilin starfrækja vissulega sumarnámskeið frá 8.30-16.30 alla virka daga í sex og hálfa viku yfir sumartímann. En sá er galli á gjöf Njarðar að frístundaheimilin fá einungis fjármagn til að sinna um helmingi af eftirspurninni og færri komast að en vilja. Í velferðarþjóðfélagi myndi maður ætla að hægt væri að fjármagna þetta starf svo að öll börn komist að. Frístundin er ekki starfrækt í 4 vikur í júlí svo ætla má að nánast allir foreldrar hafi þörf fyrir allar vikurnar sem eru í boði og best væri að börn gætu verið á sínu hefðbundna frístundaheimili, nálægt heimili sínu. Fyrst starfið er ekki nægilega fjármagnað og því um takmörkuð gæði að ræða mætti ætla að borgin myndi allavega skipta þessum gæðum á réttlátan hátt. En það er fjarri lagi. Opnað er fyrir umsóknir á tilteknum degi og tíma á vorin. Þeir foreldrar sem vita hvernig kerfið virkar sitja tilbúnir við tölvuna og skrá sitt barn á allar þær vikur sem þeir óska eftir. Reglan við inntöku er: Fyrstur kemur, fyrstur fær. Þau sem eru fyrst til að skrá sín börn fá því pláss í allar þær vikur sem þau óska eftir, en þau sem á eftir koma fá kannski ekkert. Engin önnur viðmið eru við inntöku, hvorki félagsleg eða efnahagsleg staða foreldra né annað sem getur veitt börnum forgang. Þau sem sækja um á slaginu kl. 10 fá allt á meðan þau sem sækja um fimm mínútum seinna fá ekkert. Um er að ræða niðurgreidda þjónustu á vegum borgarinnar sem kostuð er með útsvari sem við borgarbúar greiðum í sameiningu til samreksturs samfélagsins okkar. Þetta ósanngjarna kerfi bitnar í fyrsta lagi á börnunum sjálfum sem mörg hver vilja helst vera í sumarfrístund með bekkjarfélögum sínum. Í öðru lagi snýr óréttlætið að foreldrum í efnahagslegu tilliti því hér er um mikla mismunun að ræða hvað varðar skiptingu á almannagæðum. Hver vika í sumarfrístund kostar um 16.000 krónur en til samanburðar eru flest önnur úrræði, svo sem sumarnámskeið fyrir börn á vegum íþróttafélaga eða annarra, tvisvar sinnum dýrari. Það getur því munað miklu í kostnaði fyrir þá foreldra sem neyðast til að kaupa námskeið annars staðar allt sumarið. Þá er fyrirkomulag af þessu tagi, sem krefst þekkingar á kerfishlið umsóknar, til þess fallið að mismuna börnum innflytjenda og annarra nýrra Íslendinga sem ekki tala íslensku sem fyrsta mál og búa að smærra tengslaneti. Slíkir hópar mega síst við því að verða af þjónustu á borð við sumarfrístund. Foreldrar sem sinna grunn- og bráðaþjónustu, til dæmis heilbrigðisstarfsfólk, hafa sömuleiðis síðri tök á því að vakta umsóknarglugga klukkan 10 að morgni. Þá geta veikindi einnig valdið því að ekki sé hægt að vakta gluggann. Það er erfitt að ímynda sér að nokkur starfsmaður né borgarfulltrúi Reykjavíkurborgar telji að núverandi kerfi sé sanngjarnt eða í lagi. Fyrstur kemur, fyrstur fær sem í praxís þýðir allt eða ekkert, allt fyrir börn foreldra sem hafa gott aðgengi að interneti á sérstökum tíma dags og ná að komast fyrst inn í kerfið og ekkert fyrir hin, er algjörlega óásættanlegt. Ég spyr því: Hvaða stjórnmálaflokkur ætlar að breyta þessu? Höfundur er móðir grunnskólabarns í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað hefur presturinn að segja yfir gröfinni? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Erum við í hættu? Ólgan kringum gervigreind Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Það sem ég vildi að foreldrar mínir vissu… Aðalheiður Ásdís Boutaayacht skrifar Skoðun Í sporum kindarinnar Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þurfum við að óttast gervigreind? Óttar G. Birgisson skrifar Skoðun Skattgreiðendur á TikTok Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn Bára Birgisdóttir skrifar Skoðun Bókin er betri! Sigþrúður Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Tvær þjóðir í sama landi? Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Börnin eru þrautseig. Kerfið hefur brugðist grunnfærninni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Við þurfum ekki að fórna fjörðum fyrir framtíðina okkar Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Að stíga varlega til jarðar eða ryðja burt hindrunum Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar